Balotelli þarf að þroskast ef Mancini tekur við Ítalíu Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. júlí 2014 16:15 Hey, þú. Þroskast! vísir/getty
Roberto Mancini, fyrrverandi þjálfari Inter og Manchester City, er meira en klár í að taka við ítalska landsliðinu sem er þjálfaralaust. Mancini yfirgaf Galatasaray í vor eftir eitt ár við stjórnvölinn hjá tyrkneska félaginu, en eftirmaður hans er Cesari Prandelli sem stýrði Ítalíu á HM. Prandelli gerði nýjan tveggja ára samning við ítalska knattspyrnusambandið fyrir HM í Brasilíu en eftir að liðið féll úr leik í riðlakeppninni sagði hann af sér. „Það yrði algjör heiður fyrir mig að þjálfa Ítalíu,“ segir Mancini í viðtali við ítalska íþróttablaðið Corriere dello Sport. Ítalska liðið var gagnrýnt fyrir að vera of gamalt á HM í Brasilíu en Mancini tekur ekki undir það. „Leikmennirnir of gamlir? Aldur skiptir engu máli,“ segir hann. Stjörnuframherji ítalska landsliðsins er Mario Balotelli, leikmaður AC Milan. Mancini og Balotelli unnu saman hjá Inter og síðar Manchester City, en það er vægt til orða tekið þegar sagt er að þeir hafi ekki alltaf átt skap saman. „Ég elska Balotelli en hann þarf að þroskast. Það er hægt að byggja þetta lið í kringum Marco Verratti og Ciro Immobile,“ segir Roberto Mancini.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Handbolti Fleiri fréttir Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Sjá meira