Lögreglumál
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 275 ›
Lögreglan beitti piparúða Lögreglan á Norðurlandi eystra beitti piparúða til að stöðva slagsmál í miðbæ Akureyrar um fimmleytið í nótt. Enginn var handtekinn en lögregla hlúði að þeim sem urðu fyrir piparúðanum. Innlent 1.8.2022 12:20
Skammbyssan reyndist leikfangabyssa Maður var handtekinn klukkan hálf sex í morgun eftir að lögreglu barst tilkynning um að hann væri vopnaður skammbyssu við Smáralind í Kópavogi. Í ljós kom að um leikfangabyssu væri að ræða. Maðurinn reyndist aðeins sautján ára gamall og var foreldrum og barnaverndarnefnd gert viðvart. Innlent 1.8.2022 07:43
Sérsveitin á Akureyri kölluð út vegna vopnaðs manns Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Innlent 31.7.2022 09:21
Vopnað rán í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn. Innlent 31.7.2022 07:43
Ekkert ofbeldi á borði lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir nóttina Ekkert ofbeldisbrot rataði inn á borð lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og nótt. Lögregla segir þjóðhátíðarhöld hafa farið vel fram í nótt og fólk almennt skemmt sér fallega. Á Akureyri var nóttin rólegri en oft áður en mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík. Innlent 30.7.2022 12:08
„Afar reiður“ maður á bílaleigu Brimborgar Lögreglan hafði afskipti af „afar reiðum“ manni sem lét ófriðlega á bílaleigu Brimborgar á Akureyri í gær. Drykklanga stund tók að róa manninn niður en að lokum var hann tekinn fastur og fluttur á brott. Innlent 30.7.2022 12:08
Mikið um óspektir og sjö gistu fangageymslu Mikið var um ölvun og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og sjö gistu fangageymslur, þar á meðal kona sem hafði ítrekað reynt að sparka og bíta í lögreglumenn. Innlent 30.7.2022 07:53
Handtekinn á húkkaraballi fyrir að ráðast á lögguna Einn var handtekinn á hinu árlega húkkaraballi í Vestmannaeyjum í gær. Lögregla hafði ætlað að hafa af honum afskipti en hann veittist að lögreglumönnunum og var handtekinn og vistaður í fangageymslu í kjölfarið. Innlent 29.7.2022 13:03
Býst við að umferðin verði þyngst í átt að góða veðrinu Hatíðarhöld fara fram víða um land um helgina með tilheyrandi umferðarþunga. Lögregla á von á að umferðin fari að þyngjast eftir hádegi og verði hvað þyngst um Suðurlandsveg á leið austur. Innlent 29.7.2022 11:43
Lögreglan varar fólk við að auglýsa ferðalög á samfélagsmiðlum fyrir helgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi. Innlent 28.7.2022 13:36
Lögregla fer fram á áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu almannahagsmuna yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana í Barðavogi 4. júní síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun. Innlent 28.7.2022 11:34
Sérsveitin handtók fólk í strætisvagni Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för strætisvagns við Háskóla Íslands í dag. Fólk sem grunað er um líkamsárás var handtekið í vagninum. Innlent 27.7.2022 16:48
Farþega Condor-vélarinnar leið eins og íslensk stjórnvöld hafi tekið hann í gíslingu Farþegi um borð í flugvél sem lent var óvænt á Keflavíkurflugvelli á mánudag vegna sprengjuhótunar segist í fyrstu ekki hafa fengið neinar skýringar frá lögreglunni og liðið eins og hann hafi verið tekinn til fanga. Innlent 27.7.2022 16:21
Netþrjótarnir þaulskipulagðir í Landsbanka-svikum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með röð netglæpa til rannsóknar en óprúttnir aðilar hafa á undanförnum vikum sett upp skuggavefsíður, sem líkjast meðal annars heimasíðu Landsbankans, sem eru til þess gerðar að ræna peningum af fólki. Innlent 27.7.2022 13:40
Búin að tilkynna skemmdarverkin á hinsegin fánanum til lögreglu Grafarvogskirkja hefur tilkynnt skemmdarverk sem gerð voru á hinsegin fána fyrir framan kirkjuna til lögreglu. Krotað hefur verið í tvígang yfir regnbogann á seinustu dögum sem er ætlað að vera til marks um samstöðu með réttindabaráttu hinsegin fólks. Innlent 27.7.2022 12:18
Ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna stunguárásar við Prikið Mál nítján ára karlmanns verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa stungið mann á þrítugsaldri fyrir framan skemmtistaðinn Prikið í apríl síðastliðnum. Innlent 27.7.2022 10:48
Aðgerðir viðbragðsaðila vegna sprengjuhótunar hafi gengið afbragðsvel Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir aðgerðir viðbragðsaðila á Keflavíkurflugvelli, vegna sprengjuhótunar um borð í flugvél á leið frá Frankfurt til Seattle, hafa gengið afbragðsvel. Enn sé ekki vitað hver hafi borið ábyrgð á hótuninni. Innlent 26.7.2022 20:46
Býst við að mál læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði fellt niður Lögmaður læknis, sem grunaður er ásamt öðrum lækni um stórfelld brot í starfi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, telur að ný gögn í máli hans muni leiða til niðurfellingar þess. Innlent 26.7.2022 14:01
Samtökin '78 kæra vararíkissaksóknara til lögreglu Samtökin 78, samtök hinsegin fólks á Íslandi munu kæra Helga Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknara til lögreglu í dag vegna ummæla hans um hinsegin fólk og hælisleitendur. Innlent 26.7.2022 06:35
Ekkert pláss fyrir ofbeldi þegar stærsta ferðahelgi ársins fer fram Það styttist í eina stærstu ferðahelgi ársins eftir rúm tvö ár af kórónuveirufaraldri. Eyjamenn eru byrjaðir að undirbúa sig en verða þó án forvarnarhópsins Bleika fílsins í ár. Þess í stað verður þjóðhátíð hluti af átaki lögreglu og Neyðarlínunnar, og er sömu sögu að segja víðar á landinu. Innlent 25.7.2022 22:08
Lést í Brúará við að bjarga syni sínum Karlmaður sem lést eftir að hafa fallið í Brúará í Biskupstungum um miðjan dag í gær var kanadískur ríkisborgari búsettur í Bandaríkjunum. Straumurinn í ánni bar manninn burt eftir að hann hafði komið syni sínum, sem fallið hafði í ána, til bjargar. Innlent 25.7.2022 12:51
Sérsveitin kölluð út vegna ógnandi manns með hníf Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til á Rauðarárstíg nærri Hlemmi í gærkvöldi vegna manns sem ógnaði fólki við torgið með hnífi. Innlent 24.7.2022 13:01
Barnið sem féll út um glugga er eins og hálfs árs Barnið sem féll út um glugga á fjölbýlishúsi í gær er eins og hálfs árs. Barnið féll út um opinn glugga á fjórðu hæð hússins fimmtán metra niður. Innlent 24.7.2022 10:57
Mikið um slagsmál í nótt Lögreglu barst fjöldinn allur af tilkynningum um slagsmál og líkamsárásir í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Alls er minnst á sex líkamsárásir í tilkynningu frá lögreglu í morgun, jafnt í miðbænum sem og í úthverfum. Innlent 24.7.2022 07:23
Barn féll fimmtán metra út um glugga á fjölbýlishúsi Ungt barn féll út um glugga á fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu í dag. Samkvæmt dagbók lögreglu var fallhæðin um fimmtán metrar en ekki kemur fram hver nákvæmur aldur barnsins er. Barnið var flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar en er ekki með alvarlegt beinbrot. Innvortis meiðsli eru til skoðunar. Innlent 23.7.2022 21:51
Ökumaðurinn lést í slysinu við Hvalfjarðargöng Karlmaður lést í bílslysi sem varð fyrir utan Hvalfjarðargöng um hálf átta í gærkvöldi. Að sögn vitna keyrði maðurinn á ofsahraða út af vegi og kastaðist úr bílnum. Innlent 23.7.2022 11:16
Alvarlegt umferðarslys við Hvalfjarðargöng Ökumaður sem sagður er hafa verið á flótta undan lögreglu lenti í alvarlegum árekstri við Hvalfjarðargöng um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Sjónarvottur segir ökumanninn hafa kastast tíu metra frá slysstað í kjölfar árekstursins en bíllinn á að hafa flogið upp í loftið við höggið. Innlent 23.7.2022 09:32
Sparkaði í dyraverði og lögreglumenn Óskað eftir aðstoð lögreglu að á skemmtistað í miðbænum vegna tveggja einstaklinga sem voru til vandræða. Annar einstaklingurinn handtekinn en hann er gurnaður um að hafa sparkað bæði í dyraverði og lögreglumenn en einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Innlent 23.7.2022 08:20
Ökumaðurinn talinn hafa verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna Einn var handtekinn í gærkvöldi grunaður um að hafa valdið hörðum árekstri tveggja bifreiða á Arnarnesbrú. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna og að hafa ekki hagað akstri eftir aðstæðum. Innlent 21.7.2022 06:31
Einn stunginn í vopnuðu ráni í Reykjavík Lögreglu var tilkynnt um vopnað rán í Reykjavík snemma í morgun. Tveir aðilar heimtuðu þar fíkniefni af tveimur öðrum. Átök komu upp á milli mannanna og hlaut eitt fórnarlamba ránstilraunarinnar stungusár á handlegg. Árásaraðilarnir voru þó handteknir og vistaðir í fangageymslu. Hinn slasaði fór með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Innlent 20.7.2022 11:53