Golfskóli Birgis Leifs: Einföld æfing til að bæta miðið Í þessum kennsluþætti úr Golfskóla Birgis Leifs fer atvinnukylfingurinn yfir einfalda æfingu til þess að bæta miðið hjá kylfingum. Birgir Leifur bendir á nokkrar algengar villur sem eru ríkjandi hjá mörgum kylfingum og lausnin er frekar einföld eins og sjá má í myndbrotinu. Kennsluefnið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 11. júlí 2011 14:30
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að miða í pútti? Það er mikið um að vera á golfvöllum landsins þar sem að meistaramótin eru í þann mund að hefjast hjá mörgum kylfingum. Góð ráð frá margföldum Íslandsmeistara í golfi gætu komið sér vel fyrir flesta kylfinga og í þessum kennsluþætti fer Birgir Leifur Hafþórsson yfir það hvernig best er að miða í púttum á flöt. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 11. júlí 2011 12:30
Stricker tryggði sér sigur með mögnuðu pútti Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli. Þetta er þriðja árið í röð sem Stricker vinnur þetta mót en hann lék samtals á 22 höggum undir pari og er þetta 11. sigur hans á PGA mótaröðinni. Stricker fékk fugl á 17., og 18. braut og var hann einu höggi betri en Kyle Stanley sem var ansi nálægt því að fá fugl á lokaholunni. Golf 11. júlí 2011 10:00
Fyrsta par 6 hola landsins í bígerð Svo gæti farið að fyrsta par 6 hola á landinu verði á Víkurvelli sem staðsettur er í Vík í Mýrdal. Í dag er völlurinn níu holur, en gert er ráð fyrir 18 holu golfvelli í nýju aðalskipulagi Mýrdalshrepps samkvæmt heimasíðunni, www.vik.is/golf. Golf 11. júlí 2011 07:30
Donald tryggði sér 100 milljónir kr. með öruggum sigri í Skotlandi Luke Donald sigraði með nokkrum yfirburðum á opna skoska meistaramótinu í golfi á Evrópumótaröðinni sem lauk í dag. Enski kylfingurinn hefur nú sigrað á þremur atvinnumótum á þessu ári en hann er í efsta sæti heimslistans og til alls líklegur á opna breska meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn. Donald lék samtals á -19 en hann lék lokahringinn á 63 höggum, eða -9, og gerði engin mistök. Golf 10. júlí 2011 23:30
Nicklaus: McIlroy á langt í land í að verða sá besti Sigursælasti kylfingur allra tíma, Jack Nicklaus, telur að Rory McIlroy þurfi að halda vel á spöðunum til þess að eiga möguleika á því að sigra Opna Breska Meistaramótið í golfi sem hefst í næstu viku. Golf 10. júlí 2011 20:30
Golflandsliðin töpuðu bæði gegn Ítalíu Íslensku landsliðin í golfi töpuðu viðureignum sínum á EM áhugamanna í golfi í gær. Íslenska kvennalandsliðið sem spilar í Austurríki beið lægri hlut gegn Ítalíu, 2:3. Signý Arnórsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir unnu sína leiki í tvímenningi. Golf 9. júlí 2011 07:00
EM í golfi: Ísland þarf að vinna Ítalíu Íslenska karlalandsliðið í golfi þarf að vinna Ítalíu í dag til þess að halda keppnisrétti sínum á næsta Evrópumeistaramóti áhugamanna. Ísland tapaði í gær, 4-1, gegn Norðmönnum í B-riðli keppninnar en í þeim riðli leika þjóðirnar sem enduðu í 9.-16. sæti eftir höggleikinn á mótinu sem fram fer í Portúgal. Golf 8. júlí 2011 06:00
Læknir Tiger Woods játar sök í lyfjahneykslismáli Kanadíski læknirnir Anthony Galea hefur játað að hafa smyglað ólöglegum lyfjum til Bandaríkjanna. Galea sem starfar í Toronto í Kanada hefur haft íþróttamenn á borð við Tiger Woods og hafnarboltastjörnuna Alex Rodriguez á sínum snærum. Golf 7. júlí 2011 13:00
Guðmundur og Ólafur í 4. sæti á EM - Ísland mætir Noregi í dag Íslenska karlalandsliðið í golfi mætir Norðmönnum í dag í fyrstu umferð í B-riðli á Evrópumeistaramóti áhugakylfinga sem fram fer í Portúgal. Íslendingar enduðu í 10. sæti eftir höggleikinn sem fram fór fyrstu tvo keppnisdagana. Samtals lék íslenska liðið á 2 höggum undir pari en Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR fór á kostum í gær þegar hann lék á 5 höggum undir pari eða 67 höggum. Guðmundur og Ólafur Björn Loftsson deildu fjórða sætinu í einstaklingskeppninni á samtals -6 höggum undir pari. Golf 7. júlí 2011 09:45
Íslenska kvennaliðið í B-riðil Íslenska kvennalandsliðið í golfi hafnaði í 14. sæti á Evrópumóti landsliða en mótið fer fram í Austurríki. Liðið fer því í B-riðil. Golf 6. júlí 2011 19:47
Golfskóli Birgis Leifs: Sláðu boltann úr torfufari Kylfingar lenda oft í því að fá ekki góða legu á boltann þrátt fyrir að vera á braut. Birgir Leifur Hafþórsson sýnir í þessum kafla m.a. aðferð til þess að slá boltann úr torfufari. Golf 5. júlí 2011 20:30
Ólafur Björn lék frábært golf á EM - Ísland í góðri stöðu Ólafur Björn Loftsson lék frábært golf á fyrsta keppnisdegi Evrópumeistaramóts áhugamanna sem fram fer í Portúgal. Ólafur lék á 66 höggum eða 6 höggum undir pari og er hann í þriðja sæti í einstaklingskeppninni. Íslenska landsliðið er í 9. sæti af alls 20 þjóðum sem taka þátt á 4 höggum undir pari samtals. Golf 5. júlí 2011 18:56
Konurnar byrjuðu illa á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golf lék ekki vel á fyrsta keppnisdeginum á Evrópumeistaramóti áhugakylfinga sem fram fer í Austurríki. Fimm bestu skorin af alls sex gilda í höggleiknum fyrstu tvo keppnisdagana og er Ísland í 17. sæti af allls 20 liðum. Samtals er Ísland á +17 höggum yfir pari en Danir eru í sérflokki í efsta sæti á -15. Golf 5. júlí 2011 18:30
Tiger Woods verður ekki með á opna breska Tiger Woods hefur ákveðið að taka ekki þátt á opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Royal St. George's vellinum í næstu viku. Bandaríski kylfingurinn hefur ekkert keppt að undanförnu vegna meiðsla og í dag gaf hann það út að hann yrði ekki með á stórmótinu. Golf 5. júlí 2011 17:30
Rory McIlroy er með frábært æfingasvæði í bakgarðinum Norður –Írinn Rory McIlroy hefur vakið gríðarlega athygli frá því hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum. Hinn 22 ára gamli kylfingur veit vart aura sinna tal eftir velgengnina undanfarin ár og hann hefur látið útbúa magnað æfingasvæði í bakgarðinum á heimili sínu. Golf 4. júlí 2011 23:48
Kvennalandsliðið í golfi hefur keppni á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Alls hafa 20 þjóðir keppnisrétt á þessu móti og fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik. Að því loknum er þjóðunum skipt í þrjá riðla eftir skori – og holukeppni ræður úrslitum um lokastöðuna á síðustu tveimur keppnisdögunum. Golf 4. júlí 2011 20:30
Golfskóli Birgis Leifs: Takturinn er mikilvægur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir hve mikilvægt það er að vera með góðan takt í golfsveiflunni. Birgir sýnir æfingar sem flestir kylfingar geta nýtt sér en þær eru úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 4. júlí 2011 19:00
Golfíþróttin þarf á Tiger að halda - aðsóknin hrundi á AT&T Það er alveg ljóst að golfíþróttin þarf á Tiger Woods að halda en hann hefur verið fjarverandi að undanförnu vegna meiðsla. Woods var ekki með á AT&T meistaramótinu sem lauk á sunnudaginn en hann vann það mót árið 2009. Í ár vantaði um 40.000 áhorfendur á mótið miðað við í fyrra og er fækkunin um 22%. Golf 4. júlí 2011 18:15
Íslenska karlandsliðið hefur leik á EM á morgun Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Portúgal. Alls eru 20 þjóðir sem eru með keppnisrétt á þessu móti. Golf 4. júlí 2011 17:30
Birgir Leifur úr leik í Svíþjóð Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi karla, er úr leik að loknum niðurskurði á áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð. Birgir leifur lék annan hringinn á sex höggum yfir pari. Golf 1. júlí 2011 18:38
Birgir lék á 73 höggum á fyrsta keppnisdegi í Svíþjóð Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi karla, lék á einu höggi yfir pari á fyrsta keppnisdegi á áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð. Birgir lék á 73 höggum en hann hóf leik á 10. braut og fékk fugl á 12. sem var þriðja hola dagsins. Golf 30. júní 2011 13:00
Fær draumahöggið á par 4 holu ekki viðurkennt Kylfingurinn Ragnar Davíð Riordan, klúbbmeistari Golfklúbbs Vatnsleysustrandar, getur sagt afkomendum sínum góða sögu af eftirminnilegu golfhöggi sem hann sló á 6. braut á Garðavelli á Akranesi síðastliðinn laugardag. Golf 30. júní 2011 09:00
Fátt bendir til þess að Tiger taki þátt í opna breska Það er enn óljóst hvort Tiger Woods tekur þátt í opna breska meistaramótinu í golfi sem hefst þann 14. júlí. Tiger hefur verið frá vegna meiðsla síðan í maí og er ekki enn orðinn góður. Golf 29. júní 2011 10:30
Tinna vann upp forskot Valdísar á lokadeginum Tinna Jóhannsdóttir úr Keili vann upp sex högga forskot Valdísar Þóru Jónsdóttur úr Leyni á lokakeppnisdegi Eimskipsmótaraðarinnar í golfi. Tinna lék Hvaleyraholtsvöllinn á 70 höggum eða -1 í dag og var samtals á 7 höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Valdís Þóra varð önnur á +8 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK varð þriðja á +9. Golf 26. júní 2011 20:08
Haraldur Franklín sigraði Guðmund í bráðabana Mikil spenna var á lokadegi Eimskipsmótaraðarinnar á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag þar sem að úrslit réðust í karlaflokki í bráðbana. Haraldur Franklín Magnús úr GR tryggði sér sigur í bráðabana gegn Guðmundi Ágústi Kristjánssyni sem er einnig úr GR. Golf 26. júní 2011 19:51
Guðmundur Ágúst í forystu eftir frábæran dag Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, er í forystu í Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi eftir að hafa spilað frábært golf í dag. Golf 25. júní 2011 20:02
Valdís Þóra með örugga forystu Valdís Þóra Jónsdóttir jók forystu sína á öðrum keppnisdegi þriðja stigamóts ársins í Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Golf 25. júní 2011 18:17
Andri Már og Valdís Þóra leiða Þriðja stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi hófst í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Ungir kylfingar gáfu tóninn í karlaflokknum þar sem að Andri Már Óskarsson úr GHR á Hellu lék best allra á 68 höggum eða 3 höggum undir pari. Golf 25. júní 2011 07:00
Myndband af Rory McIlroy í spjallþætti frá árinu 1999 Rory McIlroy er heitasta nafnið í golfinu þessa dagana eftir að hinn 22 ára gamli Norður-Íri sigraði á opna bandaríska meistaramótinu. Tiger Woods þarf að sætta sig við að sitja í skugganum af McIlroy þessa stundina. Golf 23. júní 2011 13:30