Jólamynd í efsta sæti Gamanmyndin Four Christmases með Reese Witherspoon og Vince Vaughn í aðalhlutverkum fór beint í efsta sætið á aðsóknarlistanum vestanhafs um síðustu helgi. Bíó og sjónvarp 2. desember 2008 06:00
Til í framhaldsmynd Meryl Streep segist vera tilbúin til að gera framhaldsmynd af kvikmyndinni Mamma Mia. Myndin, sem er byggð á tónlist sænsku hljómsveitarinnar Abba, hefur slegið í gegn út um allan heim og er nú komin út á DVD. Bíó og sjónvarp 1. desember 2008 01:30
Roger Moore ánægður með Craig Roger Moore segir að Daniel Craig hafi tekist sérlega vel upp í hlutverki njósnarans James Bond og telur að ferskir vindar leiki nú um persónuna. Moore, sem lék Bond sjö sinnum á áttunda og níunda áratugnum, segir að frammistaða Craig í myndunum Munich og Sylvia hafi nýst honum í Bond-hlutverkinu. Bíó og sjónvarp 29. nóvember 2008 07:00
Höfundur í feluhlutverki Jeff Lindsey, höfundur bókanna um Dexter, er afar hrifinn af sjónvarpsþáttunum sem eru byggðir á verkum hans. Til að sýna stuðning sinn í verki ákvað hann að koma fram í feluhlutverki í nýjasta þættinum sem verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Bíó og sjónvarp 28. nóvember 2008 05:15
Benjamin fær frábæra dóma Nýjasta mynd Davids Fincher, The Curious Case of Benjamin Button, fær frábæra dóma á bandarísku kvikmyndasíðunum Variety.com og Hollywoodreporter.com. Bíó og sjónvarp 27. nóvember 2008 06:30
Kominn á beinu brautina Leikstjórinn Kevin Smith hefur sent frá sér gamanmyndina Zack and Miri Make a Porno sem verður frumsýnd hérlendis um helgina. Freyr Bjarnason leit yfir feril þessa athyglisverða leikstjóra. Bíó og sjónvarp 27. nóvember 2008 05:30
Baltasar gerir mynd í Kanada „Ég veit ekki hvort þetta verður næsta kvikmyndin mín. Ef öll plön ganga upp þá verður hún það. Ef ekki þá hef ég alltaf Grafarþögn og svo víkingamyndina,“ segir Baltasar Kormákur, leikstjóri og margfaldur Eddu-verðlaunahafi. Bíó og sjónvarp 25. nóvember 2008 06:00
Verður trú sögunni Leikstjórinn Zack Snyder, segir að nýjasta mynd sín Watchmen, verði trú upprunalegu teiknimyndasögunni sem hún er gerð eftir. „Ég vona að áhorfendur verði yfir sig hrifnir, alveg eins og ég var þegar ég las teiknimyndasöguna," sagði Snyder, sem á að baki myndirnar Dawn of the Dead og 300. Bíó og sjónvarp 24. nóvember 2008 06:00
Mynd um innflytjendur John Malkovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum. Þegar hann frétti af þeim fjölda barna sem komast þannig til Bandaríkjanna ákvað hann að láta til skarar skríða. Bíó og sjónvarp 23. nóvember 2008 08:00
Gísli Örn væntanlegur í allar betri búðir „Jú, það er eitthvað þannig í gangi. Í það minnsta er búið að taka slíkar myndir af mér sem hugsaðar eru fyrir framleiðslu á einhverjum svona leikfangabrúðum. Ætli maður fylgi ekki bara Big Mac í framtíðinni," segir leikarinn Gísli Örn Garðarsson. Til stendur að framleiða leikföng í kringum stórmyndina Prince of Persia: Sand of Time sem hann leikur í og Fréttablaðið hefur greint frá. Ef allt gengur að óskum verður Gísli því væntanlegur í líki illmennisins The Vizier í allar betri leikfangabúðir þegar kvikmyndin hefur verið frumsýnd sumarið 2010. Bíó og sjónvarp 22. nóvember 2008 07:00
Riches á hvíta tjaldið Breski grínistinn Eddie Izzard ætlar að búa til kvikmynd byggða á sjónvarpsþáttum sínum The Riches. Izzard lék aðalhlutverkið í þeim ásamt Minnie Driver en sjónvarpsstöðin FOX ákvað að hætta framleiðslunni eftir tvær þáttaraðir. Bíó og sjónvarp 22. nóvember 2008 03:30
Ragnhildur Steinunn til Egyptalands „Ég hlakka mikið til. Ef maður fær frítíma reynir maður að skoða píramídana en það verður bara að koma í ljós,“ segir sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sem er á leiðinni á kvikmyndahátíð í Egyptalandi til að kynna myndina Astrópíu. Flýgur hún í dag til höfuðborgarinnar Kaíró þar sem hátíðin fer fram og dvelur þar í fimm daga. Bíó og sjónvarp 21. nóvember 2008 06:15
Baltasar er kóngurinn Baltasar Kormáki er lýst sem kónginum í íslensku kvikmyndalífi á heimasíðunni Hollywoodreporter.com eftir að mynd hans Brúðguminn hlaut sjö Edduverðlaun á dögunum. Bíó og sjónvarp 21. nóvember 2008 04:00
Stjörnur framtíðarinnar Michael Cera og Kat Dennings leika aðalhlutverkin í gamanmyndinni Nick and Norah's Infinite Playlist sem verður frumsýnd hérlendis á föstudaginn. Freyr Bjarnason ræddi við þessa ungu og efnilegu leikara. Bíó og sjónvarp 20. nóvember 2008 06:00
Slær met vestanhafs Kvikmyndin Quantum of Solace hefur slegið met í miðasölunni vestanhafs og er orðin sú Bond-mynd sem hefur náð í mestar tekjur allra eftir frumsýningarhelgi sína. Bíó og sjónvarp 19. nóvember 2008 06:30
Fjórar íslenskar kvikmyndir klárar fyrir næsta ár Fjórar íslenskar kvikmyndir eru að verða klárar til frumsýningar og verða sýndar árið 2009. Þrjár af þeim eru að öllu eða einhverju leyti leiknar á ensku. Þær eru R.W.W.M eftir Júlíus Kemp, The Good Heart í leikstjórn Dags Kára og Inhale sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Brim er eina myndin af þessum fjórum sem er alfarið á íslensku en leikstjóri hennar er Árni Ólafur Ásgeirsson. Bíó og sjónvarp 17. nóvember 2008 07:00
Vinsæl bók verður mynd Skáldsagan Viltu vinna milljarð? eftir Vikas Swarup hefur notið talsverðra vinsælda á meðal íslenskra lesenda. Þeir sem halda upp á bókina geta nú glaðst yfir þeim fréttum að hún hefur verið kvikmynduð og að við stjórnvölinn sat enginn annar en hinn ágæti leikstjóri Danny Boyle, sem á að baki myndir á borð við Trainspotting og 28 Days Later. Bíó og sjónvarp 13. nóvember 2008 06:00
Mynd um fatlaða uppistandara Leikstjórinn Ágústa Skúladóttir undirbýr nú heimildarmynd um uppistandshópinn Hjólastólasveitina, sem hefur vakið mikla athygli síðan hann var stofnaður fyrir einu ári. Bíó og sjónvarp 13. nóvember 2008 05:30
Van Damme sem Van Damme Kvikmyndin JCVD var frumsýnd í Bandaríkjunum um síðustu helgi við nokkra undrun og furðu bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Myndin er að hluta til sannsöguleg, enda byggð á ævi og störfum hasarmyndahetjunnar Jean-Claude Van Damme og þeirri tilvistarkreppu sem hann hefur mátt upplifa nú þegar hann hefur ekki leikið í vinsælli mynd í tíu ár. Bíó og sjónvarp 13. nóvember 2008 03:15
Tilnefningar til Edduverðlauna 2008 Verðlaunin verða veitt í Háskólabíói sunnudagskvöldið 16. nóvember næstkomandi Bíó og sjónvarp 11. nóvember 2008 13:58
Karl tekur upp eftirstríðsmynd í Tékklandi „Ég hef unnið með leikstjóra myndarinnar,Tomás Masín, áður. Við höfum gert nokkrar auglýsingar saman hérna í Tékklandi. Hann hringdi í mig og bauð mér verkefnið og þetta var einfaldlega of gott tilboð til að hafna því,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Karl Óskarsson. Hann hefur undanfarna mánuði unnið að því að stjórna tökunum í tékknesku stórmyndinni Þrjár Árstíðir í Helvíti sem fram fara í Prag og víðar í Tékklandi. Bíó og sjónvarp 10. nóvember 2008 06:15
Miðnæturbörn á tjaldið Þær fregnir berast erlendis frá að skáldsaga Salmans Rushdie, Miðnæturbörn, sem upphaflega kom út árið 1981, verði fljótlega kvikmynduð. Bíó og sjónvarp 9. nóvember 2008 04:00
Gerir mynd um Obama Bandaríska sjónvarpsstöðin HBO hefur tryggt sér sýningarréttinn á nýrri heimildarmynd um Barack Obama, næsta forseta Bandaríkjanna. Fyrirtæki leikarans Edwards Norton, Class 5 Films, framleiðir myndina, en tökum lýkur ekki fyrr en Obama hefur svarið embættiseið sinn á næsta ári. Tökulið hefur fylgt Obama hvert fótspor frá árinu 2006, til að mynda er hann ferðaðist til Afríku og þegar hann tilkynnti um forsetaframboð sitt. Einnig hefur verið rætt við fjölskyldu Obama, vini og starfsfólk hans. Bíó og sjónvarp 8. nóvember 2008 07:00
Berst við glæpamenn Næsta mynd Kim Basinger, tryllirinn While She Was Out, kemur í bíó vestanhafs tólfta desember næstkomandi. Þar leikur hún eiginkonu í úthverfi nokkru sem lendir í því að hópur glæpamanna situr um hana á aðfangadag jóla. Berst hún fyrir lífi sínu eingöngu með verkfærabox að vopni. Bíó og sjónvarp 8. nóvember 2008 06:00
Endurgera Oldboy Leikstjórinn Steven Spielberg og leikarinn Will Smith ætla sér að endurgera suður-kóresku bíómyndina Oldboy sem kom út fyrir fimm árum við góðar undirtektir. Bíó og sjónvarp 8. nóvember 2008 04:00
Statham í lið með Stallone Breski harðjaxlinn Jason Statham hefur samþykkt að leika í næstu mynd Sylvester Stallone, The Expendables. Stallone mun leika aðalhlutverkið í myndinni, leikstýra henni og skrifa handritið. Líklega mun slagsmálahundurinn Jet Li einnig leika í myndinni. Bíó og sjónvarp 7. nóvember 2008 05:30
Framhald næsta sumar Kim Cattrall úr Sex and the City-þáttunum segir að til standi að kvikmynda framhald samnefndrar myndar á næsta ári. Bætti hún því við að erfitt væri að ná öllum leikurunum saman fyrir verkefnið vegna þess að þeir væru svo uppteknir. „Við ætlum að búa til framhaldið næsta sumar,“ sagði hún. Bíó og sjónvarp 7. nóvember 2008 05:00
Spielberg syrgir Crichton Leikstjórinn Steven Spielberg syrgir mjög rithöfundinn Michael Crichton, sem samdi skáldsögurnar Jurassic Park og The Lost World sem Spielberg kvikmyndaði við frábærar undirtektir. Chricton lést á þriðjudaginn úr krabbameini 66 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 7. nóvember 2008 04:30
Black í Putalandi Jack Black hefur tekið að sér aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd byggðri á hinni sígildu sögu Gúlliver í Putalandi eftir Jonathan Swift. Myndin fjallar um blaðamanninn Lemuel Gulliver sem er staddur í Bermúda þegar hann skyndilega upplifir sjálfan sig sem risa innan um íbúa hinnar földu eyjar Lilliput. Bíó og sjónvarp 7. nóvember 2008 04:00
Fastur í fangabúðum Kvikmyndaleikstjórinn Werner Herzog snýr aftur með enn eina myndina um óvenjuleg átök manns og náttúru. Myndin skartar stjörnunum Christian Bale og Steve Zhan í aðalhlutverkum. Bíó og sjónvarp 6. nóvember 2008 07:00