Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Tilboðið er valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. 20.11.2024 15:41
Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur farið fram á það að hagnaðardrifinn hluti Sorpu verði færður í hlutafélag. Þannig muni ólögmæt ríkisaðstoð í formi undanþágu tekjuskattskyldu falla niður. 20.11.2024 11:51
Samtökin '78 selja slotið Samtökin '78 hafa sett bækistöðvar sínar að Suðurgötu 3 á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina. 19.11.2024 15:58
Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Samkeppniseftirlitið hefur ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í gær. Í því er kjötafurðastöðvum meðal annars skipað að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem farið geta gegn samkeppnislögum og stofnast hefur til á grundvelli undanþáguheimilda búvörulaga. 19.11.2024 15:28
Ólíklegt að gjósi í nóvember Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja ólíklegt að nægur þrýstingur verði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember. Vísbendingar um að hægt hafi á landrisi gætu verið tilkomnar vegna geimveðurs. 19.11.2024 15:10
Minnisblað þvert á niðurstöðu dómsins Í minnisblaði skrifstofu Alþingis til sviðsstjóra nefnda- og greiningarsviðs Alþingis er komist að þeirri niðurstöðu að breytingar atvinnuveganefndar á frumvarpi um búvörulög hafi ekki gengið gegn stjórnarskrá. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að gagnstæðri niðurstöðu í gær. 19.11.2024 12:36
Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði Stéttarfélagið Hlíf og Hafnarfjarðarbær hafa skrifað undir kjarasamning vegna félaga Hlífar í leikskólum bæjarins. Þannig hefur verkfalli sem hefði lamað starfsemi allra leikskóla bæjarins verið afstýrt. 18.11.2024 17:04
Deila um Stálskipaauðinn fyrir Hæstarétt Barnabörn eins stofnenda Stálskipa og eiginkonu hans hafa fengið kæruleyfi til Hæstaréttar vegna ætlaðrar ofgreiðslu fyrirframgreidds arfs upp á milljarð króna. Bæði Héraðsdómur Reykjaness og Landsréttur töldu ákvæði erfðalaga staðið í vegi fyrir því að systkinum föður barnabarnanna yrði gert að endurgreiða fyrirframgreiddan arf sem þau fengu umfram bróður sinn. 18.11.2024 15:25
Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur slegið því föstu að gríðarlega umdeild breyting á búvörulögum hafi strítt gegn stjórnarskrá og breytingin hafi því ekkert gildi að lögum. 18.11.2024 12:31
Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Íslenskur öryrki sem er búsettur í Brasilíu furðar sig á því að þurfa að greiða 6.500 krónur fyrir að kjósa utan kjörfundar í komandi alþingiskosningum. 18.11.2024 11:37