Fékk fimm ára bann fyrir að eitra fyrir félögunum í hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2011 23:30 Giuseppe Signori var einn þeirra sem var dæmdur í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Marco Paoloni, 27 ára ítalskur markvörður, var í dag dæmdur í fimm ára keppnisbann af aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins, eftir að upp komst um að Paoloni hafi laumað verkjalyfi í drykki félaga sinna í hálfeik í leik með Cremonese-liðinu. Paoloni eitraði fyrir félögum sínum í leik Cremonese á móti Paganese en hann ætlaði með því að reyna að hafa áhrif á úrslit leiksins. Málið er tengt nýjasta hneykslinu um hagræðingu úrslita í ítalska fótboltanum. Cremonese var 2-0 yfir í hálfleik í umræddum leik á móti Paganese í ítölsku B-deildinni en Paoloni stóð í markinu allan tímann sem Cremonese vann 2-0. Paoloni spilaði aðeins einn leik til viðbótar áður en hann færði sig yfir til Benevento. Paoloni er fyrrum unglingalandsliðsmarkvörður og varð Evrópumeistari með 19 ára landsliði Ítala árið 2003. Aganefndin gaf út fleiri útskurði í dag. Ítalska félagið Atalanta mun þannig byrja nýtt tímabil með sex stig í mínus og fyrirliði Atalanta-liðsins, Cristiano Doni, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs keppnisbann. Giuseppe Signori, fyrrum fyrirliði Lazio og leikmaður með landsliðinu, má heldur ekki koma að knattspyrnumálum í fimm ár.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira