Það á að fangelsa svona aumingja 5. nóvember 2006 13:00 Claus Jensen var hetja Fulham gegn Everton í gær. Getty Images
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, er öskuvondur út í þann sem henti smápeningi úr stúkunni í viðureign Fulham og Everton í gær sem hafnaði á höfði Claus Jensen, markaskorara Fulham í leiknum. Coleman segir viðkomandi vera heigul sem eigi heima í fangelsi. "Svona framkoma er náttúrlega óþolandi og veldur mér miklum vonbrigðum. Almennt hefur hegðan áhorfenda í ensku úrvalsdeildinni verið í mikilli framför en inn á milli leynast svona heiglar og aumingjar. Ég vona að sá sem kastaði peningnum finnist. Það á að koma honum í burtu frá fótboltavellinum og henda honum í fangelsi," sagði Coleman ómyrkur í máli. Jensen var ekki meint af peningnum en Coleman gerði ráð fyrir því að það hefði verið stuðningsmaður Everton sem henti honum úr stúkunni. Atvikið átti sér stað rétt eftir að Jensen hafði skorað markið sem reyndist ráða úrslitum í leiknum. David Moyes, stjóri Everton, vildi þó ekki útiloka að það hefði verið heimamaður sem var að verki. "Ég er sammála Coleman um að það á að banna svona fólki að mæta á völlinn en það eru alveg jafn miklar líkur á að það hafi verið stuðningsmaður Fulham sem henti peningnum. Það getur vel verið að hann hafi verið að miða á einhvern minna leikmanna," sagði Moyes.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Fleiri fréttir Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sjá meira