Er ekki fúll yfir því að sitja á bekknum 4. nóvember 2006 14:15 Hilario hefur slegið í gegn hjá Chelsea á undanförnum vikum. Getty Images
Portúgalski markvörðurinn Hilario hjá Chelsea segist reiðubúinn að gefa sæti sitt í byrjunarliði liðsins til Ítalans Carlo Cudicini, sem er orðinn heill heilsu eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Reading fyrir nokkrum vikum. Chelsea tekur á móti Tottenham á morgun. Hilario þykir hafa staðið sig með afbrigðum vel í fjarveru Cudicini og Petr Cech og var til að mynda tekinn framyfir þann fyrrnefnda í leiknum gegn Barcelona á þriðjudag, jafnvel þó að Cudicini væri leikfær. En sjálfur segist Hilario ekki eiga von á því að vera í byrjunarliðinu mikið lengur. "Ég var fenginn hingað sem þriðji markvörður og þó að ég hafi haft ómælda ánægju af því að spila þessa síðustu leiki verð ég ekki svekktur á því að setjast á bekkinn á ný. Cudicini er orðinn heill og ég býst við því að hann komi inn í liðið mjög fljótlega. Ég æfi vel og held mér í góðu formi og er tilbúinn þegar kallið kemur. En ég virði ákvörðun stjórans," segir Hilario og bætti því við að það sem skipti öllu máli er að Chelsea nái árangri. "Hvort sem ég er á bekknum eða utan leikmannahópsins óska ég liðinu alltaf alls hins besta. Það er mikil samkeppni í öllum stöðum hjá Chelsea og leikmenn mega ekki taka því persónulega ef þeir fá ekki að spila," segir Hilario.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Handbolti Fleiri fréttir Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sjá meira