Allt niður í tveggja tíma fyrirvari á eldgosi Nýtt hættumat fyrir Svartsengi og Grindavík var birt síðdegis og er enn ekki talið óhætt að hleypa íbúum aftur til að dvelja á heimilum sínum. Þá verður ekki hægt að opna Bláa lónið að svo stöddu en staðan verður endurmetin eftir helgina. Innlent 8. desember 2023 18:36
Uppfæra hættumatskort í Grindavík Umbrotahrinunni sem hófst með landrisi við Svartsengi í október er ekki lokið samkvæmt nýrri færslu Veðurstofunnar. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi. Innlent 8. desember 2023 16:32
Myndaveisla: Grindvíkingar áttu hjartnæma stund saman Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur. Lífið 7. desember 2023 22:47
Aftur skólaskylda fyrir grindvísk börn Skólaskylda mun aftur taka gildi fyrir börn frá Grindavík þann 4. janúar. Það er eftir að undanþága var veitt vegna rýmingar bæjarins. Innlent 7. desember 2023 21:16
Varnargarðar víða komnir upp í endanlega hæð Vinna við varnargarðana á Reykjanesi gengur vel. Búið er að flytja að mestu efni úr nærliggjandi námum og er nú nær eingöngu unnið með efni af svæðinu. Verklok munu skýrast á næstu tveimur vikum. Innlent 7. desember 2023 17:00
Leita logandi ljósi að húsnæði fyrir hundrað grindvísk börn Um 380 Grindvíkingar, þar á meðal hundrað börn, eru ekki með öruggt húsnæði yfir jólahátíðina. Bæjarstjórinn segir allt gert til að finna húsnæði fyrir fólkið til lengri tíma. Aðventugleði Grindvíkinga fer fram síðdegis. Innlent 7. desember 2023 11:20
Minni líkur á eldgosi en fleiri kvikuhlaup enn líkleg Líkur á eldgosi yfir kvikuganginum sem myndaðist 10. nóvember hafa minnkað verulega. Enn er önnur hætta áfram til staðar á umbrotasvæðinu. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og er líklegt að atburðarásin endurtaki sig. Innlent 6. desember 2023 15:10
Ákveðnar sprungur mögulega varðveittar Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að fresta viðgerð á ákveðnum sprungum í bænum. Það verði ákveðið síðar hvort að þeim verði leyft að vera sem einskonar minnisvarða um náttúruhamfarirnar þann 10. nóvember síðastliðinn. Innlent 6. desember 2023 11:45
Dýrmætum munum Guðbergs og Kjarvalsverkum bjargað frá Grindavík Menningarlegum verðmætum, sem voru stödd í Grindavík, var bjargað úr bænum á dögunum. Á meðal þess sem var bjargað voru munir sem voru í eigu Guðbergs Bergssonar og málverk eftir Jóhannes Kjarval. Innlent 5. desember 2023 18:00
Útilokar ekki að leita réttar síns: „Hafna því alfarið að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki átta sig á hvers vegna forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafi kvartað formlega undan framgöngu hans í mótmælum gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Hann útilokar ekki að leita réttar síns vegna málsins. Innlent 5. desember 2023 09:55
Náðist ekki að láta vita af Grindvíkingum í eitt skipti Hátt í þrjúhundruð félagsmenn Eflingar fengu bókanir sínar á orlofsbústað félagsins felldar niður þegar félagið bauð Grindvíkingum bústaðina eftir að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember síðastliðinn. Greiðlega gekk að ná í félagsfólk til að láta vita, utan eins skiptis. Innlent 5. desember 2023 06:17
Kvika virðist hætt að streyma í kvikuganginn Kvika virðist hætt að streyma inn í kvikuganginn á Reykjanesi. Hún safnast nú saman undir Svartsengi á hraða sem svipar til streymis Elliðaáa. Prófessor í jarðeðlisfræði segir að líkur á eldgosi hafi minnkað þrátt fyrir að ekki sé hægt að afskrifa það. Innlent 4. desember 2023 12:18
Íbúar mega vera til klukkan 17 og starfsmenn fyrirtækja til 21 Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður áfram hleypt inn í Grindavík í dag, eins og verið hefur. Íbúar geta verið í bænum á milli klukkan 7 og 17 og atvinnurekstur má vera í gangi til klukkan 21. Innlent 4. desember 2023 09:16
Nýr kafli hafinn á Reykjanesi Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga fer áfram minnkandi og flestir skjálftarnir undir einum að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni í dag. Innlent 1. desember 2023 17:39
Gáfu bílskúrsfylli af dósum til Grindavíkur Þrír ungir drengir skiluðu í gær hundrað þúsund krónum til Rauða krossins eftir mikla dósasöfnun í Laugardalnum. Móðir eins þeirra segir að bílskúr hafi verið orðinn troðfullur af dósum eftir söfnunina. Lífið 1. desember 2023 14:45
Fékk sama fjölda í hádegismat og fyrir skjálftana Veitingamaður í Grindavík opnaði veitingastað sinn í fyrsta skipti eftir rýmingu bæjarins í dag. Hann fékk um 150 manns í hádegismat. Innlent 30. nóvember 2023 22:16
Bjuggust ekki við 25 metra djúpri holu 25 metra djúp hola sem nær niður í grunnvatn kom í ljós í íbúðargötu í Grindavík í dag. Ljóst er að jarðvegur er enn á hreyfingu í bænum. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Innlent 30. nóvember 2023 21:48
Orkuverið í Svartsengi aftur tengt Landsnet tilkynnti rétt í þessu að orkuverið í Svartsengi sé aftur tengt inn á flutningskerfið. Svartsengislína 1, línan á milli Svartsengis og Rauðamels hafði verið tekin út fyrr í dag. Innlent 30. nóvember 2023 20:14
Drónaflug áfram bannað við Grindavík Vegna jarðhræringa í nálægð Grindavíkur hefur áður útgefið flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum. Innlent 30. nóvember 2023 18:35
Lífeyrissjóðir þráist við Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag. Innlent 30. nóvember 2023 13:00
Unnið að lausn hjá lífeyrissjóðum fyrir Grindvíkinga Landssamtök lífeyrissjóða segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn með aðkomu lífeyrissjóðanna sem sagt er að þurfi að rúmast innan ramma laga. Innlent 30. nóvember 2023 08:52
Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun. Viðskipti innlent 29. nóvember 2023 22:27
Of snemmt að ræða það að hleypa Grindvíkingum heim Fulltrúar Veðurstofu Íslands fóru til Grindavíkur í dag að meta aðstæður þar. Jarðeðlisfræðingur segir sláandi að sjá hvernig jarðhræringar hafa farið með heimili Grindvíkinga. Þá segir hann of snemmt að ræða það að hleypa íbúum aftur heim. Innlent 29. nóvember 2023 21:50
Mesta eignartjón síðan í Suðurlandsskjálftanum Að minnsta kosti um tuttugu hús eru talin ónýt í Grindavík eftir jarðskjálftana. Matsmenn eru enn að störfum og því gætu fleiri hús verið metin óíbúðarhæf. Forstjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands segir um mesta eigntjón að ræða síðan í Suðurlandskjálftunum árið 2008. Innlent 29. nóvember 2023 12:07
Áfram líkur á eldgosi Áfram eru líkur á eldgosi á Reykjanesskaga og er líklegasti staðurinn ef til þess kemur austan Sýlingarfells. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni. Innlent 29. nóvember 2023 11:21
Breytt afkomuspá vegna jarðhræringa: Hlutir hafi verið teknir úr samhengi Flugfélagið Play hefur tilkynnt að afkomuspá fyrir árið eigi ekki lengur við. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á eftirspurn til skemmri tíma orsaki það. Viðskipti innlent 28. nóvember 2023 18:50
Toppur Keilis hreyfst og varasamar sprungur myndast Lögreglan á Suðurnesjum segir varasamt að ganga á Reykjanesskaganum eftir jarðhræringar á svæðinu. Sprungur hafi myndast víða og toppur Keilis hafi færst til. Innlent 28. nóvember 2023 18:36
Byrjað að fylla í sprunguna Framkvæmdir við sprunguna sem varð til við jarðhræringarnar í Grindavík eru hafnar við Austurveg. Tækja- og vélamaður hjá Grindavíkurbæ segir lagnirnar líta mjög vel út miðað við það sem reiknað var með. Innlent 28. nóvember 2023 18:18
Þýðingarmikið að sjá líf kvikna í Grindavík Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Arctic Saga, og Jóhann Vignir Gunnarsson sem sér um markaðsmál hjá Þorbirni hf. í Grindavík mættu til vinnu í fiskvinnslu í Grindavík í dag. Þeir segja flesta jákvæða en skjálfta í mörgum. Viðskipti innlent 28. nóvember 2023 17:01
Ljótar sprungur en lítur miklu betur út en hann ímyndaði sér Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir Grindavík líta mun betur út en hann bjóst við. Nú þurfi Grindvíkingar að laga innviði svo að bærinn verði aftur íbúðarhæfur. Innlent 28. nóvember 2023 15:36