Viðskipti erlent
289 290 291 292 293 294 295 296 297 … 334 ›
Moody´s sakað um að blása upp lánshæfiseinkunnir Fyrrverandi greinandi hjá matsfyrirtækinu Moody´s hefur sakað Moody´s um að blása upp lánshæfiseinkunnir sínar. Hefur hann farið með málið fyrir ransóknarnefnd á Bandaríkjaþingi, að því er segir í blaðinu Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 23.9.2009 08:54
Barroso minnti írska kjósendur á örlög Íslands José Manuel Barroso nýkjörinn forseti framkvæmdastjórnar Ervrópusambandsins minnti írska kjósendur á örlög Íslendinga þegar hann heimsótti Limerick á Írlandi um síðustu helgi. Barroso var þar á ferð til að styðja baráttuna fyrir því að Írar samþykktu Lisbon-sáttmálann í komandi kosningum. Viðskipti erlent 23.9.2009 08:37
Hlutabréfamarkaðurinn hefur ekki verið hærri í Bandaríkjunum í ár Hlutabréf á Wall Street hækkuðu í kvöld og hafa ekki verið hærri það sem af er ári. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,5%, Nasdaq hækkaði um 0,4% og S&P 500 hækkaði um 0,7%. Viðskipti erlent 22.9.2009 22:16
Blóðbað meðal svissneskra úraframleiðenda Sala á lúxusvörum hefur hrapað í kreppunni og nú finna starfsmenn hjá svissneskum úraframleiðendum fyrir því. Talið er að minnkandi sala á úrum muni kosta um 3.000 störf í þessum iðnaði í Sviss. Viðskipti erlent 22.9.2009 14:48
Tvívolíið í Kaupmannahöfn heldur sínu í kreppunni Þótt að komum erlendra ferðamanna í Tívolíið í Kaupmannahöfn hafi fækkað töluvert í ár hefur komum heimamanna fjölgað á móti þannig að þessi þekkti ferðamannastaður hefur haldið sínu í kreppunni. Viðskipti erlent 22.9.2009 10:58
Bank of America fyrir dóm vegna bónusgreiðslna Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna (SEC) ætlar að draga stjórn Bank of America fyrir dómstóla vegna þess að stjórnin dró fjárfesta á asnaeyrunum þegar hún lýsti því yfir að engar bónusgreiðslur yrðu greiddar til starfsmanna Merrill Lynch án samþykkis hlutafjáreigenda. Viðskipti erlent 22.9.2009 10:24
Norðmenn íhuga olíuleit við Jan Mayen Í dag mun sendinefnd frá Noregi með Terje Riis-Johansen olíu- og orkumálaráðherra landsins í broddi fylkingar heimsækja Jan Mayen. Samkvæmt frétt um málið á vefsíðunni e24.no eru Norðmenn nú að íhuga olíuleit á Jan Mayen hryggnum í framhaldi af áformum Íslendinga á Drekasvæðinu. Viðskipti erlent 22.9.2009 09:35
Kíló af sænskum humar selt á 20.000 krónur Fyrsti humar fiskveiðaársins í Svíþjóð var seldur á 1.100 krónur sænskar kílóið á uppboði í morgun eða rétt tæplega 20.000 kr. íslenskar. Viðskipti erlent 22.9.2009 08:42
Gengið frá láni danskra stjórnvalda til Föroya Banki Í dag var gengið frá láni danskra stjórnvalda til Föroya Banki en lánið kemur úr svokölluðum bankpakke II. Upphæð lánsins er rétt rúmlega 204 milljónir danskra kr. eða um 5 milljarðar kr. Viðskipti erlent 21.9.2009 15:12
Íslandshrun leiðir til breytinga í fjármálum breskra sveitarfélaga Hið gífurlega tap bæjar- og sveitarfélaga á hruni íslenska bankakerfisins s.l. haust hefur leitt til grundvallarbreytinga í stjórn á fjármálum þessara félaga. Fulltrúar þeirra eiga nú í viðræðum við forstjóra sjóða í The City, fjármálahverfi Lundúna, um stofnun nýrra sjóða sem sjái sérstaklega um að ávaxta fjármuni bæjar- og sveitarfélaganna. Viðskipti erlent 21.9.2009 10:45
Hertar bankareglur G-20 munu draga úr hagnaði banka Leiðtogar G-20 ríkjanna hittast í vikunni og á fundi þeirra verður reynt að herða reglur um starfsemi banka. Í frétt á Bloomberg fréttaveitunni segir að um umfangsmestu uppstokkun á þessum reglum verði að ræða síðan upp úr 1930. Talið er að reglurnar muni draga úr hagnaði bankanna og á þeim bæjum eru menn ekki sáttir. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:52
Fjármálaspekingur: Alheimsgjaldmiðill árið 2024 Kínverski fjármálaspekingurinn og rithöfundurinn Song Hongbing segir í nýrri bók sinni, Gjaldeyrisstríðin, annar hluti (The Currency Wars Two) að dularfull en geysiöflug alþjóðleg samtök muni árið 2024 losa sig við dollara og aðra helstu gjaldmiðla heimsins og taka upp einn sameiginlegan alheimsgjaldmiðil. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:08
Spá frekari samdrætti í jólakaupum vestan hafs Fyrstu spár um jólaeyðslu Bandaríkjamanna eru komnar í hús og telja sérfræðingar Deloitte að hinn almenni neytandi muni halda fast um budduna frekar en hitt. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:03
Karen Millen langar að kaupa Karen Millen af Kaupþingi Tískudrottningin Karen Millen hefur áhuga á því að kaupa tískuverslanakeðjuna Karen Millen af skilanefnd Kaupþings. Millen stofnaði keðjuna árið 1981 og var þá aðeins með 100 pund milli handanna. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:39
AGS selur 400 tonn af gulli fyrir 1.600 milljarða Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur ákveðið að selja yfir 400 tonn af gullforða sínum. Verðmæti þessa gulls er um 13 milljarðar dollara, eða rúmlega 1.600 milljarðar kr. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:27
Landstjóri Guernsey fagnar málshöfðun gegn neyðarlögunum Lyndon Trott landstjóri á Guernsey segir að hann fagni fyrirhuguðu dómsmáli innistæðueigenda í útibúi Landsbankans á eyjunni. Ennfremur muni stjórnvöld á eyjunni styðja við bakið á innistæðieigendunum fari mál þeirra fyrir íslenska dómstóla. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:00
Magma: Tapaði rúmum 500 milljónum á síðasta ári Tap Magma Energy nam tæpum 4,5 milljónum dollara á síðasta rekstrarári félagsins (árið er júní til júní) eða rúmlega 500 milljónum kr. Af þessu tapi féllu tæplega 1,9 milljón dollara til á síðasta ársfjórðungi rekstrarársins. Viðskipti erlent 18.9.2009 13:40
Álverðið hefur hækkað um 100 dollara í vikunni Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara í vikunni. Þessa stundina stendur verðið í 1.946 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga sem er helsta viðmiðunarverðið á þessum markaði. Viðskipti erlent 18.9.2009 12:52
Markaðsvirði Twitter orðið milljarður dollara Markaðsverðmæti félagslegu netsíðunnar Twitter er nú orðið einn milljarður dollara eða tæplega 124 milljarðar kr. Þetta þykir nokkuð gott í ljósi þess að Twitter er enn í sömu skrifstofum í San Francisco þar félagið hóf starfsemi sína 2006 og starfsfólkið telur ekki nema um 50 manns. Viðskipti erlent 18.9.2009 10:59
Adidas og Puma binda enda á 60 ára illdeilur Þýsku íþróttavörurisarnir Adidas og Puma hafa ákveðið að binda endi á 60 ára gamlar illdeilur milli fyrirtækjanna. Verður þetta gert með vinaleik í fótbolta milli starfsmannaliða þeirra. Viðskipti erlent 18.9.2009 09:55
deCODE fær aðvörun frá Nasdaq deCODE hefur aftur fengið aðvörun frá Nasdaq kauphöllinni í New York vegna þess að verð á hlutum í félaginu hefur verið undir lögboðnu lágmarki undanfarna 30 daga. Samkvæmt reglum Nasdaq má verð á hlut í félögum sem skráð eru á þessum markaði ekki vera undir einum dollara. Viðskipti erlent 18.9.2009 09:34
Skilnaður að baki nær fimmtu hverjum íbúðaviðskiptum Dana Ný könnun leiðir í ljós að rekja má nær fimmtung af öllum íbúðaviðskiptum í Danmörku til skilnaða. Þetta er veruleg aukning frá árinu 2006 þegar samskonar könnun leiddi í ljós að 10% viðskiptanna mátti rekja til skilnaða. Viðskipti erlent 18.9.2009 08:52
Breska FSA kannar sölu á JJB Sports hlutum til Kaupþings Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur boðað Chris Ronnie fyrrverandi forstjóra JJB Sports á sinn fund í næstu viku til að ræða sölu hans á hlutum í JJB Sports til Kaupþings. Eins og áður hefur komið fram var Ronnie viðskiptafélagi Exista í Bretlandi og um tíma átti hann og Exist um 30% hlut í JJB Sports. Viðskipti erlent 18.9.2009 08:46
Dönsk stjórnvöld kanna málssókn gegn eigin fjármálaeftirliti Ríkisstjórn Danmerkur er nú að kanna hvort hægt sé að hefja málsókn (tjenestemandssag) gegn stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Ástæðan fyrir málsókinni er ábótavant eftirlit hins danska FME með Roskilde Bank sem varð gjaldþrota fyrr í ár. Viðskipti erlent 17.9.2009 14:16
Írskir skattgreiðendur fá 16.000 milljarða reikning Írskir skattgreiðendur verða að punga út 80 milljörðum punda eða um 16.000 milljörðum kr. til að bjarga bönkum landsins frá hruni. Þetta er upphæðin sem írsk stjórnvöld hafa ákveðið að greiða fyrir ónýt lán í bönkum landsins. Þessum lánum verður safnað saman í einn „slæman banka" sem verður fjármagnaður af ríkissjóði landsins. Viðskipti erlent 17.9.2009 10:30
French Connection skilar 2,6 milljarða tapi Breska verslunarkeðjan French Connection skilaði tapi upp á tæpar 13 milljónir punda, eða um 2,6 milljarða kr., fyrir skatta á sex mánaða tímabili sem lauk í endan á júlí. Tapið kemur þrátt fyrir nokkra söluaukningu eða um 4% hjá keðjunni á tímabilinu. Viðskipti erlent 17.9.2009 09:48
Metatvinnuleysi á Bretlandi Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið meira í 15 ár, eða frá árinu 1994. Fjöldi atvinnulausra Breta jókst um 210 þúsund í 2,47 milljonir á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þetta sýna tölur sem breska blaðið Telegraph hefur frá hagstofunni þar í landi. Viðskipti erlent 16.9.2009 11:20
Facebook skilar hagnaði í fyrsta sinn Mark Zuckerberg, hugmyndasmiðurinn að baki, nettengslasíðunnar Facebook tilkynnti nýlega að Facebook hefði skilað hagnaði í fyrsta sinn frá því að síðan var sett upp árið 2004. Viðskipti erlent 16.9.2009 09:32
Vilja kaupa Karen Millen og Oasis af Kaupþingi Tískuvörurisinn Debenhams er nú sagður íhuga að fjárfesta í verslunarkeðjunum Karen Millen og Oasis sem nú eru í eigu Kaupþings en áður Baugs. Bloomberg segir frá þessu í kvöld en þetta er haft eftir innanbúðarmanni hjá Debenhams. Viðskipti erlent 15.9.2009 20:51
Enginn vildi dollara danska seðlabankans Danskir bankar höfðu vægast sagt lítinn áhuga á að bæta lausafjárstöðu sína með dollurum sem í boði voru hjá danska seðlabankanum, Nationalbanken, í dag. Viðskipti erlent 15.9.2009 15:45