Gregg Ryder: Fyrri hálfleikur drap okkur Árni Jóhannesson skrifar 22. maí 2016 22:00 Gregg Ryder var daufur að leikslokum í kvöld. vísir/stefán
Þjálfari Þróttar var daufur í dálkinn, skiljanlega þegar blaðamaður náði á hann eftir 1-4 tap Þróttar gegn Valsmönnum í kvöld. Hann tók undir að þetta hefði verið erfiður dagur á skrifstofunni. „Við verðum að læra af þessum leikjum en þessi leikur var eins og leikurinn á móti Stjörnunni þar sem við spiluðum ekki vel og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þetta má ekki gerast reglulega, við erum of óstöðugir.“ Leikmenn Þróttar voru ekki að gera sér neina greiða í dag en þeir gáfu boltann allt of oft frá sér þannig að Valur náði að skapa sér færi og skora í leiknum í kvöld. „Öll mörkin í fyrri hálfleik komu úr slíkum aðstæðum. Við höfðum tala um það að Valur vilji spila þannig að okkur sé þrýst aftur en við leyfum þeim í gríð og erg að fá boltann fyrir framan teiginn og þeir nýttu það sérstaklega þegar Guðjón Pétur fékk allan tímann í heiminum til að skjóta. Það á ekki að gerast þegar við vitum af þessu og er algjörlega óafsakanlegt að leyfa þetta.“ Gregg vill sjá meiri stöðugleika hjá sínum mönnum. „Við erum nýir í deildinni og með marga nýja leikmenn og við verðum að koma okkur upp stöðugleika. Þegar við vinnum leik eins og á móti Breiðablik þá verðum við að mæta jafn ákveðnir og fastir fyrir í næsta leik. Við vorum ekkert af þessum hlutum sérstaklega í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikur drap okkur í dag.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira