„Fólk sem vissi ekkert hvað það var að tala um“ Formaður HSÍ Guðmundur B. Ólafsson, segir umræðuna, sem spratt upp í kringum samstarfssamninga sambandsins við fyrirtækin umdeildu, Arnarlax og Rapyd, hálf broslega og skakka. Fyrirtækin séu stoltir samstarfsaðilar HSÍ og að það fólk sem hafði hátt á samfélagsmiðlum um samstarfið „vissi náttúrulega bara ekkert hvað það var að tala um.“ Handbolti 25. júní 2024 08:01
Lagareldi í lagalegu tómarúmi Á dögunum varð ljóst að frumvarp matvælaráðherra um lagareldi næði ekki fram að ganga á þessu þingi. Skoðun 23. júní 2024 21:01
Fann í hjarta sér að baráttan væri fullreynd Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna til fjölda ára hefur yfirgefið flokkinn, vegna þess sem hún kallar svik flokksins við eigin stefnu. Hún segist hafa fundið að fullreynt væri að berjast fyrir hugsjón sinni innan flokksins. Þrátt fyrir úrsögn sína úr flokknum sé hún ekki hætt afskiptum af stjórnmálum. Innlent 23. júní 2024 11:52
Ráðherra ber mikla ábyrgð Það er mikil andstaða við sjókvíaeldi í Seyðisfirði. 75% íbúa eru andvíg því og það er staðfest í skoðanakönnun Múlaþings. Skoðun 23. júní 2024 11:00
Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu. Innlent 23. júní 2024 07:32
Nú sannast hið fornkveðna: kvótakerfið hefur ekkert með fiskvernd að gera Strandveiðifélag Íslands mótmælir harðlega áformum um kvótasetningu grásleppu. Tillögurnar eru hluti af aðför stjórnvalda að smábátaveiðum í hinum dreifðu byggðum og koma til með að hafa fyrirséðar afleiðingar fyrir smábátasjómenn um allt land. Að baki kvótasetningu á grásleppu liggja engin rök sem lúta að: Skoðun 22. júní 2024 15:01
Firra að hafa ekki kjark til að klára lagareldisfrumvarpið Halla Signý Kristjánsdóttir og Iða Marsibil Jónsdóttir, þingmenn Framsóknarflokksins, lýstu báðir yfir vonbrigðum sínum yfir því að lagareldisfrumvarpið hefði ekki náð fram að ganga í vor. Iða segir að fiskeldisfyrirtæki hafi lengi kallað eftir skýrari lagaramma utan um atvinnugreinina. Innlent 21. júní 2024 17:09
Skömmin sé Breta, Færeyinga og Norðmanna Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja nýtt samkomulag Breta, Færeyinga og Noregs festa enn ríkar í sessi óásættanlega ofveiði makríls. „Yfirgangurinn er þeirra og skömmin er þeirra,“ segja samtökin. Innlent 20. júní 2024 13:43
Lagareldisfrumvarpið ekki klárað í vor Ríkisstjórninni hefur ekki tekist að ná saman um lagareldisfrumvarpið í atvinnuveganefnd. Upphaflega stóð til að klára málið fyrir þinglok. Ágreiningur stjórnarliða snýr aðallega að ákvæðum um sektir og gjaldheimtu. Innlent 20. júní 2024 13:35
Banna fiskeldi í opnum kvíum við strendur Bresku-Kólumbíu Stjórnvöld í Kanada hafa ákveðið að banna fiskeldi í opnum kvíum við strendur Bresku-Kólumbíu. Bannið tekur gildi eftir fimm ár og hefur verið fagnað af umhverfisverndarsinnum. Erlent 20. júní 2024 06:48
Staðfesta áminningu vegna flutnings 37 þorska milli skipa Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Fiskistofu um að veita útgerðaraðila skriflega áminningu fyrir að hafa fært 37 þorska milli skipa í júní 2022. Innlent 19. júní 2024 10:46
Eldisseiði hafi átt greiða leið úr stöðinni í Tálknafirði Matvælastofnun telur að ekki hafi verið til staðar nægjanlegur mannskapur til að sinna fyrsta viðbragði í kjölfar stroks eldislax úr fiskeldisstoð Arctic Smolt ehf. í Norður-Botni þann 24. maí 2024. Samkvæmt Matvælastofnun voru aðeins tveir starfsmenn á svæðinu umrætt kvöld. Innlent 19. júní 2024 09:56
Sá sæng sína upp reidda Ekkert verður af hrefnuveiðum Þórs Steinars Lárussonar næsta árið sem hann hefur leyfi til að veiða hrefnur yfirleitt. Hann þarf leyfi til fleiri ára, annars óttast hann að brenna inni með allan kostnað. Innlent 18. júní 2024 12:47
Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Lögmaður landeiganda í Ísafjarðardjúpi, sem barist hefur gegn sjókvíaeldi á svæðinu, skorar á ríkisstjórn að grípa til aðgerða vegna leyfisveitingar Matvælastofnunar til Arnarlax. Það sé til marks um slæma stjórnsýslu að stofnunin veiti fyrirtækinu rekstrarleyfi til fiskeldis í Djúpinu þrátt fyrir mótmæli Samgöngustofu, Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar Innlent 17. júní 2024 13:41
Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar hafa komið fyrir laxateljara í fiskveginum við Einarsfoss í Laugardalsá við Ísafjarðardjúp. Teljarinn er búinn myndavél sem tekur myndir af fiskum sem ganga í ána. Innlent 16. júní 2024 10:48
„Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., furðar sig á orðum Vinstri grænna um að útgáfa hvalveiðileyfis sé óhjákvæmilegt í núverandi lagaumhverfi vegna þess hve langan tíma það tók matvælaráðherra að gefa út hvalveiðileyfi. Innlent 15. júní 2024 19:54
Elsta skip Samherja kveður Dalvík og heldur til Spánar Ísfisktogarinn Björgvin EA 311 lagði af stað frá Dalvík til Vigo á Spáni um miðjan dag í gær og kvöddu margir bæjarbúar þetta fengsæla skip og fylgdust með þegar landfestum var sleppt í síðasta sinn, heimahöfn Björgvins EA. Innlent 14. júní 2024 16:02
Ingólfur krítar liðugt Ingólfur Ásgeirsson, stofnandi Icelandic wildlife fund, íslenska náttúruverndarsjóðsins, skrifar í gær á visir.is og telur laxeldið á Vestfjörðum skipta litlu máli fyrir Vestfirðinga. Honum tekst að halla réttu máli svo að jafnast á við starfsmann hans, Jón Kaldal, í nýlegum greinaskrifum. Skoðun 14. júní 2024 15:31
Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Matvælastofnun hefur veitt Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi. Samgöngustofa mat það svo að óheimilt væri að veita leyfi á tveimur staðanna, með tilliti til siglingaöryggis. Innlent 14. júní 2024 15:24
Byggðakvótakerfið úr sér gengið Gera þarf veigamiklar breytingar á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta eigi hann að vera starfræktur áfram. Innlent 14. júní 2024 13:34
Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Ingólfur Ásgeirsson, stofnandi sjóðs sem beitir sér fyrir banni við laxeldi í sjó á Vestfjörðum sendir mér og Vestfirðingum tóninn í aðsendri grein á Vísi. Í greininni gerir hann lítið úr áhrifum laxeldis á efnahag, búsetu og lífskjör fólks á Vestfjörðum. Samhliða birtingu greinarinnar, kostar vel fjármagnaður sjóður hans umfangsmikla deilingu hennar á samfélagsmiðlum undir fyrirsögninni „Hvað gerðu Vestfirðingar Runólfi Ágústssyni?“ Skoðun 14. júní 2024 13:30
Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Það hlýtur að hafa verið niðurlægjandi fyrir Vestfirðinga að lesa á vef Vísis í gær spádóm þekkts íbúa í 101 Reykjavík, Runólfs Ágústssonar, um að fjórðungurinn færí eyði ef sjókvíaeldi á laxi hyrfi úr fjörðunum þar. Skoðun 13. júní 2024 11:30
Sér fyrir sér 2031 án hvalveiða og sjókvíaeldis Þingmaður Pírata sagði ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar komna yfir síðasta söludag og gagnrýndi hvalveiðileyfið sem matvælaráðherra tilkynni um í gær, í eldhúsræðu sinni í kvöld. Hann sagði að fyrsta verk Pírata í ríkisstjórn væri að styrkja Samkeppniseftirlitið vegna þess að kapítalismi án samkeppni kallist arðrán. Innlent 12. júní 2024 21:22
Bjarkey verði að sæta ábyrgð Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir matvælaráðherra hafa viljandi gert Hval hf. ókleift að veiða langreyðar í sumar. Hún telur að fyrirtækið fari í mál við ríkið og að borgarar megi ekki sætta sig við það að ráðherrar brjóti lög. Innlent 12. júní 2024 13:23
Fiskeldi og Vestfirðir Í lok maí var birt nýtt fasteignamat. Fasteignamat endurspeglar verðgildi fasteigna og fasteignamatið hækkar nú hvergi meira en á Vestfjörðum. Þetta eru góðar fréttir og endurspegla uppbyggingu í atvinnulífi þar vestra sem fjölgar atvinnutækifærum og hækkar fasteignaverð. Skoðun 12. júní 2024 11:00
Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri og stærsti eigandi Hvals hf. segist ekki búast við því að geta veitt hval í sumar þrátt fyrir leyfi sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra gaf út í gær. Innlent 12. júní 2024 06:28
Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Áhöfn tveggja skipa í eigu Þorbjarnar í Grindavík hefur verið sagt upp, en gert er ráð fyrir því að skipverjunum verði útveguð ný störf. Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir í samtali við Vísi að verið sé að endurskipuleggja útgerðina fyrir haustið. Viðskipti innlent 11. júní 2024 16:12
„Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Henry Alexander Henrysson segir ákvörðun matvælaráðherra, um að leyfa hvalveiðar til eins árs, einfaldlega ranga. Hann kveðst ekki ætla að koma nánar að hvalveiðimálum innan stjórnsýslunnar. Innlent 11. júní 2024 15:32
Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Frans Heilmann útgerðarstjóri Sigguk A/S, sem er undir hatti Polar Seafood, segir fréttaflutning af meintu kynferðisbroti í frystitogaranum Polar Nanoq illskiljanlegan og ömurlegan. Innlent 11. júní 2024 15:30
Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja leyfið sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti fyrr í dag til veiða á langreyðum sé í raun aðeins gefið út til málamynda. Matvælaráðherra leggi á ólögmætan hátt stein í götu sjálfbærra veiða á langreyðum með ákvörðuninni í berhöggi við stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi Hvals hf. Innlent 11. júní 2024 12:43