G. Sigríður vill annað sætið í Norðvestur G. Sigríður Ágústsdóttir hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík. Innlent 17. október 2024 14:56
Taktu þátt í lýðræðinu með okkur Alþingiskosningar eru í nánd og flokkar keppast nú við að undirbúa baráttuna framundan. Píratar tóku strax þá ákvörðun að halda prófkjör í öllum kjördæmum – ólíkt öðrum flokkum – enda teljum við okkur ekki geta gefið afslátt af lýðræðinu. Skoðun 17. október 2024 14:47
Lárus leiðir uppstillingarnefnd Framsóknar í Reykjavík Lárus Sigurður Lárusson lögmaður leiðir kjörnefnd í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Framsóknarflokkinn. Með honum í nefndinni eru þau Haukur Logi Karlsson, Fanný Gunnarsdóttir, Ásta Björg Ólafsdóttir, Teitur Erlendsson, Björn Ívar Björnsson og Unnur Þöll Benediktsdóttir Innlent 17. október 2024 14:45
Bjarni hættur í Vinstri grænum Bjarni Jónsson þingmaður hefur sagt sig úr Vinstri grænum og sagt skilið við þingflokkinn. Hann segir flokkinn hafa sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Innlent 17. október 2024 14:44
Hætt hjá SFS og til liðs við Miðflokkinn Laufey Rún Ketilsdóttir er hætt sem upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og hefur gengið til liðs við Miðflokkinn. Innlent 17. október 2024 14:40
Forsetaframbjóðandi vill leiða lista Pírata Viktor Traustason, sem bauð sig fram í forsetakosningunum í júní síðastliðinn, hefur boðið sig fram í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi. Innlent 17. október 2024 13:16
Alma Möller skellir sér í pólitíkina Alma Möller landlæknir hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 17. október 2024 13:13
Píratar halda prófkjör Kjörstjórn Pírata fyrir alþingiskosningar 2024 hefur boðað til prófkjörs dagana 20.–22. október næstkomandi þar sem kosið verður um sæti á framboðslista flokksins í öllum kjördæmum. Innlent 17. október 2024 12:56
Rósa sækist eftir þriðja sætinu Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði gefur kost á sér í 3. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Rósa sagði í gær í samtali við Vísi vera að íhuga málið alvarlega. Innlent 17. október 2024 12:44
Starfsstjórn með minnihluta á Alþingi tekur við síðdegis Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem mynduð var í apríl verður formlega leyst frá völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag, tveimur dögum eftir að forseti Íslands samþykkti lausn hans og annarra ráðherra þeirrar ríkisstjórnar úr embætti og skipaði alla ráðherrana í starfsstjórn. Ný minnihluta-starfsstjórn tekur við völdum á Bessastöðum síðdegis. Innlent 17. október 2024 12:13
Jón Magnús gefur kost á sér Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Innlent 17. október 2024 12:02
Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar. Innlent 17. október 2024 11:38
„Loksins er lokið lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar“ Forsætisráðherra tilkynnti um þingrof og kosningar á þingi í dag. Formaður Miðflokksins sagði dauðastríði ríkisstjórnarinnar loks lokið og formenn annarra stjórnarandstöðuflokka sögðu kosningarnar tækifæri til breytinga. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði erindi ríkisstjórnarinnar lokið og formaður Vinstri grænna sagði hann óhæfan til að leiða ríkisstjórn. Innlent 17. október 2024 11:22
Áslaug Arna vill halda sæti sínu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Innlent 17. október 2024 11:14
Stefnir á áframhaldandi þingsetu Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, stefnir á áframhaldandi þingsetu. Hann segist eiga eftir að taka samtalið við félaga sína í Sjálfstæðsflokknum í Reykjavík en að hann muni áfram bjóða fram krafta sína. Innlent 17. október 2024 10:28
Lenya vill forystusæti hjá Pírötum í Reykjavík Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavíkurkjördæmunum. Það tilkynnti Lenya á Facebook í færslu í gær. Hún hefur síðustu þrjú ár sinnt varaþingmennsku fyrir flokkinn en segir tíma til kominn að hleypa nýju fólki að borðinu. Innlent 17. október 2024 10:09
Jens Garðar í 1. sæti Næstu helgi er ögurstund hjá Sjálfstæðisflokknum. Í öllum kjördæmum göngum við Sjálfstæðismenn til þeirra verka að velja okkur merkisbera í komandi kosningum. Þar ber okkur skylda til að hugsa um það fyrst og fremst hvaða fólki við treystum til að fylgja stefnu okkar og boða hana á þann hátt að kjósendur geti sameinast um hana. Skoðun 17. október 2024 10:01
Varaþingmaður vill þriðja sætið Ingveldur Anna Sigurðardóttir, lögfræðingur og varaþingmaður, vill þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Innlent 17. október 2024 10:00
Þingrof og kosningar á dagskrá þingsins Þingfundur hefst klukkan 10.30 í dag. Á dagskrá fundarins er tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar þann 30. nóvember. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 17. október 2024 09:56
Ólafur vill leiða listann Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi gefur kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Norðvesturlandi. Áður hefur Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnt að hann sækist eftir sama sæti. Innlent 17. október 2024 08:15
Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Reikna má með fjölmenni í Valhöll á sunnudaginn þegar hart verður barist um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar þann 30. nóvember næstkomandi. Formaður og varaformaður bjóða sig fram í tvö efstu sætin en reikna má með að varaformaðurinn fái harða baráttu um annað sætið. Sigur yrði risaskref í átt til formennsku en tap gæti sett frekari frama innan flokksins úr skorðum. Innlent 17. október 2024 00:13
Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins, sem kenndur er við Hamborgarabúlluna, hyggst gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Innlent 16. október 2024 23:15
Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu. Innlent 16. október 2024 22:46
Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykkti í kvöld einróma að haga vali á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum með uppstillingu. Innlent 16. október 2024 22:13
Oddný ætlar ekki aftur fram Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður flokksins, mun ekki sækjast eftir sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Innlent 16. október 2024 21:19
Minnihlutastjórn tekur væntanlega við völdum á morgun Allt útlit er fyrir að tveggja flokka minnihluta starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks taki við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á morgun. Þar með lýkur stjórnartíð ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar sem skipuð var í apríl, og eftir atvikum tveggja daga stjórn starfsstjórnar undir hans forsæti. Innlent 16. október 2024 21:11
Sigþrúður Ármann sækist eftir fjórða sæti Kragans Sigþrúður Ármann, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, býður sig fram í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Innlent 16. október 2024 20:37
Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ákvörðun sína um að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Bjarna Benediktssonar, vera skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar þar að kemur. Innlent 16. október 2024 18:17
Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið það út að hún sækist ekki eftir því að taka sæti á lista hreyfingarinnar yfir komandi Alþingiskosningar. Innlent 16. október 2024 17:45
Stemningin „eftir atvikum ágæt“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar. Innlent 16. október 2024 17:43