Sjálfstæðisflokkurinn
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 82 ›
Valdníðsla og hneyksli Ákvörðun matvælaráðherra að taka umsókn um leyfi til hvalveiða til efnislegrar meðferðar stuttu fyrir kosningar er hneyksli og ber vott um valdníðslu að sögn talskonu Hvalavina. Vinstri græn beri ábyrgð á stöðunni sem upp sé komin. Innlent 25.10.2024 19:08
Gagnlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgengst völd Formaður VG segir vendingar í matvælaráðuneytinu og mögulegt leyfi til hvalveiða draga fram hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgangist völd þegar viðnámið sé lítið. Það hljómi sem brandari að líkja útgáfu hvalveiðileyfis við útgáfu ökuskírteinis, líkt og Jón Gunnarsson hafi gert. Innlent 25.10.2024 11:50
Umsókn frá Kristjáni á borði Jóns og Bjarna Bjarni Benediktsson matvælaráðherra segir umsókn um leyfi til hvalveiða komna til ráðuneytisins. Jón Gunnarsson, nýskipaður fulltrúi Bjarna í ráðuneytinu, segir hvalveiðar eitt þeirra mála sem hann ætli að skoða þar. Bjarni segir Jón ekki með vald til að taka stjórnsýslulegar ákvarðanir. Innlent 25.10.2024 11:24
Segir ráðherra bera skyldu til að afgreiða umsóknir um hvalveiðar Jón Gunnarsson, nýr fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir að hvalveiðar séu eitt þeirra mála sem hann ætli að skoða þar. Ráðherra beri skylda til að afgreiða umsóknir um veiðileyfi. Jón fer hörðum orðum um fyrrverandi félaga sína í ríkisstjórn úr Vinstri grænum. Innlent 25.10.2024 09:17
Samþykktu listann í Kraganum: Jón skipar fimmta sætið Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Jón sóttist upprunalega eftir 2. sæti, því sama og hann skipaði í síðustu kosningum, en Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður flokksins hafði betur í kosningu. Innlent 24.10.2024 21:29
Stefna að því að ljúka vinnu við fjárlög um miðjan nóvember Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis segir ganga vel að ljúka við fjárlög. Nefndin miði við 15. eða 16. nóvember sem síðasta dag þannig málinu verði lokið fyrir alþingiskosningar í lok sama mánaðar. Innlent 24.10.2024 21:01
„Við þurfum að losa okkur við það fólk“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að stoppa þurfi þá sem sækja um vernd á Íslandi en koma hingað fyrst og fremst til að fremja glæpi. Innlent 24.10.2024 15:23
Er best að gera ekki neitt þegar börn búa ekki við jöfn tækifæri? Grein mín um móttökuskóla vakti mikla athygli. Mestan stuðning við hugmyndina fékk ég frá kennurum og skólastjórnendum úr fjölda sveitarfélaga sem hafa með mikilli útsjónarsemi og góðum vilja reynt að styðja við fjölbreyttan hóp nemenda með mismunandi þarfir og móðurmál. Skoðun 24.10.2024 14:31
Dyggðaskreytingar og grænþvottur kapítalismans Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru jafnt og þétt að taka á sig mynd fyrir komandi alþingiskosningar. Pallborð Vísis tók stikkprufu á hinu svokallaða „frægðarfólki“ sem er nú í framboði og þar var ýmislegt látið flakka sem í frásögur er færandi. Hér fóru greinilega ekki atvinnumenn í pólitík sem vöfðu mál sitt í margfaldan umbúðapappír. Innlent 24.10.2024 07:04
Umræða um „ofurþéttingu“ sé leidd af Diljá og Guðlaugi Þór Mikil óánægja er meðal íbúa Grafarvogs vegna áforma um uppbyggingu og meints samskiptaleysis borgarstjóra. Formaður íbúasamtaka Grafarvogs segir suma íbúa vilja láta kanna klofning frá Reykjavíkurborg. Borgarstjóri segir aldrei hafa verið farið í jafn ítarlegt samráð við íbúa og umræðan í Grafarvogi sé leidd af kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 23.10.2024 22:49
Vilja „epískt“ samfélag, minna væl og meiri jákvæðni Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og frambjóðandi Sósíalistaflokksins segist tilbúin að gera málamiðlanir og vinna með hverjum þeim flokki sem sé tilbúinn að setja hagsmuni vinnandi fólks í fyrsta sæti, meira að segja Sjálfstæðisflokki ef flokkurinn geti sýnt fram á að flokkurinn uppfylli það skilyrði. Ólafur Adolfsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir fullreynt með samstarf flokka lengst frá vinstri til hægri en fagnar því að fólk geti talað saman. Innlent 23.10.2024 18:26
Spennulosun á laugardag Jón Gnarr fær ekki fyrsta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík eins og hann hafði óskað eftir. Mikil spenna ríkir fyrir laugardeginum þegar fjölmargir framboðslistar verða kynntir, þar á meðal allir listar flokksins sem mælist með mest fylgi í könnunum. Innlent 23.10.2024 12:18
Kosningapallborð: Nýliðar í landsmálapólitík mætast Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru jafnt og þétt að taka á sig mynd fyrir komandi alþingiskosningar. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa þegar stigið fram og lýst áhuga á að taka sæti á Alþingi og kosningamaskínur flokkanna komnar í fullan gang. Innlent 23.10.2024 10:56
„Það gildir ekki það sama um Jón og séra Jón“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýna Ragnar Þór Ingólfsson fyrir að ætla að sitja áfram sem formaður VR á sama tíma og hann verður oddviti Flokks fólksins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. Innlent 23.10.2024 06:48
Óttast ekki brotthvarf reynslumikilla þingmanna Bjarni Benediktsson forsætisráðherra óttast ekki brotthvarf reynslumikilla þingmanna Sjálfstæðisflokksins og segir endurnýjun eðlilegan hluta af aðdraganda kosninga. Innlent 22.10.2024 20:36
Sjálfstæðisflokkurinn skuldi kjósendum skýringar Ólafur Adolfsson nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir Sjálfstæðisflokkinn skulda kjósendum sínum skýringar. Það hafi verið röng ákvörðun að halda áfram í ríkisstjórnarsamstarfinu. Í flokknum sé verið að skipta út fólki því kjósendur vilji nýjar áherslur. Innlent 22.10.2024 09:17
Hafa stjórn á sínu fólki? Ég skemmti mér vægast sagt vel yfir umræðum á Alþingi um störf þingsins á dögunum þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði EES-samninginn að umtalsefni. Skoðun 22.10.2024 08:01
Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Oddný Harðardóttir minnist símtals frá Bjarna Benediktssyni eftir að Samfylkingin beið afhroð í þingkosningunum árið 2016. Brynjar Níelsson segist alls ekki hafa gefist upp á Jóni Gunnarssyni. Þetta var meðal þess sem fram kom í Kosningapallborði á Vísi þar sem gestir fóru um víðan völl. Innlent 21.10.2024 16:11
Ekkert drama á bak við frestun fundarins Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi hefur ákveðið að fundur kjördæmisráðsins sem átti að fara fram á morgun verði frestað fram á fimmtudagskvöld. Á fundinum stendur til að kynna allan lista flokksins í kjördæminu. Formaður kjördæmaráðs segir ástæðuna ekki vera nokkurs konar ágreining. Innlent 21.10.2024 14:47
Kosningapallborð: Kanónur kveðja Fyrsta formlega kosningapallborð fréttastofunnar fyrir alþingiskosningarnar verður helgað reyndum þingmönnum sem eru að kveðja sviðið og hafa tekið ákvörðun um að láta gott heita. Innlent 21.10.2024 13:07
Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Ríkisútvarpið fullyrðir að Brynjar Níelsson varaþingmaður fái þriðja sætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Þeir vita meira en ég,“ segir Brynjar í samtali við Vísi. Innlent 21.10.2024 12:35
Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, skrifar nú á bloggsíðu sína sem aldrei fyrr og er afdráttarlaus í skoðunum. Björn rekur elstu bloggsíðu landsins. bjorn.is og virðist í ham. Innlent 21.10.2024 11:32
Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Jón Gunnarsson segist ekki enn farinn að velta fyrir sér hvað taki við hjá sér eftir að hann var undir í baráttu við Þórdísi Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur um annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í gær. Innlent 21.10.2024 09:19
Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Fimm þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum verða ekki á lista í næstu Alþingiskosningum. Um er að ræða fjóra karla og eina konu úr fjórum kjördæmum. Innlent 20.10.2024 23:19
Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykkti framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar síðdegis. Innlent 20.10.2024 19:15
Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, laut í lægra haldi fyrir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, varaformanni flokksins, í baráttu um 2. sæti í Suðvesturkjördæmi í dag. Hann sagði fjallið hafa verið hátt og honum ekki tekist að klífa á toppinn. Innlent 20.10.2024 18:35
„Ég lagði allt undir“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er ánægð með að hafa hlotið annað sætið í Suðvesturkjördæmi. Hún segist hafa lagt allt undir og niðurstaðan sé afgerandi. Innlent 20.10.2024 18:12
Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi samþykkti einróma framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar á fjórða tímanum í dag. Innlent 20.10.2024 16:40
Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Bryndís Haraldsdóttir skipar þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Innlent 20.10.2024 16:18
Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur einróma samþykkt framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra mun leiða listann en Birgir Þórarinsson þingmaður skipar heiðursæti listans. Innlent 20.10.2024 16:04