Guardiola ætlar ekki að breyta leikstíl Barcelona fyrir Real-leikina Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, ætlar ekki að breyta leikstíl Barcelona fyrir leikina á móti Real Madrid í Meistaradeildinni þátt fyrir að Barcelona hafi tapað 0-1 fyrir Real Madrid í bikarúrslitaleiknum í vikunni. Fótbolti 22. apríl 2011 21:15
Barcelona hefur ekki tapað leik í vetur með Puyol í liðinu Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er kannski mikilvægari fyrir Barcelona-liðið en flestir gera sér grein fyrir. Það er líklega engin tilviljun að allir fjórir tapleikir Barca á þessu tímabili hafa litið dagsins ljós þegar fyrirliðinn var fjarverandi. Fótbolti 22. apríl 2011 10:00
Varnarlína Barca veikist - Adriano frá í fjórar vikur Barcelona verður án brasilíska bakvarðarins Adriano næstu fjórar vikurnar eftir að hann meiddist í tapinu á móti Real Madrid í úrslitaleik spænska bikarsins í gær. Adriano meiddist í lok leiksins en var gagnrýndur í spænsku pressunni fyrir að missa af Cristiano Ronaldo þegar Portúgalinn skoraði eina mark leiksins í framlengingunni. Fótbolti 21. apríl 2011 22:00
Iniesta verður ekki í leikbanni gegn Real Madrid Andrés Iniesta leikmaður Barcelona verður ekki í leikbanni í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid eins og UEFA hafði lagt til. Iniesta fékk gult spjald í fyrri leiknum í 8-liða úrslitunum gegn Shaktar Donetsk – og taldi UEFA að hann hafi tafið leikinn vísvitandi til þess að vera í leikbanni í síðari leiknum gegn úkraínska liðinu og byrja með "hreint“ borð í undanúrslitum keppninnar. Sport 21. apríl 2011 13:15
Platini baðst afsökunar á háu miðaverði á úrslitaleikinn á Wembley Michel Platini forseti UEFA telur að miðaverðið á úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer á Wembley í maí sé of hátt og hann baðst afsökunar á miðaverðinu sem margir hafa gagnrýnt. Platini var í London í gær þar sem að Meistaradeildarbikarinn verður varðveittur fram að úrslitaleiknum en Frakkinn ætlar sér að lækka miðaverðið á úrslitaleiki Meistaradeildarinnar í framtíðinni. Sport 21. apríl 2011 10:30
Iniesta fær að spila gegn Real Andrés Iniesta, leikmaður Barcelona, verður ekki dæmdur í bann af Knattspyrnusambandi Evrópu og má því taka þátt í báðum undanúrslitaleikjunum gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 20. apríl 2011 14:19
Iniesta í skammarkrókinn hjá UEFA og fær eins leiks bann Andres Iniesta var á dögunum úrskurðaður í eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu þar sem að eftirlitsmenn UEFA telja að Barcelonaleikmaðurinn hafi vísvitandi fengið gult spjald í fyrri leiknum gegn Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Iniesta tók út leikbann í síðari leiknum í Úkraínu en UEFA hefur ákveðið að ákveðið að Iniesta verði einnig í leikbanni í fyrri leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum keppninnar og þeim úrskurði hafa forráðamenn Barcelona áfrýjað. Sport 19. apríl 2011 09:39
Ronaldo dreymir um að mæta Man. Utd í Meistaradeildinni Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, dreymir um að mæta sínu gamla félagi, Man. Utd, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 15. apríl 2011 10:45
Mourinho fyrir Barcelona-leikina: Æfir liðið í að spila manni færri Það kunna fáir betur að vinna sálfræðistríð fótboltans en einmitt Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, og nú er kappinn byrjaður að undirbúa sig, liðið sitt og ekki síst knattspyrnuheiminn fyrir leikina á móti Barcelona. Real og Barcelona mætast fjórum sinnum á næstu vikum og þar af eru tveir leikir í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 14. apríl 2011 13:00
Van Der Sar hljóp 64 metrum meira en Torres Það var ekki nóg með að Fernando Torres tækist ekki að skora í ellefta leiknum í röð í Chelsea-búningnum þá var ákefð hans ekki mikil í leiknum mikilvæga á móti Manchester United í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið. Fótbolti 14. apríl 2011 12:15
Redknapp vildi ekki gera Gomes að blóraböggli Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitaði að gagnrýna brasilíska markvörðinn Heurelho Gomes, þrátt fyrir að hann hafi fengið á sig mikið klaufamark í 0-1 tapi Tottenham á móti Real Madrid í gær í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 14. apríl 2011 11:45
Mourinho ver liðsval sitt Jose Mourinho segir að það hafi verið rétt hjá sér að stilla upp sínu sterkasta liði gegn Tottenham í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 13. apríl 2011 21:30
Redknapp: Verðum að vera aftur með á næsta ári Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hvatti sína menn til að sýna hvað í þeim býr og tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu aftur fyrir næsta tímabil. Fótbolti 13. apríl 2011 21:21
El Clásico fjórum sinnum á átján dögum Spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona munu á næstunni eigast við fjórum sinnum á aðeins átján daga tímabili. Óhætt er að segja um að veislu sé að ræða fyrir knattspyrnuunnendur víða um heim. Fótbolti 13. apríl 2011 18:45
Schalke sendi skýr skilaboð til Manchester Schalke komst áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með miklum stæl í kvöld. Liðið lagði Evrópumeistara Inter á heimavelli, 2-1, og 7-3 samanlagt. Fótbolti 13. apríl 2011 18:15
Meistaradeildarævintýri Tottenham á enda Real Madrid vann í kvöld 1-0 sigur á Tottenham og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Real vann samanlagðan 5-0 sigur en Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins í kvöld, þökk sé skelfilegra mistaka Huerelho Gomes í marki heimamanna. Fótbolti 13. apríl 2011 17:54
Mourinho: Tottenham verður að skora sex mörk til að slá út Real „Ég er mjög stoltur af því að við erum enn taplausir í Meistaradeildinni," sagði José Mourinho, þjálfari Real Madrid á blaðamannafundi fyrir seinni leik liðsins á móti Tottenham í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid vann fyrri leikinn 4-0 og aðeins stórslys kemur í veg fyrir að liðið komist í undanúrslitin á móti erkifjendum sínum í Barcelona. Fótbolti 13. apríl 2011 14:45
Harry Redknapp: Kraftaverkin gerast Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitar að gefa upp vonina að Tottenham komist áfram í Meistaradeildinni þrátt fyrir að liðið hafi tapað 0-4 í fyrri leiknum á móti Real Madrid. Seinni leikur liðanna fer fram á White Hart Lane í kvöld. Fótbolti 13. apríl 2011 14:15
Ferguson flýgur til Þýskalands í dag Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, vill ekkert staðfesta það að félagið sé búið að ganga frá kaupum á David de Gea, markverði Atletico Madrid. Edwin van der Sar leggur skóna á hilluna í vor og margir bíða spenntir eftir því hver verði eftirmaður hans í marki félagsins. Enski boltinn 13. apríl 2011 13:30
Sir Alex: Sá ekki hvernig þeir gátu byrjað með Torres á bekknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagðist hafa verið nokkuð viss um það að Fernando Torres yrði í byrjunarliði Chelsea í seinni leiknum á móti United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United tryggði sér sæti í undanúrslitunum með 2-1 sigri á Old Trafford í gær þar sem Torres var tekinn útaf í hálfleik. Fótbolti 13. apríl 2011 10:45
Giggs: Seinna markið kom á hárréttum tíma Ryan Giggs átti stóran þátt í því að Manchester United sló Chelsea út úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í undanúrslitin. Giggs lagði upp öll þrjú mörk United í leikjum þremur, sigurmarkið fyrir Wayne Rooney í fyrri leiknum og svo mörkin þeirra Javier Hernandez og Ji-Sung Park í gærkvöldi. Fótbolti 13. apríl 2011 10:15
Messi jafnaði 60 ára gamalt met Lionel Messi skoraði í gær sitt 48. mark á tímabilinu og jafnaði þar með 60 ára gamalt met á Spáni. Fótbolti 13. apríl 2011 06:00
Ancelotti: Þurfum að bíða eftir Torres Carlo Ancelotti segir að Manchester United hafi átt skilið að fara áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en United vann í kvöld 2-1 sigur á Chelsea í fjórðungsúrslitum keppninnar og 3-1 samanlagt. Fótbolti 12. apríl 2011 22:38
Giggs: Áttum þetta skilið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, átti góðan leik í kvöld en hann lagði upp bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12. apríl 2011 21:15
Barcelona kláraði skylduverkið Barcelona er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með 1-0 sigri á Shakhtar Donetsk á útivelli og því samanlagt, 6-1. Fótbolti 12. apríl 2011 18:15
Meistaradeildarmartröð Chelsea heldur áfram - United áfram Manchester United er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á Chelsea á heimavelli og 3-1 samanlagt. Javier Hernandez og Ji-Sung Park skoruðu mörk United í kvöld en Didier Drogba fyrir Chelsea. Fótbolti 12. apríl 2011 16:19
Tottenham bannar níðsöng um Adebayor Stuðningsmenn Tottenham verða undir ströngu eftirliti á morgun þegar liðið leikur gegn spænska liðinu Real Madrid í síðari leiknum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Tottenham tapaði fyrri leiknum 4-0 og þar skoraði Emmanuel Adebayor fyrrum leikmaður Arsenal tvívegis og það kunnu stuðningsmenn Tottenham ekki að meta. Fótbolti 12. apríl 2011 15:30
Berlusconi: Ætla að kaupa Ronaldo ef AC Milan verður meistari Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan og forsætisráðherra Ítalíu, hefur mjög háleit markmið fyrir sumarið fari svo að AC Milan vinni ítalska meistaratitilinn í vor. Fótbolti 12. apríl 2011 14:15
Ancelotti: Sigur hjá Chelsea er mikilvægari en mark hjá Torres Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, ætlar að reyna að brydda upp á einhverjum nýungum í kvöld þegar Chelsea sækir Manchester United heim í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United vann fyrri leikinn 1-0 á Brúnni. Fótbolti 12. apríl 2011 13:15
Ferguson ekki að hugsa um þrennuna Man. Utd og Chelsea mætast í kvöld í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fer fram á Old Trafford en Man. Utd gerði sér lítið fyrir í fyrri leiknum á Stamford Bridge og vann, 0-1. Fótbolti 12. apríl 2011 07:00