Gáfu Messi átta gullhringa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2023 07:31 Lionel Messi með gullhringina átta sem hann fékk frá Adidas. @adidasfootball Lionel Messi var á mánudagskvöldið verðlaunaður með sínum áttunda Gullhnetti á ferlinum sem besti knattspyrnumaður ársins. Franska blaðið France Football stendur fyrir Ballon d'Or verðlaununum og hefur gert frá árinu 1956.
Messi fékk verðlaunin fyrst og fremst fyrir það að hafa leitt Argentínu til sigurs á heimsmeistaramótinu í Katar þar sem hann skoraði sjö mörk og var valinn besti leikmaður mótsins. Hann vann einnig titilinn með Paris Saint Germain og endaði tímabilið síðan með Inter Miami. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc) Hinn 36 ára gamli var að vinna þessi verðlaun í áttunda skiptið á ferlinum en enginn annar hefur unnið fleiri en fimm Gullhnetti. Í hvert skipti hefur Messi fengið stórglæsilegan gullhnött sem fara nú langt með að fylla stofuna hjá honum. Adidas ákvað að gera gott betur og í tilefni af því að Messi er kominn til Bandaríkjanna þá var farin bandaríska leiðin. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc) Adidas gaf honum átta sérhannaða gullhringa en hver þeirra stendur fyrir eitt af árunum átta þar sem Messi hefur verið kosinn bestur. Messi fékk þessi verðlaun fyrst 22 ára gamall árið 2009 en hefur einnig unnið þau 2010, 2011, 2012, 2015, 2019, 2021 og svo í ár. Hér fyrir neðan má sjá Messi fá gullhringana afhenta. Þar má einnig sjá myndir af hverjum hring fyrir sig. View this post on Instagram A post shared by adidas Football (@adidasfootball) View this post on Instagram A post shared by adidas Football (@adidasfootball) Kannski þarf að endurhlaða fréttina til að sjá myndirnar úr Instagram færslum um gullhringa Messi.
Fótbolti Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Sjá meira