Samgöngur
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 101 ›
Gefa þarf verulega í við uppbyggingu vegakerfisins Þrátt fyrir aukin framlög til uppbyggingar innviða að undanförnu er enn uppsöfnuð þörf á framkvæmdum upp á fjögur hundruð og tuttugu milljarða króna á næstu tíu árum. Útlit er fyrir óbreytt ástand á mörgum sviðum og að staðan versni varðandi hafnir og innanlandsflugvelli. Innlent 17.2.2021 19:21
Uppsöfnuð viðhaldsþörf í innviðum upp á 420 milljarða króna Uppsöfnuð viðhaldsþörf í innviðum landsins er fjögurhundruð og tuttugu milljarðar króna á næstu tíu árum samkvæmt nýrri skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga sem kynnt var í morgun. Lítið hefur breyst frá því sams konar skýrsla var gerð fyrir fjórum árum. Innlent 17.2.2021 14:28
Bein útsending: Ný skýrsla um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga kynna nýja skýrslu um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu kl. 10.00-11.30 í dag. Innlent 17.2.2021 09:53
Suðurverk bauð lægst í þverun Þorskafjarðar Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta boð í þverun Þorskafjarðar en tilboð voru opnuð í gær. Þetta er eitt stærsta verk sem Vegagerðin býður út í ár en tilboð Suðurverks hljóðaði upp á 2.237 milljónir króna. Það reyndist 158 milljónum, eða 7,6 prósentum, yfir kostnaðaráætlun upp á 2.078 milljónir króna. Viðskipti innlent 17.2.2021 09:32
Ó þú dásamlega Borgarlína! Ég hlustaði á kynningu á fyrsta framkvæmdahluta Borgarlínu í bæjarráði fyrir skömmu og verð að viðurkenna að það fór um mig góð tilfinning. Skoðun 17.2.2021 07:00
Háspennulína þverar hringveginn Rafmagnslaust er í Fitjardal vegna háspennulínu sem slitnaði og þverar nú hringveginn, þjóðveg 1, milli Miðfjarðar og Víðidals á Norðurlandi. Innlent 15.2.2021 06:59
Krapaflóð féll yfir þjóðveginn Krapaflóð féll féll yfir Þjóðveg 1 í sunnanverðum Fáskrúðsfirði nú fyrir stundu og lokar nú veginum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Innlent 14.2.2021 18:47
Verkefnastjóri segir skilið við Borgarlínuna: „Óteljandi skiptin sem ég hef heyrt að ég sé frek og vilji stjórna öllu“ Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sagði skilið við Borgarlínuverkefnið um áramótin. Hún segir að viðhorf Vegagerðarinnar til samgangna í þéttbýli hafa leikið lykilþátt í ákvörðun hennar um að segja skilið við verkefnið. Innlent 12.2.2021 21:06
Færeyingar grafa fern jarðgöng á sama tíma Færeyingar hófu í vikunni framkvæmdir við tvenn ný jarðgöng, til viðbótar við þrenn önnur sem verið er að grafa eða nýlokið er við. Áður var búið að grafa nítján jarðgöng í Færeyjum. Erlent 11.2.2021 22:30
Um fimmti hver Reykvíkingur notar rafhlaupahjól Tæplega nítján prósent Reykvíkinga nota rafhlaupahjól eitthvað og tæp sex prósent nota þau einu sinni í viku eða oftar. Notkunin er mest í aldurshópnum 18 til 24 ára og virkustu notendurnir eru búsettir í Háaleiti/Bústöðum. Viðskipti innlent 10.2.2021 13:57
Nýtum sveigjanleika í skólamálum til að létta á samgöngum Í sveitarstjórnarkosningum árið 2018 náðum við Píratar í Kópavogi þeim áfanga að ná inn fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs, ég tók í kjölfarið sæti í Umhverfis og samgöngunefnd Kópavogs. Skoðun 9.2.2021 11:00
Borgarlína og Sundabraut lifi góðu lífi saman Borgarlínan og Sundabraut geta vel þrifist saman að mati forstjóra Vegagerðarinnar. Tillögur að Borgarlínu og Sundabrautinni gera báðar ráð fyrir nýjum brúm, sem myndu þvera Kleppsvík og Elliðaárvog. Innlent 6.2.2021 15:31
Fyrsta lota Borgarlínu kosti 25 milljarða og þar muni mestu um byggingu brúa Reiknað er með að fyrsti áfangi Borgarlínu verði tekinn í gagnið seinni hluta ársins 2025. Frumdrög þessa áfanga upp á tuttugu og fimm milljarða voru kynnt í dag og munar þar mestu um kostnað við brýr yfir Fossvog og Elliðaárvog. Innlent 5.2.2021 21:00
Borgarstjóri ekki sannfærður um Sundabrú Borgarstjóri er ekki sannfærður um að brú sé rétta lausnin fyrir Sundabraut og segir að jarðgöng séu einnig raunhæfur kostur samkæmt nýrri skýrslu. Innlent 4.2.2021 12:06
Gjaldtaka fyrirhuguð á Sundabrú Samgönguráðherra leggur til að ráðist verði í lagningu Sundabrautar með brú frá Holtagörðum yfir í Gufunes. Heildarkostnaður yrði sextíu og níu milljarðar króna og mun hagkvæmari en lagning jarðgangna á þessari leið. Innlent 3.2.2021 19:21
Sundabraut verður Sundabrú, lengsta brú á Íslandi Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins gerir ráð fyrir því að Sundabrú verði tilbúin árið 2029 eða 2030. Mat sérfræðihóps sem Vegagerðin fór fyrir komst að þeirri niðurstöðu að brú væri töluvert betri kostur en jarðgöng sem einnig voru á teikniborðinu. Sigurður Ingi kynnti niðurstöðurnar á kynningarfundi á öðrum tímanum í dag. Innlent 3.2.2021 13:47
Bein útsending: Ráðherra kynnir valkosti um legu Sundabrautar Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun í dag kynna niðurstöður starfshóps á vegum Vegagerðarinnar, sem var falið að meta tvo valkosti um legu Sundabrautar. Innlent 3.2.2021 13:20
Tuð á twitter Í upphafi kjörtímabils Borgarstjórnar Reykjavíkur var yfirlýsing samþykkt þess efnis að svifryk færi aldrei yfir heilsuverndarmörk. Sú yfirlýsing í byrjun kjörtímabils var góð, metnaðarfull. Skoðun 3.2.2021 07:30
Ekki hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast Vatnshæð við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur lækkað frá því síðdegis í gær og gæti bent til þess að áin sé hægt og rólega að losa um krapann á yfirborðinu. Farið verður í eftirlitsflug nú síðdegis til að kanna betur aðstæður í ánni. Ekki sé hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast í ánni. Innlent 2.2.2021 16:21
Vísbendingar um að hreyfing sé komin á klakastífluna Þjóðvegi 1 frá Námaskarði að gatnamótum Vopnafjarðarafleggjara hefur verið lokað þar sem vísbendingar eru um að hreyfing sé komin á klakastífluna sunnan við brúna sem fer yfir Jökulsá á Fjöllum. Innlent 2.2.2021 12:23
Bein útsending: Auknar kröfur í útboðum á malbikun hjá Vegagerðinni Vegagerðin boðar til morgunfundar þar sem kynntar verða auknar kröfur og hertar reglur í útboðum malbiks- og klæðingaframkvæmda. Fundurinn hefst klukkan 9, stendur til 10:15 og verður í opnu streymi. Innlent 2.2.2021 08:16
„Víðar vegir heldur en hér í Reykjavík“ Samgöngurráðherra segir mikilvægt að vinna gegn svifryki í Reykjavík án þess að skerða umferðaröryggi. Innlent 29.1.2021 21:00
Þörf á mun meiri inniviðafjárfestingum opinberra aðila en áætlað er Formaður Samtaka iðnaðarins segir þörf á mun meiri fjárfestingum í innviðum landsins en áætlanir opinberra aðila upp á 139 milljaðar kveða á um á þessu ári. Í kreppunni nú vegna kórónuveirufaraldurins sé rétti tíminn til að gefa verulega í. Innlent 27.1.2021 19:21
Segir gróf mannréttindabrot framin í skjóli bágborins eftirlits Formaður SEM samtakanna segir gróf mannréttindabrot framin daglega á Íslandi þegar hreyfihömluðum er meinaður greiður aðgangur að opinberum stöðum og íbúðarhúsnæði. Hann gagnrýnir byggingarfulltrúa og skipulagsyfirvöld harðlega og segir þau gefa afslátt af lögbundnum kröfum um aðgengi. Innlent 27.1.2021 14:00
Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda Vinna er hafin við lagningu nýs vegarkafla Vestfjarðavegar í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Kaflinn er 4,3 kílómetra langur fyrir Meðalnes, milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar. Suðurverk annast stóran hluta verksins sem undirverktaki Íslenskra aðalverktaka. Innlent 27.1.2021 13:45
Krapaflóðið lokar enn hringveginum Hringvegurinn milli Mývatns og Egilsstaða er enn lokaður þar sem krapastífla flæðir yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Innlent 27.1.2021 07:26
Malbika veginn að Urriðafossi Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu 1,2 kílómetra kafla Urriðafossvegar. Kaflinn nær frá gatnamótunum á hringveginum við Þjórsárbrú að bílaplani við Urriðafoss. Innlent 26.1.2021 09:31
Vonast eftir aðkomu lífeyrissjóða að Sundabraut Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun kynna skýrslu um gerð Sundabrautar og hvernig hægt verði að fara í þær framkvæmdir. Þetta sagði Sigurður í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þegar hann var spurður um mögulega aðkomu lífeyrissjóða að stórum samgönguframkvæmdum hér á landi. Innlent 24.1.2021 11:40
Týr flutti sjúkling frá Siglufirði Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð til í gær vegna sjúkraflutnings frá Siglufirði. Hvorki var hægt að flytja sjúkling landleiðina né í sjúkraflugi vegna slæms veðurs og ófærðar. Innlent 24.1.2021 09:31
Milljarðs halli á vetrarþjónustunni samhliða ákalli eftir aukinni þjónustu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þótt alltaf sé tekið mark á ábendingum frá vegfarendum um færð á vegum, þá þurfi Vegagerðin einnig að byggja ákvörðun um lokun vega á eigin upplýsingum. Þá sé um eins milljarðs halli á rekstri vetrarþjónustu á sama tíma og ákall séum aukna þjónustu. Innlent 23.1.2021 11:46