Innlent

Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykja­nesi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjaradeilum í Karphúsinu. 

Læknar aflýstu boðuðum aðgerðum sem áttu að hefjast á miðnætti og nú skal reynt til þrautar að landa samningi. Þá eru viðræður enn í gangi á milli kennara annarsvegar og fulltrúa sveitarfélaga og ríkis hinsvegar. Þar bættist í flóru þeirra skóla sem eru í verkfalli í morgun. 

Enn gýs á Reykjanesi og við heyrum í fulltrúa þeirra sem hafa verið að reyna að kæla hraunið við varnargarðana en sú aðgerð þykir hafa gengið vel. 

Einnig fjöllum við um Ráðgjafa-og greiningarstöð, sen vantar allt tvö hundruð og fimmtíu milljónir í fjárveitingar til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu, að sögn forstjóra.

Í íþróttunum verður fókusinn svo settur á Euro Basket, en Íslendingar mæta Ítölum ytra í kvöld. 

Klippa: Hádegisfréttir 25. nóvember 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×