Lukkan að snúast hjá Skagamönnum? ÍA vann mikilvægan og óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á laugardag. Farið var yfir fórnfýsi leikmanna Skagaliðsins í varnarleik sínum í Pepsi Max stúkunni, og velti Baldur Sigurðsson því upp hvort lukkan væri að snúast hjá Skagamönnum. Íslenski boltinn 19. júlí 2021 21:00
Á ekki að vera hægt í meistaraflokksbolta Sérfræðingar Pepsi Max stúkunnar gáfu ekki mikið fyrir varnarleik HK í fyrra marki KA gegn þeim fyrrnefndu í leik liðanna á Akureyri í gær. KA vann leikinn 2-0. Íslenski boltinn 19. júlí 2021 20:00
Lendir í því að sogast einhvern veginn að boltanum Farið var yfir mark KR í 1-1 jafntefli liðsins við Breiðablik í Stúkunni að loknum leikjunum í Pepsi Max deild karla á sunnudagskvöld. Varnarmenn Breiðabliks virtust aðeins gleyma sér og var í kjölfarið refsað. Íslenski boltinn 19. júlí 2021 13:30
Sjáðu mörkin úr óvæntum sigri ÍA, fyrstu mörk sumarsins á Greifavelli, sigurmark Lennon og glæsimark Höskuldar Hér að neðan má sjá mörkin úr síðustu fjórum leikjum Pepsi Max deildar karla. Íslenski boltinn 19. júlí 2021 08:30
Óskar Hrafn: Erfitt að vera dómari í eigin sök Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var sáttur eftir leikinn á Meistaravöllum, bæði með úrslitin og frammistöðu sinna manna. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 22:36
Umfjöllun og viðtöl: KR - Breiðablik 1-1 | Sanngjarnt jafntefli í toppslagnum KR og Breiðablik skildu jöfn, 1-1, í stórleik 13. umferðar Pepsi Max-deildar karla á Meistaravöllum í kvöld. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 22:27
Rúnar: Þeir sköpuðu ekki neitt Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, hefði viljað fá þrjú stig gegn Breiðabliki í kvöld en liðin gerðu 1-1 jafntefli á Meistaravöllum. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 22:22
Umfjöllun og viðtöl: FH - Fylkir 1-0 | Fyrsti sigur FH í deildinni síðan 17. maí FH unnu sinn fyrsta sigur síðan 17. maí. FH ingar fengu hvert dauðafærið á fætur öðru í fyrri hálfleik sem Aron Snær Friðriksson varði. Steven Lennon gerði fyrsta mark leiksins eftir tæplega 78 mínútna leik og mátti sjá að miklu fargi hafi verið létt af leikmönnum FH eftir að hafa farið illa með ansi mörg dauðafæri. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 22:00
Aron Snær: Við vorum skelfilegir í fyrri hálfleik Aron Snær Friðriksson markmaður Fylkis var svekktur í leiks lok eftir 1-0 tap gegn FH. Aron Snær átti frábæran leik í kvöld og því niðurstaðan ansi svekkjandi. Sport 18. júlí 2021 21:29
Umfjöllun og viðtöl: KA - HK 2-0 | KA vann í fyrsta leik sínum á Akureyri KA-menn lögðu HK-inga að velli í 13.umferð Pepsi Max deildarinnar á Akureyri í dag. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 17:00
Blikar þegar með fleiri mörk en helmingur liðanna í fyrra en mæta KR-grýlunni Ef að Breiðablik ætlar að sækja að Val í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta þarf liðið að kveða KR-grýluna í kútinn í kvöld. KR getur komist í 2. sæti með sigri. Íslenski boltinn 18. júlí 2021 11:00
Heimir: Höfðum engan áhuga á að spila fótbolta og hvað þá að berjast Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var ómyrkur í máli eftir tap Íslandsmeistaranna á Akranesi í dag. Íslenski boltinn 17. júlí 2021 18:27
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Valur 2-1 | Botnliðið vann toppliðið á Akranesi ÍA vann Val, 2-1, þegar botn- og topplið Pepsi Max-deildar karla áttust við á Akranesi í dag. Þetta var fyrsti sigur Skagamanna síðan 21. maí og gríðarlega mikilvægur fyrir þá. Íslenski boltinn 17. júlí 2021 18:26
Fjórtán prósent koma frá Breiðabliki Knattspyrnuunnandinn Leifur Grímsson hefur undanfarin sumur birt skemmtilega tölfræði úr Pepsi Max deildinni. Íslenski boltinn 17. júlí 2021 11:01
Morten aftur í FH Morten Beck Andersen er kominn aftur í FH eftir að hafa verið lánaður til ÍA fyrr í sumar. Íslenski boltinn 16. júlí 2021 21:00
Tímabilinu lokið hjá Hrannari: „Einn mesti sársauki sem ég hef fundið“ Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður KA, hefur sett sér það markmið að vera klár í slaginn þegar nýtt Íslandsmót í fótbolta hefst næsta vor. Hann er með slitið krossband í hné. Íslenski boltinn 16. júlí 2021 16:31
Helgi Valur kannast ekki við að hafa sagst ætla að hætta Fyrr í mánuðinum birtist grein þar sem fullyrt var að Helgi Valur Daníelsson myndi leggja skóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil. Helgi, sem varð fertugur í vikunni, segist þó ekki kannast við það að hafa látið þau ummæli út úr sér. Íslenski boltinn 15. júlí 2021 17:46
Yfir 130 milljónir í húfi fyrir íslenskan fótbolta í kvöld og Valur fær 120 FH, Breiðablik og Stjarnan eiga öll möguleika á að komast áfram í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA í fótbolta í dag. Fyrir hvert félag er 300.000 evru vinningsfé, eða tæpar 44 milljónir króna, í húfi eða samtals rúmar 130 milljónir. Íslandsmeistarar Vals hafa svo þegar tryggt sér 120 milljónir króna vegna Evrópuleikja í sumar. Fótbolti 15. júlí 2021 11:31
Þórir Jóhann seldur til Ítalíu Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason ferðast til Lecce á Ítalíu í dag og gengur þar endanlega frá samkomulagi við samnefnt félag sem spilar í næstefstu deild. Fótbolti 15. júlí 2021 09:16
Óli Jóh krækir í nafna sinn FH hefur samið við varnarmanninn Ólaf Guðmundsson en hann kemur til félagsins frá Breiðabliki. FH staðfesti félagaskiptin í kvöld. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 20:59
Fékk þrjú stig á fertugsafmælinu Fylkismaðurinn Helgi Valur Daníelsson varð fertugur í gær og fagnaði stórafmælinu með góðum sigri á KA-mönnum. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 16:01
Þórður í klandri í Kórnum: „Ætlar að gera einhverjar krúsídúllur“ Þórður Ingason, markvörður Víkinga, kom sér í klípu er hann var að dútla með knöttinn í leik Víkings og HK í Pepsi Max deild karla. Var það til umræðu í Stúkunni að leik loknum. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 14:15
Öll mörkin úr mánaðarlangri 12. umferð: Skæri Orra klipptu Brkovic niður Þrjú mörk voru skoruð þegar tólftu umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta lauk í gærkvöld með tveimur leikjum. Mörkin þrjú voru öll skoruð í Árbæ þar sem Fylkir vann KA 2-1. Öll mörkin úr umferðinni má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 11:31
Lof og last 12. umferðar: Sindri Kristinn, Arnþór Ingi, Orrarnir tveir í Árbæ og liðum að fatast flugið Tólftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk loks í gærkvöld. Hún hófst þann 16. júní en vegna landsleikja og Evrópuleikja færðist hún til svo henni lauk loks þann 13. júlí. Mikið gekk á í umferðinni og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 10:31
Pálmi skýtur alltaf í sama hornið og Sindri las hann Síðastliðinn mánudag vann KR 1-0 sigur gegn Keflavík þar sem Arnþór Ingi Kristinsson skoraði eina mark leiksins. Pálmi Rafn Pálmason misnotaði víti fyrir KR-inga og Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur í Pepsi Max Stúkunni, er búinn að taka eftir ákveðnu mynstri í spyrnum Pálma. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 07:00
Umfjöllun og viðtöl: HK - Víkingur 0-0 | Markalaust í Kórnum HK-ingar fengu Víking Reykjavík í heimsókn í Kórinn í kvöld þegar liðin spiluðu bæði sinn tólfta leik í Pepsi-Max deild karla. Bæði lið þurftu á þrem stigum að halda, en markalaust jafntefli þýðir að liðin skipta stigunum bróðurlega á milli sín. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 22:36
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - KA 2-1 | Mikilvægur heimasigur í Árbænum Fylkir tók á móti KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Fylkismenn stukku úr tíunda sæti upp í það sjötta með mikilvægum 2-1 sigri. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 22:29
Arnar Gunnlaugsson: Fórum of mikið að spila þeirra leik Víkingur Reykjavík gerði 0-0 jafntefli við HK í Kórnum í Pepsi-Max deild karla í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ósáttur í leikslok með að ná ekki að vinna en vildi þó virða stigið. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 21:55
Ólafur Stígsson: Mjög sáttur við strákana Ólafur Stígsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld gegn KA eftir erfitt gengi undanfarið. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn færast fjær fallbaráttunni. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 20:30
Vonast til að vera klár fyrir næsta leik eftir „hné í læri af dýrari gerðinni“ Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, átti svo sannarlega viðburðaríkan leik er lið hans tapaði 0-1 fyrir KR á Meistaravöllum í Pepsi Max deild karla. Sindri Kristinn fékk þungt högg á þriðju mínútu, kláraði leikinn og varði vítaspyrnu. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 15:01