Vegagerð „
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 15 ›
„Þetta er svo langt frá því að vera allt í lagi“ Siglufjarðarvegur er óboðlegur farartálmi að sögn formanns bæjarráðs Fjallabyggðar sem telur veginn sjálfan vera á fleygiferð. Hann segir að íbúum sé illa við að keyra veginn, en þeir hafi ekki annað val. Innlent 4.9.2022 21:37
Notendagjöld í umferðinni Sem hluti af loftlagsstefnu hafa stjórnvöld nú lagt aukna áherslu á orkuskipti í samgöngum. Samliða orkuskiptunum verður þó ekki litið fram hjá að huga þarf að breyttri gjaldtöku í umferðinni, en núverandi gjaldtaka hér á landi er mest í formi eldsneytisgjalds. Skoðun 24.8.2022 09:31
Veggjald ætti ekki að nota til að greiða rekstrarkostnað Í grein sem ég ritaði nýlega benti ég á að hófleg veggjöld í jarðgöngum gætu aukið hraðann verulega í jarðgangagerð á Íslandi. Jafnframt benti ég á að mjög varlega þyrfti samt að fara í gjaldtöku í göngum sem hefðu verið gjaldfrjáls í mörg ár. Nú ætla ég að ræða hvernig nota ætti veggjöld og hvort 25 Gkr framlag til jarðgangagerðar úr ríkissjóði sé hæfilegt á 15 árum. Skoðun 23.8.2022 09:30
Gríðarlegar tafir milli Hveragerðis og Selfoss Miklar umferðartafir eru Suðurlandsvegi til austurs milli Hveragerðis og Selfoss. Umferð um Biskupstungnabraut er ljósastýrð vegna vegavinnu og hefur áhrif á umferð um Suðurlandsveg. Innlent 19.8.2022 18:49
Endurskoða þurfi fjármögnun vegakerfisins Endurskoða þarf fjármögnun vegakerfisins að mati formanns bæjarráðs Fjallabyggðar. Hann leggur til að kílómetragjald verði sett á alla ökumenn óháð mannvirkjum. Innlent 9.8.2022 20:01
Veggjald í jarðgöngum, hvenær og hvenær ekki? Eða eru þau öll eins? Segjum sem svo að yfirvöld myndu ákveða að setja vissa upphæð í jarðgangagerð á ári hverju. Gefum okkur að þessi upphæð nægði til að grafa 1 km af jarðgöngum ár hvert. Á sex ára tímabili væri því hægt að fjármagna 6 km göng og að þeim tíma liðnum væri hægt að snúa sér að næstu göngum. Skoðun 9.8.2022 13:57
Vilja ekki greiða fyrir notkun ganga sem uppfylla ekki öryggiskröfur Líkt og greint hefur verið frá síðustu vikur stefnir innviðaráðuneytið á að hefja gjaldtöku í öllum göngum landsins til þess að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Formaður bæjarráðs Fjallabyggðar setur spurningamerki við aðferðafræðina. Innlent 8.8.2022 22:45
Landsmenn vilja ekki taka upp veskið í jarðgöngum Meirihluti landsmanna er á móti fyrirhugaðri gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Innlent 4.8.2022 19:14
Ný bortækni gæti valdið byltingu í jarðgangagerð Ný aðferð í jarðgangagerð sem felst í að nota plasma-ljósboga til að mölva sér leið í gegnum berg vekur vonir um að jafnvel villtustu draumar margra á Íslandi um veggöng gætu ræst. Fullyrt er að með þessari tækni megi grafa göng margfalt hraðar og margfalt ódýrar en með núverandi tækni og með mun minni umhverfisáhrifum. Viðskipti erlent 2.8.2022 15:36
Efasemdir á Seyðisfirði um gagnsemi Fjarðarheiðarganga „Í boði er annar valkostur sem er fjárhagslega hagkvæmur, leysir algerlega einangrun Seyðisfjarðar og opnar samtímis láglendisveg um allt Mið-Austurland, eykur allt öryggi og opnar nýja möguleika í samskiptum.“ Fréttir 30.7.2022 13:26
Af hverju Fjarðarheiðargöng? Mann setti hljóðan þegar nýlega var fjallað um kostnað við gerð Fjarðarheiðagangna í fréttatíma Stöðvar 2, þar sem Kristján Már Unnarsson, fór fyrir svo einhliða og neikvæðri umfjöllun um göngin að menn spurðu sig jafnvel hverra erinda fréttamaðurinn væri að ganga? Skoðun 21.7.2022 18:00
Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum. Innlent 19.7.2022 22:01
Ber ekki saman um hvort stytting leiða sé jákvæð fyrir umhverfið Jákvæð umhverfisáhrif, sem fylgja styttingu leiða, eru meðal þess þjóðhagslega ávinnings sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur upp sem röksemdir fyrir arðsömum flýtiframkvæmdum í samgöngum. Ein af undirstofnunum hans, Skipulagsstofnun, sem áður heyrði undir umhverfisráðuneytið, hafnaði sömu röksemdum Vegagerðarinnar í áliti fyrir tveimur árum og taldi þvert á móti að samgöngubætur með styttingu leiða myndu fjölga ferðum og þar með leiða til aukins útblásturs. Innlent 19.7.2022 17:52
Kynnir stofnun opinbers hlutafélags um gjaldtöku af vegum og göngum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur kynnt á samráðsgátt stjórnvalda áform um að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Helsta hlutverk félagsins verður að innheimta notkunargjöld, bæði af vegum og jarðgöngum. Innlent 19.7.2022 12:16
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. Viðskipti innlent 18.7.2022 18:51
Rannsóknarvinna fyrir fyrstu lotu Borgarlínu hafin Vegagerðin vinnur nú að jarðvegsrannsóknum og burðarþolsmælingum á höfuðborgarsvæðinu á þeim stöðum þar sem sérrými fyrstu lotu Borgarlínunnar kemur til með að liggja. Innlent 15.7.2022 11:36
Fjarðarheiði gleypir öll framlög og veggjöld til jarðganga í sautján ár Svo fjárfrek verða Fjarðarheiðargöng að öll framlög á fimmtán ára jarðgangaáætlun ásamt gjaldtöku af öllum göngum duga ekki til að greiða kostnaðinn. Rými til að grafa næstu göng í landinu skapast vart fyrr en í kringum árið 2040. Innlent 14.7.2022 22:30
Telur innviðaráðherra draga Austfirðinga á asnaeyrunum Þingmaður Miðflokksins segir innviðaráðherra á villigötum vegna gjaldtöku í jarðgöngum landsins til að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Ríkisstjórnin þurfi að hugsa málið til enda í stað þess að draga Austfirðinga á asnaeyrunum, að mati þingmannsins. Innlent 14.7.2022 12:16
Óttast ekki að umræða um gjaldtöku spilli áformum um Fjarðarheiðargöng Áform ríkisstjórnarinnar um að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins gætu orðið eitt helsta þrætumál samfélagsins á næstu misserum. Formaður byggðaráðs Múlaþings óttast ekki að umræða um jarðgangatoll spilli áformum um Fjarðarheiðargöng. Innlent 13.7.2022 22:20
Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni. Innlent 12.7.2022 22:04
Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni. Innlent 11.7.2022 22:10
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. Innlent 9.7.2022 08:25
Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. Viðskipti innlent 5.7.2022 14:41
Kosningaloforðið uppfyllt átta árum eftir að Betra Sigtún bauð fram Þau tíðindi urðu á Vopnafirði í vikunni að gatan Sigtún var malbikuð. Árið 2014 bauð framboðið Betra Sigtún þar sem malbikun götunnar var eitt helsta stefnumálið. Innlent 30.6.2022 12:56
Steinkast stútar sumrinu Slitlagsviðgerðir á vegum landsins eru framkvæmdar með þeim hætti að harpaðri möl er dreift yfir olíu sem ökumenn og umferð eru látin vinna við að þjappa og veldur þannig gríðarlegu tjóni á ökutækjum sökum steinkasts. Skoðun 30.6.2022 07:01
Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. Innlent 27.6.2022 23:22
Búið að opna veginn inn í Landmannalaugar Vegagerðin opnaði í morgun leiðina inn í Landmannalaugar um Sigölduvirkjun. Þá styttist í opnun Landmannaleiðar og búist við að hún verði jeppafær um helgina, samkvæmt upplýsingum Magnúsar Inga Jónssonar hjá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar. Innlent 23.6.2022 12:20
Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs. Innlent 14.6.2022 15:40
Stefnir í metár í umferðinni á hringveginum Vegagerðin reiknar með að árið í ár verði metár þegar kemur að umferð á hringveginum Aldrei hefur mælst meiri umferð í maí en í síðastliðnum maí-mánuði. Innlent 12.6.2022 09:34
Innviðaráðherra segir aðgerðir gegn þenslu ekki bitna á framkvæmdum Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að mæta þenslu í hagkerfinu. Innviðaráðherra segir að þetta muni ekki bitna á neinum framkvæmdum. Innlent 8.6.2022 22:20