Jimmy Walker í góðum málum á Valero Texas Open 28. mars 2015 22:40 Jimmy Walker sallarólegur á þriðja hring í kvöld. Getty
Bandaríkjamaðurinn Jimmy Walker hefur sýnt um helgina af hverju hann sigraði á þremur atvinnumótum á síðasta tímabili en fyrir lokahringinn á Valero Texas Open leiðir hann með fjórum höggum. Walker lék þriðja hringinn á TPC San Antonio vellinum á 69 höggum eða þremur undir pari en hann er samtals á níu höggum undir pari. Eins og staðan er núna þá virðist Jordan Spieth vera eini kylfingurinn sem getur gert atlögu að Walker á lokahringnum en hann er einn í öðru sæti á fimm höggum undir pari, fjórum höggum á eftir fyrsta sætinu. Aðstæður á TPC San Antonio hafa verið mjög erfiðar hingað til en vindur og hraðar flatir hafa gert mörgum bestu kylfingum PGA-mótaraðarinnar erfitt fyrir, sem þýðir að aðeins ellefu kylfingar eru undir pari fyrir lokahringinn. Hann verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 á morgun.
Golf Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira