Lyn í miklum fjárhagsörðugleikum - Indriði á leið burt? Elvar Geir Magnússon skrifar 21. júlí 2009 12:53 Indriði er orðaður við Brann og Vålerenga.
Svo gæti farið að norska liðið Brann verði með alíslenska varnarlínu. Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að landsliðsmaðurinn Indriði Sigurðsson sé á óskalista félagsins en hann er samningsbundinn Lyn. Lyn á í mjög miklum fjárhagsörðugleikum og þarf að selja leikmenn. Félagið hefur samið við leikmenn sína um 7,5% launalækkun og þá sjá leikmennirnir sjálfir um að þrífa æfingafötin og færri ferðast með liðinu í útileiki. Allt er gert til að spara hverja einustu mögulegu krónu. Lyn situr í botnsæti norsku úrvalsdeildarinnar. Indriði er talinn líklegur til að vera fyrsti leikmaðurinn til að hverfa á braut en Vålerenga hefur einnig áhuga á að fá hann. Tveir aðrir Íslendingar eru á mála hjá Lyn, Theodór Elmar Bjarnason og markvörðurinn Arnar Darri Pétursson. Brann situr í sjötta sæti norsku deildarinnar en hjá liðinu eru Íslendingarnir Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason, Birkir Már Sævarsson, Gylfi Einarsson og Ármann Smári Björnsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Sjá meira