Heillum horfinn Tiger lék sinn versta hring á ferlinum 6. júní 2015 17:00 Woods var bugaður á 18. holu í dag. Getty
Tiger Woods lék sinn versta hring á ferlinum á þriðja degi Memorial mótsins sem nú fer fram á Ohio í Bandaríkjunum en hann kom inn á 85 höggum eða 13 höggum yfir pari. Woods náði niðurskurðinum í gær og byrjaði daginn einn undir pari en það breyttist fljótlega á hringnum í dag þar sem hann fékk aðeins einn fugl á Muirfield vellinum en sex skolla, tvo tvöfalda skolla og svo endaði hann á fjórföldum skolla á 18. holu. Það er óhætt að segja að frammistaða þessa fyrrum besta kylfings heims komi á óvart en hann hefur æft stíft að undanförnu og sýndi á síðasta hring í gær mörg góð tilþrif. Woods hefur þá leikið tvo verstu hringi sína á ferlinum á PGA-mótaröðinni í ár en hann lék á 82 höggum á Phoenix Open fyrr á árinu.
Golf Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira