Erlent
151 152 153 154 155 156 157 158 159 … 334 ›
Einn látinn og 23 saknað eftir flóðhestaárás Eins árs drengur er látinn og 23 er saknað eftir að flóðhestur réðst á bát í Malaví í gær og hvolfdi honum. Björgunarsveitir leita að fólkinu en litlar líkur eru taldar á því að nokkur finnist á lífi. Erlent 16.5.2023 19:08
Afríkuleiðtogar munu funda með Pútín og Selenskí Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, segir að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí, forsetar Rússlands og Úkraínu, hafi samþykkt að funda í sitthvoru lagi með sendinefnd skipaðri afrískum þjóðarleiðtogum um mögulegar leiðir til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 16.5.2023 16:29
Íslandi fái áfram fríar flugheimildir til 2026 Lausn sem Evrópusambandið og íslensk stjórnvöld hafa náð bráðabirgðasamkomulagi um felur í sér að Ísland fær áfram fríar losunarheimildir til og með árinu 2026. Þetta kom fram á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í dag. Erlent 16.5.2023 15:52
Reyndi að setja hundinn undir stýri til að sleppa við handtöku Lögregluþjónar í bænum Springfield í Colorado í Bandaríkjunum stöðvuðu um helgina ökumann fyrir of hraðan akstur. Þegar lögregluþjónn nálgaðist bílinn sá hann ökumanninn færa sig yfir í farþegasætið og setja hund sem var í bílnum í ökumannasætið. Erlent 16.5.2023 15:07
Tölvuþrjótarnir kalla Vesturlönd nasista Tölvuþrjótahópurinn NoName057(16) hefur lýst yfir ábyrgð á netárásum á íslenska vefi í dag að því fram kemur í tilkynningu frá CERT-IS, í henni er NoName057(16) kallaður ógnarhópur. Hópurinn er hliðhollur Rússlandi. Erlent 16.5.2023 12:27
„Ógnvekjandi að finna sprengjuhvellina fara í gegnum mann“ Borgarbúar í Kænugarði vöknuðu upp með andfælum í nótt við einstaklega umfangsmikla eldflaugaárás Rússa en loftvarnakerfi Úkraínumanna skaut niður sex ofurhljóðfráar flaugar. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari segir það hafa verið ógnvekjandi að finna sprengjuhvellina fara í gegnum sig. Erlent 16.5.2023 12:06
Fjöldi manna talinn af eftir að Mocha skall á Búrma Staðfest er að sex manns hafi farist þegar fellibylurinn Mocha gekk á land í Búrma (Mjanmar) en óttast er að mannskaðinn reynist mun meiri þegar uppi verður staðið. Svo virðist sem að nágrannaríkið Bangladess hafi farið betur út úr bylnum en útlit var fyrir á tímabili. Erlent 16.5.2023 11:28
„Við leiddum óvininn í Bakhmut-gildru“ Rússneskir hermenn og málaliðar Wagner hafa náð tökum á stærstum hluta Bakhmut í austurhluta Úkraínu. Úkraínskir hermenn eru sagðir halda til í nokkrum fjölbýlishúsum í vesturhluta bæjarins en þeir hafa gert vel heppnaðar en umfangslitlar gagnárásir á jaðri Bakhmut. Erlent 16.5.2023 11:21
Birta myndir af Lúkasjenka til að kveða niður orðróm Nýjar myndir af Alexander Lúkasjenka, forseta Hvíta-Rússlands, voru birtar í dag, að því er virðist til þess að kveða niður orðróm um að forsetinn sé alvarlega veikur. Þær eru þó sagðar vekja nýjar spurningar um heilsu forsetans. Erlent 16.5.2023 10:23
Sakar Giuliani um að þvinga sig til kynlífs Kona sem fullyrðir að hún hafi unnið fyrir Rudy Giuliani, persónulegan lögmann Donalds Trump, sakar hann um að hafa þvingað sig til kynlífs og að skulda henni milljónir í launagreiðslur. Hún segir eiga upptökur af lögmanninum. Giuliani hafnar ásökununum alfarið. Erlent 16.5.2023 08:49
Sex látnir í eldsvoða á gistiheimili í Wellington Að minnsta kosti sex eru látnir og ellefu er saknað eftir að eldur braust út á gistiheimili í Wellington á Nýja-Sjálandi. Fleiri en 50 var bjargað úr byggingunni. Erlent 16.5.2023 07:38
Ein umfangsmesta árásin á Kænugarð hingað til Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt eina hörðustu loftárásina á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, til þessa. Þetta er í áttunda sinn í þessum mánuði sem flaugum er skotið á borgina og drónum beitt en yfirmaður hersins í Kænugarði, Serhiy Popko, segir að í þetta sinn hafi árásin verið afar hörð. Erlent 16.5.2023 06:32
Þrír látnir í enn einni skotárásinni Þrír eru látnir og þónokkrir særðir, þar á meðal tveir laganna verðir, eftir skotárás í Nýju-Mexikó í Bandaríkjunum í dag. Það sem af er ári hafa 224 fjöldaskotárásir verið framdar í Bandaríkjunum. Erlent 15.5.2023 22:45
Senda Úkraínumönnum einnig langdræga dróna Bretar ætla að útvega Úkraínumönnum hundruð langdrægra sjálfsprengidróna og þjálfa úkraínska flugmenn á F-16 orrustuþotur. Þetta er í kjölfar þess að Bretar byrjuðu að senda stýriflaugar til Úkraínu en Úkraínumenn eru þegar byrjaðir að nota þær til árása gegn Rússum í austurhluta landsins og Rússar segjast hafa skotið eina niður. Erlent 15.5.2023 16:24
Slapp með skrekkinn frá hákarlaárás Sjóstangveiðimaður komst í hann krappan undan ströndum Honolulu í Havaí á dögunum. Scott Haraguchi hafði nýverið veitt fisk á kajak og var að undirbúa sig fyrir að kasta aftur, þegar tígrisháfur synti að honum á miklum hraða og beit duglega í kajakinn. Erlent 15.5.2023 15:08
Erdogan í góðri stöðu fyrir aðra lotu Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er í góðri stöðu eftir fyrstu lotu forsetakosninga. Flokkarnir á bakvið hann héldu líklega meirihluta á þingi og hann er aðeins rúmlega hálfu prósentustigi frá því að tryggja sér meirihluta atkvæða. Erlent 15.5.2023 12:01
Bauðst til að benda á rússneska hermenn í skiptum fyrir Bakhmut Yevgeniy Prigozhin, rússneskur auðjöfur sem rekur málaliðahóp sem kallast Wagner Group, er sagður hafa boðið úkraínska hernum að segja þeim hvar rússneska hermenn mætti finna. Í skiptum vildi hann að Úkraínumenn hörfuðu frá bænum Bakhmut, sem Wagner hefur reynt að hernema frá síðasta sumri. Erlent 15.5.2023 10:11
Stjórnarandstaðan vann mikinn sigur í Taílandi Stjórnarandstöðuflokkar í Taílandi unnu mikinn sigur í þingkosningunum sem fram fóru um helgina og virðast landsmenn hafa snúið baki við hernum sem stýrt hefur landinu síðustu ár. Erlent 15.5.2023 07:52
Selenskí í óvæntri heimsókn á Bretlandseyjum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti heldur áfram ferðalagi sínu og í morgun mætti hann í óvænta heimsókn til Bretlands, þar sem hann mun funda með forsætisráðherranum Rishi Sunak. Erlent 15.5.2023 07:03
Allar líkur á annarri umferð í forsetakosningunum í Tyrklandi Mestar líkur virðast nú vera á því að önnur umferð muni fara fram í forsetakosningunum í Tyrklandi, þar sem kosið verður á milli tveggja efstu frambjóðandanna. Erlent 15.5.2023 06:39
Sykraðir drykkir innihalda hundrað sinnum meira plast en flöskuvatn Sykraðir gosdrykkir innihalda allt að 100 sinnum meira plast en drykkjarvatn í flöskum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem gerð var á Spáni. Erlent 14.5.2023 23:43
Bilið milli Erdogan og Kilicdaroglu minnkar Munurinn milli forsetaframbjóðenda í Tyrklandi hefur minnkað síðan fyrstu tölur bárust í kvöld. Enginn frambjóðandi er með yfir helming atkvæða eins og stendur. Endi kosningarnar þannig þarf að ganga aftur til kosninga. Erlent 14.5.2023 20:58
Erdogan leiðir en Kilicdaroglu er sigurviss Núverandi forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, leiðir forsetakosningarnar í landinu eftir fyrstu tölur. Búið er að telja tæplega rúm fjörutíu prósent atkvæða og fékk Erdogan um 52,5 prósent þeirra. Helsti andstæðingur Erdogan í kosningunum, Kemal Kilicdaroglu, fékk 41,55 prósent atkvæða. Erlent 14.5.2023 17:35
Ungum nauðgurum fjölgar Drengjum undir lögaldri sem nauðga jafnöldrum sínum hefur fjölgað um 60 prósent á Spáni á nokkrum árum. Sérfræðingar telja að helsta ástæða þessarar þróun sé gegndarlaust gláp drengjanna á klám á netinu. Erlent 14.5.2023 16:58
Fleiri en tvö hundruð látin svelta sig til bana Rúmlega tvö hundruð lík fólks sem tilheyrði kristnum dómsdagssöfnuði hafa nú fundist í skógi í Kenía. Fyrrverandi prédikari hjá söfnuðinum segir að börn hafi verið þau fyrstu sem voru látin svelta sig til bana áður en röðin kom að fullorðnum. Erlent 14.5.2023 13:49
Twitter sagt láta undan þrýstingi Erdogan Andófsmaður og rannsóknarblaðamaður eru á meðal þeirra sem samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa fallist á að fela fyrir tyrkenskum notendum sínum rétt fyrir mikilvægustu kosningar í landinu í áraraðir. Twitter hefur ekki sagt hvers kyns efni miðilinn samþykkti að ritskoða. Erlent 14.5.2023 09:23
Hundruð þúsundir flýja öflugan fellibyl Fellibylurinn Mocha stefnir nú á strendur Bangladess og Búrma með sjávarflóðum á svæðum þar sem um tvær milljónir manna búa. Hundruð þúsundir manna hafa verið flutt af svæðinu fyrir komu bylsins. Erlent 14.5.2023 08:22
Ræðir vopn og nánara samstarf við þýska leiðtoga Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er nú í Þýskalandi í fyrsta skipti frá því að Rússar réðust inn í heimaland hans í fyrra. Hann segist ætla að ræða hernaðaraðstoð og aðild að Evrópusambandinu og NATO í heimsókninni. Ítalskir leiðtogar hétu honum áframhaldandi stuðningi í Róm í gær. Erlent 14.5.2023 07:57
Skrúfa fyrir valið efni korter í kosningar Samfélagsmiðillinn Twitter hefur tilkynnt að ákveðið efni á miðlinum verði ekki aðgengilegt notendum hans í Tyrklandi. Gríðarlega mikilvægar kosningar verða í landinu á morgun en litlu sem engu munar á sitjandi forsetanum Erdogan og keppinauti hans Kemal Kilicdaroglu í skoðanakönnunum. Erlent 13.5.2023 21:24
Selenskíj til fundar við páfa Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, kom til Rómarborgar í morgun en hann hygst funda með Frans páfa og ítölskum ráðamönnum. Páfi heldur því fram að Páfagarður vinni að því að koma á friði í Úkraínu á bak við tjöldin. Erlent 13.5.2023 10:00