Eldgos og jarðhræringar
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 132 ›
Gosórói haldist nokkuð stöðugur síðustu daga Enn mælist mikill órói við gosstöðvarnar í Geldingadölum og hefur hann mælst nokkuð stöðugur síðustu daga. Innlent 12.7.2021 07:55
Líkur á að gos fylgi hlaupi í Grímsvötnum hafa aukist Ekkert varð úr hrakspám vísindamanna síðasta sumar þegar þeir töldu næsta víst að jökulhlaup yrði í Grímsvötnum það árið og því gæti mögulega fylgt eldgos en þetta tvennt fer oft saman á svæðinu. Og nú er staðan sú sama – eða í raun bendir fleira til þess að gos sé í vændum, því á liðnu ári hefur safnast enn meira vatnsmagn í vötnin og enn meiri kvika í kvikuhólfið. Innlent 12.7.2021 07:01
Hraunið streymir niður í Meradali gegnum gat í gígnum Virkni eldgossins við Fagradalsfjall hefur haldist nokkurn veginn óbreytt síðan í gærnótt, þegar gosið hófst að nýju með fullum krafti eftir lengsta óróahlé til þessa. Innlent 11.7.2021 11:16
Með gosið í gangi heima í stofu Hraunfoss hefur runnið með boðaföllum niður í Meradali í dag eftir að virkni í gígnum í Fagradalsfjalli breyttist skyndilega í nótt. Eldfjallafræðingur segir engin merki um að goslok séu í nánd. Innlent 10.7.2021 20:01
„Maður sér alveg slettast upp yfir gígbarminn sjálfan“ Órói við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli tók að aukast verulega í nótt og varð meiri en hann hefur verið síðustu fjóra daga. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir ómögulegt að segja til um hvort virknin eigi eftir að halda sér eða detta niður eftir einhverja klukkutíma eins og gerðist um síðustu helgi. Innlent 10.7.2021 12:08
Hraunslettur í gígnum á ný og óróinn rýkur upp Eldgosið í Fagradalsfjalli tók sig upp að nýju í nótt eftir að gosvirkni hafði legið að mestu niðri í fjóra sólarhringa. Eldbjarmi sást í gígnum í kringum miðnætti og fór ekkert á milli mála að þar var opinn jarðeldur með kraumandi kviku. Innlent 10.7.2021 03:11
Eldgosið í Fagradalsfjalli orðið stærra en meðalgos á svæðinu Vísbendingar eru um að það hægi á landssigi við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þær breytingar sem nú sjáist á eldgosinu gætu verið byrjunin á endalokunum. Engu sé þó hægt að slá föstu um goslok. Innlent 8.7.2021 21:21
Rauður bjarmi sést á ný í gígnum eftir tveggja sólarhringa goshlé Eftir tveggja sólarhringa goshlé hafa aftur sést merki um að opnast hafi fyrir glóandi kviku í gígnum í Fagradalsfjalli. Laust eftir miðnætti mátti á vefmyndavél Vísis greinilega sjá rauðleitan bjarma í gígskálinni, þótt ekki væri farið að sjást í hraunslettur. Innlent 8.7.2021 00:54
Hraunflæðið séð úr geimnum: Eldgosið í Fagradalsfjalli í forgrunni hjá BBC Blaðamaður Breska ríkisútvarpsins (BBC) birti í morgun grein á vef miðilsins þar sem fjallað er um gervihnetti, gervihnattamyndir og sérstaklega ratsjárgervihnetti sem notaðir eru til að vakta hreyfingar jarðarinnar, jökla og annarra jarðfræðilegra fyrirbæra. Lífið 7.7.2021 13:00
Eldgígurinn gæti verið að rumska eftir langan svefn Óróamæling í Fagradalsfjalli í morgun bendir til þess að eldgosið gæti verið að taka sig upp að nýju eftir lengsta goshlé til þessa. Miðað við upptaktinn eftir goshléin undanfarna tíu daga kæmi ekki á óvart ef sæist til jarðelds á ný á næstu klukkustundum. Innlent 7.7.2021 10:57
Gosið í dvala í sólarhring í lengsta hléi frá upphafi Enginn jarðeldur hefur sést á yfirborði í gígnum í Fagradalsfjalli í sólarhring. Þetta er lengsta goshlé frá upphafi eldgossins í Geldingadölum þann 19. mars síðastliðinn. Innlent 6.7.2021 23:40
Eldgígurinn lagðist í dvala í gærkvöldi Gosvirkni á yfirborði í eldgígnum í Fagradalsfjalli hætti skyndilega um ellefuleytið í gærkvöldi. Þó mátti sjá örlítið í rauðglóandi glóð skömmu eftir miðnætti en eftir það virðist gígurinn hafa lagst í dvala. Engin kvika hefur sést í gígnum á vefmyndavélum í morgun. Innlent 6.7.2021 11:11
Ekkert bendir til þess að gosið sé að hætta Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræðum, segir ekkert benda til þess að eldgosið í Fagradalsfjalli hætti á næstunni. Innlent 5.7.2021 21:52
Leirgos líklegasta skýringin á sprengingunni í Kaspíahafi Forsvarsmenn SOCAR, ríkisolíufyrirtækis Aserbaídsjan, segja svokallað leirgos vera líklegustu skýringuna fyrir sprengingunni í Kaspíhafi í gær. Mikið eldhaf lýsti upp himininn á svæðinu og vakti mikla furðu. Erlent 5.7.2021 09:41
Hraunslettur í gígnum á ný eftir sextán stunda goshlé Jarðeldur sást á ný í gígnum í Fagradalsfjalli um níuleytið í kvöld. Eldgosið hafði þá legið niðri frá því um fimmleytið í morgun. Innlent 4.7.2021 22:23
„Gerum allt eins ráð fyrir því að óróinn taki sig upp að nýju“ Gosórói í Geldingadölum féll á fimmta tímanum í nótt og hefur mælst lágur það sem af er degi. Það segir sérfræðingum þó lítið um hvernig gosið kemur til með að þróast í framtíðinni. Innlent 4.7.2021 13:13
Þokan á undanhaldi en gosmóðan hangir áfram yfir Það er þokuloft víða um land í dag, einkum á Norður- og Austurlandi, en því ætti að létta með hækkandi sólu þegar líður á daginn. Útlit er fyrir að gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi, sem legið hefur yfir Suðurlandi og suðvesturhorninu sé þó ekki á undanhaldi fyrr en á morgun. Innlent 4.7.2021 07:49
„Skrítnasta næturvakt sem ég hef verið á“ Veðurfræðingur sem kláraði næturvakt á Veðurstofu Íslands í morgun lýsir vaktinni sem skrítnustu næturvakt sem hún hefur verið á. Gosmóða og vígahnöttur settu svip sinn á hina undarlegu vakt. Innlent 3.7.2021 14:00
Gosórói minnkar aftur og lítið sést til jarðelds Verulega hefur dregið úr gosóróa í Fagradalsfjalli frá hádegi, samkvæmt óróariti Veðurstofunnar. Þá hefur ekki sést til glóandi hrauns renna frá gígnum síðustu klukkustundir á vefmyndavél Vísis. Innlent 1.7.2021 16:40
Hanna varnir fyrir Svartsengi, Grindavík og Reykjanesbraut Eldgosið í Fagradalsfjalli tók kipp í gærkvöldi með miklum hraunflæðigusum og mældust óróakviðurnar um tíma þær mestu frá upphafi gossins. Byrjað er að hanna varnarmannvirki til að verja Grindavík, Svartsengi og Reykjanesbraut. Innlent 30.6.2021 22:57
Eldgosið minnti rækilega á sig með mögnuðu sjónarspili Menn voru farnir að spyrja sig í fyrrakvöld hvort eldgosið í Fagradalsfjalli væri í andarslitrunum. Þar sem þoka hamlaði skyggni að gígnum fékkst þó engin engin staðfesting í gær á því hvað væri í gangi fyrr en þokunni létti í gærkvöldi. Innlent 30.6.2021 16:00
Engin augljós tákn um að eldgosinu sé að ljúka „Það eru engin augljós tákn um að þetta eldgos sé að hætta.“ Þetta sagði Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun þar sem eldgosið í Fagradalsfjalli var til umræðu. Innlent 30.6.2021 08:39
Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs Þyrlufyrirtækið Norðurflug má ekki lengur lenda með ferðamenn við gossvæðið í Geldingadölum. Þetta ákvað sýslumaðurinn á Suðurnesjum í gær og setti lögbann við lendingum frá fyrirtækinu. Innlent 30.6.2021 07:01
Eldgosið sést á ný í kröftugum gusuham á vefmyndavél Vísis Eftir að hafa verið hulið sjónum manna og vefmyndavéla undanfarinn sólarhring sést núna á ný til eldgígsins í Geldingadölum en þokunni létti af eldstöðinni um kvöldmatarleytið. Á vefmyndavél Vísis mátti sjá að mikill kraftur hefur verið í gosinu í kvöld og hraunið flætt í gusum frá gígnum með reglubundnu millibili. Innlent 29.6.2021 20:13
Ómögulegt að segja til um hvað sé að gerast á gosstöðvunum Jarðskjálftafræðingur segir ómögulegt að segja til um hvað sé að gerast á gosstöðvunum í Geldingadölum en þoka veldur því að sérfræðingar geta ekki farið að svæðinu í dag. Órói féll verulega í gærkvöldi sem gæti verið til marks um byrjunina á endanum á gosinu. Innlent 29.6.2021 12:06
Samfelldur gosórói byrjaði aftur um tvö í nótt Gosóróinn í Fagradalsfjalli er hafinn á ný eftir stutt hlé í gærkvöldi. Ekkert hefur sést á vefmyndavélum síðustu klukkustundirnar vegna lélegs skyggnis. Innlent 29.6.2021 07:18
Gosóróinn minnkar: „Byrjunin á endinum?“ Einhverjir hafa velt því fyrir sér í kvöld hvort eldgosinu við Fagradalsfjall sé lokið. Óróinn við gosstöðvarnar féll töluvert á níunda tímanum í kvöld og hefur verið á nokkurri niðurleið en hefur fundist að nýju þegar liðið hefur á kvöldið. Innlent 28.6.2021 22:36
Skjálftahrina hófst við Bláfjöll í nótt Skjálftahrina er nú í gangi við Þrengsli austan Bláfjalla í nótt. Um fimmtíu skjálftar hafa mælst þar frá miðnætti en þeir hafa allir verið í smærra lagi. Innlent 28.6.2021 11:28
Bjarga verðmætum áður en hraunið tekur bæinn Landeigendur Ísólfsskála keppast nú við að bjarga lausamunum og öðrum verðmætum áður en hraun flæðir yfir jörðina. Á sama tíma er verið að stika nýja gönguleið á stað þaðan sem sést yfir eldgíginn og áformað að opna nýtt bílastæði. Innlent 23.6.2021 22:26
Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. Innlent 22.6.2021 17:23