Gylfi með sigurmark Swansea annan leikinn í röð | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2017 21:30
Gylfi Þór Sigurðsson var maðurinn á bak við mikilvægan 2-1 heimasigur Swansea á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Gylfi var þarna að tryggja Swansea-liðinu þrjú stig annan leikinn í röð en í síðustu umferð skoraði hann sigurmark liðsins á Anfield. Þetta eru ótrúlega mikilvæg stig fyrir Swansea í baráttunni fyrir sæti sínu í deildinni. Gylfi skoraði sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok en hann lagði einnig upp fyrra mark liðsins. Gylfi hefur þar með komið að fjórtán mörkum Swansea á leiktíðinni, skoraði sjö sjálfur og gefið sjö stoðsendingar að auki. Alfie Mawson kom Swansea í 1-0 á 38. mínútu með skallamarki á fjærstönginni eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Gylfi hafði áður lagt upp mjög gott færi fyrir Fernando Llorente og Gylfi átti síðan gott skot undir lok hálfleiksins sem Forster varði í marki Southampton. Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki vel fyrir Swansea og Shane Long jafnaði metin á 58. mínútu eftir fallega sókn og sendingu Ryan Bertrand. Gylfi kom Swansea í 2-1 á 70. mínútu eftir skyndisókn og sendingu frá Luciano Narsingh. Það var nóg eftir en Swansea varði forystuna og landaði mikilvægum sigri.
Enski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sjá meira