Átök í Ísrael og Palestínu
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 42 ›
Beitir landtökumenn refsiaðgerðum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gaf í dag út tilskipun og beitti fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum sem hafa ráðist á Palestínumenn refsiaðgerðum. Hægt er að breyta tilskipuninni gegn fleiri landtökumönnum í framtíðinni en refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að fólkið getur ekki átt í viðskiptum við bandarísk fyrirtæki og getur ekki ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 1.2.2024 19:00
Sprengjusveit kölluð til vegna búnaðar við sendiráð Ísrael í Stokkhólmi Lögregluyfirvöld í Svíþjóð voru kölluð til í gær eftir að „hættulegur“ og „virkur“ búnaður fannst fyrir utan embætti Ísrael í Stokkhólmi í gær. Sprengjusveit var send á staðinn og er sögð hafa eyðilagt búnaðinn. Erlent 1.2.2024 06:47
Brokkgeng byrjun Bjarna í utanríkisráðuneytinu Fyrir tæpum fjórum mánuðum, eða þann 16. október 2023 urðu lyklaskipti í fjármála- og utanríkisráðuneytinu. Bjarni Benediktsson hafði sagt af sér sem fjármálaráðherra vegna álits umboðsmanns í tengslum við sölu hlutar ríkisins í Íslandsbanka. Innlent 31.1.2024 14:07
Vill fara að fordæmi Norðmanna og hefði viljað meira samráð Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingar og 2. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis er ekki sáttur við þær röksemdir sem hafa verið settar fram um frystingu fjárframlags Íslands til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og hefði þótt mun eðlilegra að fara að fordæmi Norðmanna, Íra og Spánverjar en ríkin ætla öll að halda áfram stuðningi sínum við stofnunina. Innlent 31.1.2024 13:34
Hæðst að Bashar, Björk og Íslandi í ísraelsku sjónvarpi Svo virðist sem fólkið í Ísrael sé afar upptekið af kröfunni sem fram hefur komið á Íslandi þess efnis að Ísrael verði vikið úr keppni vegna stríðsins á Gasa. Og þá finnst þeim þátttaka Bashar Marud eftirtektarverð, svo vægt sé til orða tekið. Lífið 31.1.2024 10:35
Frystum ekki mannúð Nú hafa nokkrar þjóðir, þar á meðal Ísland, ákveðið að frysta greiðslur til Flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu (UNRWA) vegna ásakana Ísraels um að 12 starfsmenn UNRWA hafi tekið þátt í árásum Hamas þann 7. október. Þessu tengt hafa tvö atvik komið upp í huga minn frá störfum mínum sem tengjast átakasvæðum. Skoðun 31.1.2024 09:31
Styður Ísland hópmorð? Niðurstöður Alþjóðadómstólsins í Haag föstudaginn 26. janúar s.l. eru skýrar. Dómstóllinn trúir því að líklegt sé að hópmorð á Palestínufólki sé að eiga sér stað og að Ísrael verði að hætta árásum og morðum á saklausa borgara. Ísland er því á sérkennilegri vegferð þegar kemur að málefnum Palestínu. Skoðun 31.1.2024 08:01
Einn leiðtoga Hamas segir nýjar vopnahléstillögur til skoðunar Ismail Haniyeh, einn af leiðtogum Hamas, segir samtökin nú liggja yfir nýjum tillögum að vopnahléi á Gasa. Tillögurnar fela í sér lausn gísla og voru lagðar fram að milligönguaðilum eftir viðræður við Ísrael. Erlent 31.1.2024 07:31
Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30.1.2024 22:31
Spítalinn í Rafah yfirfullur og skortur á öllu Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem starfaði á spítala á Gaza segir ástandið vægast sagt slæmt. Mikill skortur væri á lyfjum, áhöldum og mat og fjölmargir hafi misst jafnvel alla fjölskyldu sína. Erlent 30.1.2024 19:20
Leysi Ísland ekki undan siðferðislegri skyldu að lagaleg skylda sé til staðar Alls 24 íslensk félagasamtök hvetja í yfirlýsingu íslensk stjórnvöld til „að leggja allt kapp á að tryggja tafarlausa brottför“ þeirra Palestínumanna sem hafa fengið veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Innlent 30.1.2024 15:58
Elín snýr aftur af Gasaströndinni Skurðhjúkrunarfræðingurinn Elín Jakobína Oddsdóttir, sem hefur starfað fyrir Alþjóðaráð Rauða krossins á sjúkrahúsi á Gasaströndinni síðustu sex vikur, er komin aftur til Íslands. Innlent 30.1.2024 14:40
„Mér er alveg sama þó ég sé umdeildur“ Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrst og fremst vera pólitíska yfirlýsingu. Hann hafi ekki viljað líta fram hjá alvarlegum ásökunum í garð stofnunarinnar. Innlent 30.1.2024 13:01
Dulbjuggu sig og myrtu palestínska vígamenn á spítala Ísraelskir sérsveitarliðar dulbjuggu sig sem heilbrigðisstarfsmenn og myrtu þrjá palestínska menn á spítala á Vesturbakkanum í Palestínu í morgun. Ísraelsk yfirvöld segja að um hryðjuverkamenn hafi verið að ræða. Erlent 30.1.2024 12:58
„Ásakanir á hendur örfáum starfsmönnum í mjög stórum starfsmannahópi“ Forsætisráðherra segir að ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna sé tímabundin. Greiðslum hafi verið frestað þar til samráð hefur verið haft við Norðurlöndin og stofnunin svarar erfiðum spurningum um ásakanir á hendur hluta starfsmanna hennar. Innlent 30.1.2024 12:18
Palestínumenn reistu snjóskýli á Austurvelli Palestínskir mótmælendur sem hafst hafa við í tjaldbúðum á Austurvelli undanfarnar fimm vikur, hafa nú reist nokkurskonar snjóvirki í stað tjaldbúðanna. Innlent 30.1.2024 10:43
Mótmæltu í ellefta skiptið við Ráðherrabústaðinn Félagið Ísland Palestína mótmælti stefnu stjórnvalda í málum Ísrael og Palestínu í ellefta skiptið fyrir framan Ráðherrabústaðinn í morgun. Þar fór fram ríkisstjórnarfundur og voru ráðherrar því mættir í bústaðinn. Innlent 30.1.2024 09:58
Liðsmenn Hamas ná aftur vopnum sínum í norðurhluta Gasa Liðsmenn Hamas eru sagðir hafa snúið aftur til norðurhluta Gasa, þar sem þeir eru sagðir vinna að því að ná aftur stjórn og ná vopnum sínum fyrir frekari átök við Ísraelsher. Erlent 30.1.2024 06:49
Betra ef Bjarni hefði rætt hugmyndir sínar við nefndina Þingflokksformaður Vinstri grænna telur að betur hefði farið á því ef utanríkisráðherra hefði rætt hugmyndir um að frysta fjárframlög Íslands til Palestínuflóttamannaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við utanríkismálanefnd þingsins, áður en ákvörðunin var tekin. Innlent 29.1.2024 22:22
Skutu drónann ekki niður vegna misskilnings Bandarískir hermenn í herstöðinni Tower 22 í Jórdaníu töldu að dróninn sem banaði þremur hermönnum og særði 34 í gær væri þeirra eigin sem verið væri að fljúga aftur til herstöðvarinnar. Þess vegna hafi hann ekki verið skotinn niður. Erlent 29.1.2024 18:57
Frelsisneistinn í brjósti hinna kúguðu verður ekki slökktur með ofbeldi Hvað getur maður svo sem sagt um framgöngu Ísraels í Palestínu undanfarna mánuði? Þeir hafa þverbrotið allar reglur sem alþjóðasamfélagið hefur þó komið sér saman um þegar stríðsrekstur er annars vegar. Það hafa þeir gert í skjóli Bandaríkjanna, Bretlands og Þýskalands sem hafa öll átt sinn þátt í að koma á þessum reglum. Skoðun 29.1.2024 18:00
Þúsund sænskir tónlistarmenn vilja útiloka Ísrael Rúmlega þúsund sænskir tónlistarmenn hafa ritað nafn sitt undir áskorun þess efnis að Ísrael verði meinað þátttaka í Eurovision söngvakeppninni í ár. Meðal þeirra sem hafa sett nafn sitt á listann eru Robyn og Erik Saade. Lífið 29.1.2024 16:30
Fordæma ákvörðun utanríkisráðherra Stjórn félagsins Ísland - Palestína hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra, um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) er fordæmd. Innlent 29.1.2024 16:16
Ekki sjálfgefið að Ísland dæli peningum til átakasvæða Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur fryst greiðslur til Flóttamannaaðstoðar Sameinuðuþjóðanna og leitast nú við að skýra hvað honum gengur til með það. Innlent 29.1.2024 12:10
UNRWA segir fjármagnið munu þrjóta í lok febrúar að óbreyttu Forsvarsmenn Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segja stofnunina ekki munu getað aðstoðað íbúa á Gasa og viðhalda aðgerðum á svæðinu lengur en til loka febrúar ef framlög til hennar verða skert. Erlent 29.1.2024 11:59
Að neita þjáðu fólki á Gaza um mannúðaraðstoð Að neita þjáðu fólki á Gaza um mannúðaraðstoð. Að neita sveltandi fólki á Gaza um mat og vatn. Að neita særðu fólki á Gaza um hjálp. Að horfa í augu deyjandi manneskju og neita henni um hjálp. Er nokkuð ljótara til í heiminum? Skoðun 29.1.2024 09:00
Hatrið mun ekki sigra Fyrir tæpum fimm árum stigu íslenskir Eurovision-farar á svið og sungu lagið „Hatrið mun sigra“. Niðurdrepandi titli lagsins fylgir lagatexti sem virðist ekki fjalla um nokkurn skapaðan hlut. Hver er sá sem hatar? Hverjir eru hinir hötuðu? Skoðun 29.1.2024 07:31
Æðstu ráðamenn Ísrael ítreka áköll um brottflutning Palestínumanna Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, voru meðal þúsunda gesta á ráðstefnu sem fram fór í Jerúsalem í gær, þar sem fjallað var um nauðsyn þess að „endurnema“ Gasa og mögulegar leiðir til þess. Erlent 29.1.2024 07:13
Íranir segjast ekki hafa átt aðkomu að árásinni á Bandaríkjamenn Stjórnvöld í Íran hafa neitað að hafa átt aðkomu að drónaárásinni sem varð þremur hermönnum Bandaríkjanna að bana á herstöð í Jórdaníu um helgina. Erlent 29.1.2024 06:33
Boða til skólaverkfalls til stuðnings Palestínu Nemendur í Hagaskóla hafa boðað til skólaverkfalls þann 6. febrúar næstkomandi til stuðnings Palestínu. Nemendurnir hyggjast yfirgefa tíma til að mæta á Austurvöll. Innlent 28.1.2024 21:54