Lýsti áhyggjum af stöðu ferðaþjónustunnar á Alþingi Þingflokksformaður Viðreisnar segir óljóst hvernig stjórnvöld ætli að bregðast við vanda ferðaþjónustunnar takist ekki að bólusetja meirihluta þjóðarinnar fyrir sumarið. Ferðamálaráðherra segir stjórnvöld standa með ferðaþjónustunni en þróun í faraldursins í öðrum löndum ráði einnig miklu. Innlent 21. janúar 2021 12:21
Bannað að leigja út bústaði í Þingvallaþjóðgarði í gegnum Airbnb Þingvallanefnd hefur ákveðið að bannað verði að leigja út sumarbústaði sem eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum í gegnum Airbnb eða aðrar sambærilegar leigur. Nefndin samþykkti að slíkt ákvæði færi inn í lóðaleigusamninga á fundi í desember. Ákvæðið gildir til næstu tíu ára. Innlent 21. janúar 2021 06:59
Hlutafé Isavia aukið vegna rekstrartaps í kreppunni Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn. Hlutafjáraukningunni er ætlað að mæta rekstrartapi vegna COVID-19. Innlent 19. janúar 2021 12:26
Icelandair setur Iceland Travel í sölu Icelandair Group hefur ákveðið að hefja söluferli á dótturfélagi sínu, Iceland Travel. Félagið segir markmiðið í söluferlinu að hámarka virði fyrirtækisins og tryggja á sama tíma hagsmuni starfsfólks og íslenskrar ferðaþjónustu. Innlent 19. janúar 2021 10:04
Segir nýjar reglur á landamærum auka fyrirsjáanleika í ferðaþjónustu Áætlun stjórnvalda um að koma á litakóðakerfi á landamærunum eykur fyrirsjánaleika ferðaþjónustunnar fyrir sumarið. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það mikilvægt skref að búið sé að svara ákalli ferðaþjónustunnar. Innlent 15. janúar 2021 18:48
Úlla Árdal yfirgefur RÚV og kynnir náttúruperlur Úlla Árdal hefur verið ráðin í starf markaðs- og þróunarstjóra Mývatnsstofu og hóf störf þann 5. janúar. Þar mun hún sinna verkefnum sem er ætlað að styðja við uppbyggingu innviða í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit með það að markmiði að gera svæðið ákjósanlegra til búsetu og fjárfestinga. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 16:52
Brottförum fækkaði um eina og hálfa milljón árið 2020 Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 480 þúsund árið 2020 eða um 1,5 milljón færri en árið 2019, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 75,9 prósent. Ekki hafa svo fáar brottfarir mælst í tíu ár, að því er segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Innlent 12. janúar 2021 13:04
Óttast „glatað sumar“ vegna tvöfaldrar skimunar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skipta sköpum fyrir ferðaþjónustuna að fólk sé ekki skyldað til þess að vera í sóttkví milli skimana og er hún ekki hrifin af þeirri hugmynd að einhverjir gætu verið skyldaðir í farsóttahúsið ef þeir greinist með tiltekið afbrigði veirunnar. Hún efist um að það sé lagaheimild fyrir slíkum aðgerðum. Innlent 10. janúar 2021 21:41
Umdeilt ferðamannaþorp háð umhverfismati þvert á fyrri niðurstöðu Umdeilt ferðamannaþorp sem malasíski fjárfestirinn Loo Eng Wah hyggst reisa á jörðunum Leyni 2 og 3 í Rangárþingi ytra er háð umhverfismati. Viðskipti innlent 5. janúar 2021 11:41
Viðspyrna okkar allra 2021 Endurkoma erlendra ferðamanna er það sem hraðast kemur okkur út úr þeirri kreppu og atvinnuleysi sem Covid-19 skilur eftir sig. Öflug og hnitmiðuð markaðssókn fyrir Ísland er málið. Skoðun 5. janúar 2021 10:00
Ferðaþjónustan allt að fjögur ár að ná sér á strik Ferðaþjónustan mun líklega ekki ná að vinna sig upp úr áfalli síðasta árs fyrr en að þremur til fjórum liðnum, að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Landsmenn vilja ekki að mikið fleiri ferðamenn komi til landsins en þeir voru fyrir kórónuveirufaraldurinn samkvæmt könnun sem fréttastofa lét gera fyrir áramót. Viðskipti innlent 4. janúar 2021 18:46
Færri gjaldþrot en óttast var Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segist búast við því að atvinnuleysi haldist svipað um áramót. Hún á ekki von á því að ástandið batni í fyrsta mánuði næsta árs, en enn eigi eftir að spá fyrir um vormánuðina. Viðskipti innlent 30. desember 2020 19:40
Skúli ætlar að opna sjóböð í Hvammsvík Athafnamaðurinn Skúli Mogensen stefnir á að snúa aftur í íslenska ferðaþjónustu með því að opna sjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði. Viðskipti innlent 30. desember 2020 08:18
Rekin þrisvar úr menntaskóla Vilborg Arna Gissurardóttir er fyrsta konan í heiminum til að ganga ein á skíðum á Suðurpólinn og klífa ein tind yfir 8000 metra. Á göngu á Hvannadalshnjúk árið 2002 setti hún sér það markmið að ganga á Suðurpólinn. Viðskipti innlent 29. desember 2020 13:31
Úr háum snúningi ferðaþjónustunnar yfir í lágan snúning skíðalyftunnar Það styttist óðum í að hægt verði að fara aftur á skíði á skíðasvæðinu við Kröflu eftir margra ára hlé, þökk sé sjálfboðaliðum sem vilja ólmir komast á skíði í sveitinni. Innlent 28. desember 2020 13:00
Árið 2020 í myndum Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi. Innlent 25. desember 2020 16:03
Víglínan á hálendinu og í innflutningi landbúnaðarvara Ekki er eining innan stjórnarflokkanna um frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra sem enn er í nefnd eftir fyrstu umræðu í lok desember. Þá má finna andstöðu við frumvarpið víða utan þings eins og innan sveitarstjórna, þótt almennt sé mikill stuðningur við það í samfélaginu að stofnaður verði hálendinsþjóðgarður. Innlent 20. desember 2020 16:30
Harpa og Isavia fá ríkisaðstoð ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkti í dag ríkisaðstoð Íslands til Hörpu og Isavia vegna tjóns af völdum kórónuveirufaraldursins. Harpa mun fá beinan 400 milljón króna styrk en tjón Isavia verður bætt með auknu hlutafé. Viðskipti innlent 18. desember 2020 11:42
Landsbankinn með þriðjungshlut í Keahótelum eftir endurskipulagningu Samkomulag hefur náðst um endurskipulagningu Keahótela sem er sagt tryggja félaginu stöðugan rekstrargrundvöll til ársins 2022. Í samkomulaginu felst að hluta skulda hefur verið breytt í hlutafé, að Landsbankinn eigi nú þriðjungs hlut í félaginu, og að núverandi eigendahópur hafi komið með nýtt fé inn í reksturinn. Þá hafi leigusalar gert samkomulag um veltutengdar leigugreiðslur, sem eru þó með ákveðnu lágmarksgólfi. Viðskipti innlent 16. desember 2020 10:28
Hyggja á gjaldtöku á bílastæðinu við Reykjadal Hveragerðisbær hyggst hefja gjaldtöku á bílastæðinu á Árhólum þar sem göngufólk leggur jafnan bílum sínum þegar gengið er upp í Reykjadal. Viðskipti innlent 14. desember 2020 08:47
Frekari styrkir standa ekki til Ferðamálaráðherra segir ekki á döfinni að stjórnvöld komi frekar til móts við ferðaþjónustufyrirtæki með styrkjum. Viðskipti innlent 13. desember 2020 20:30
Sprengisandur: Málefni barna, miðhálendisþjóðgarður og fjárlög Sprengisandur er á dagskrá í dag líkt og alla sunnudaga klukkan 10. Innlent 13. desember 2020 09:12
Staðfestir það sem samtökin óttuðust Tveir þriðju fyrirtækja í ferðaþjónustu standa nú frammi fyrir ósjálfbærri skuldsetningu og munu gera á næsta ári, samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Ferðamálastofu sem birt var í desember. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu segir skýrsluna staðfesta það sem samtökin óttuðust. Viðbúið sé að fjöldi fyrirtækja sé á leið í gjaldþrot. Innlent 12. desember 2020 18:56
Icelandair gæti átt erfitt með að manna vélar ef eftirspurn eykst Icelandair hefur lítið svigrúm til að bregðast við aukinni eftirspurn á nýju ári að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Ástæðan sé sú að félagið verði að óbreyttu með mjög fáa flugmenn í vinnu í byrjun nýs árs að því er fram kemur í frétt á vef Túrista. Félagið geti aðeins mannað tvær til fimm farþegaþotur eftir áramót. Viðskipti innlent 12. desember 2020 16:22
Fimm mánaða senuþjófur þegar mamma segir frá sveitahótelinu Fimm mánaða drengur í Önundarfirði stelur senunni þegar mamma hans er í viðtali á Stöð 2 að segja frá því þegar fjölskyldan á bænum Tröð í Bjarnadal gerði upp gamla barnaskólann í Holti og breytti í sveitahótel. Lífið 12. desember 2020 08:28
Hætta á að erlend stórfyrirtæki gleypi ferðaþjónustumarkaðinn Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á því að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum sem áður versluðu við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki. Viðskipti innlent 11. desember 2020 23:31
Hættan sem blasir við ferðaþjónustunni Í ferðaþjónustu gildir að sjálfsögðu það sama og í öðrum viðskiptum, að mestu tekjurnar skila sér í beinu viðskiptasambandi milli þjónustuveitanda og viðskiptavinar. Með öðrum orðum, að gesturinn kaupi gistinguna, flugfarið, afþreyinguna eða veitingarnar beint af viðkomandi aðila. Skoðun 11. desember 2020 11:00
Prúðbúinn kaupmaður í fornri verslun selur bækur eftir vigt Í húsi sem reist var árið 1898 á Flateyri við eina elstu götumynd Íslands býður kaupmaðurinn Eyþór Jóvinsson viðskipatvini velkomna í elstu upprunalegu verslun landsins, uppáklæddur að hætti heldri manns frá gamalli tíð. Innlent 10. desember 2020 09:57
Tækifæri ferðaþjónustu í hálendisþjóðgarði Tilefni þessa greinarstúfs er skoðun úr Borgarbyggð þar sem því er haldið fram að stofnun hálendisþjóðgarðs muni hafi neikvæð áhrif á ferðaþjónustu. Fyrir utan það að sú skoðun er ekki studd neinum gögnum, þá er hún einnig byggð á frekar úreltum sjónarmiðum er kemur að hugmyndum um þjóðgarða. Skoðun 9. desember 2020 14:31
Hollandsflug frá Akureyri blásið af í vetur Ekkert verður af fyrirhuguðum flugferðum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel í vetur til og frá Akureyri, líkt og áætlað var. Viðskipti innlent 9. desember 2020 13:15