Góð skor á fyrsta keppnisdegi á Hellu | Rúnar efstur Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbnum Keili er efstur í karlaflokki að loknum fyrsta keppnisdegi á Íslandsmótinu í höggleik á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Rúnar lék Strandarvöll á 4 höggum undir pari vallar eða 66 h0ggum. Höggi á eftir koma þeir Andri Már Óskarsson úr GHR og Haraldur Franklín Magnús úr GR en þeir léku báðir á 67 höggum. Skor kylfingar var gott í dag og léku alls 14 keppendur á pari vallar eða betur. Golf 26. júlí 2012 19:58
Birgir Leifur: Alls ekki sáttur við hringinn Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG var alls ekki sáttur við fyrsta hringinn hjá sér á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst í dag á Strandarvelli við Hellu. Birgir, sem er fjórfaldur Íslandsmeistari, lék á einu höggi undir pari vallar eða 69 höggum. Hann er sem eins og staðan er þessa stundina í 8. sæti, þremur höggum á eftir efsta manni. Golf 26. júlí 2012 18:27
Haraldur Franklín: Öruggur og þægilegur hringur Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék vel á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Haraldur lék á 67 höggum eða 3 höggum undir pari vallar og er hann á næst besta skori dagsins þegar þetta er skrifað – ásamt Andra Má Óskarssyni úr GHR. Golf 26. júlí 2012 18:12
Rúnar: Það verður bara fimbulfamb í kvöld "Ég er sáttur og þetta gekk bara vel,“ sagði Keilismaðurinn Rúnar Arnórsson eftir að hann hafði leikið á 66 höggum á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik á Strandarvelli í dag. Rúnar er þegar þetta er skrifað á besta skori dagsins í karlaflokknum, fjórum höggum undir pari vallar. Golf 26. júlí 2012 17:51
Heimamaðurinn Andri Már í banastuði á Hellu Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Hellu spilaði fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik á þremur höggum undir pari. Golf 26. júlí 2012 14:43
Stefán Már vill hampa þeim stóra | vinningsskorið langt undir pari Stefán Már Stefánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur var hársbreidd frá því að landa Íslandsmeistaratitlinum í höggleik þegar mótið fór fram á Grafarholtsvelli árið 2009. Aðeins stórkostleg spilamennska hjá Ólafi Birni Loftssyni úr Nesklúbbnum kom í veg fyrir sigur Stefáns – sem ætlar sér stóra hluti á Íslandsmótinu i höggleik sem hófst í morgun á Strandarvelli á Hellu. Golf 26. júlí 2012 10:00
Tinna ætlar að fá nafn sitt að nýju á bikarinn Tinna Jóhannsdóttir úr Keili hefur sigrað einu sinni á Íslandsmótinu í höggleik og hún stefnir á að fá nafnið sitt ritað á ný á verðlaunagripinn að loknu mótinu Strandarvelli á Hellu. Tinna hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili en hún er þrátt fyrir það bjartsýn á góðan árangur á mótinu. Golf 26. júlí 2012 09:45
Birgir Leifur ætlar sér að verða sá sigursælasti frá upphafi Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, stefnir á að landa fimmta Íslandsmeistaratitlinum á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst í morgun á Strandarvelli á Hellu. Bigir hefur fjórum sinnum fagnað sigri á þessu móti og síðast árið 2010. Birgir segir að hann hafi sett sér það markmið að bæta metið sem þeir Björgvin Þorsteinsson og Úlfar Jónsson eiga – en þeir sigruðu sex sinnum á Íslandsmótinu í höggleik á sínum tíma. Golf 26. júlí 2012 09:30
Axel Bóasson: Hef undirbúið mig vel Axel Bóasson hefur titil að verja á Íslandsmótinu í höggleik sem hefst á morgun, fimmtudag, á Strandarvelli á Hellu. Axel, sem er 22 ára gamall, hampaði Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn á Hólmsvelli i Leiru í fyrra. Golf 25. júlí 2012 19:00
Óskar, formaður GHR: Presturinn í klúbbnum samdi við veðurguðina Íslandsmótið í höggleik 2012 fer fram dagana 26.-29. júlí á Strandavelli og er í umsjá Golfklúbbs Hellu. Óskar Pálsson er formaður Golfklúbbs Hellu segir það vera mikla tilhlökkun meðal klúbbsmeðlima að fá að taka á móti öllum bestu kylfingum landsins. Sigurður Elvar Þórólfsson ræddi við hann á kynningarfundi fyrir mótið sem haldinn var í dag. Golf 25. júlí 2012 14:30
Færri komust að en vildu Íslandsmótið í höggleik í golfi hefst á fimmtudaginn og fer mótið fram á Strandarvelli á Hellu að þessu sinni. Axel Bóasson úr Keili og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hafa titla að verja á mótinu. Golf 25. júlí 2012 06:00
Tvöfaldur Skolli: Hvernig er best að leika Strandarvöll? Íslandsmótið í höggleik í golfi fer fram á Strandarvelli á Hellu. Keppni hefst fimmtudaginn 26. júlí og eru allir bestu kylfingar landsins á meðal keppenda. Logi Bergmann og Þorsteinn Hallgrímsson fóru yfir það hvernig best er að leika Strandarvöll í þættinum Tvöfaldur Skolli sem sýndur er á Stöð 2 sport. Golf 25. júlí 2012 00:00
Biðlisti fyrir Íslandsmótið í höggleik | mikill áhugi hjá kylfingum Mikill áhugi er hjá íslenskum afrekskylfingum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem hefst á fimmtudaginn á Strandarvelli á Hellu. Biðlisti er í karlaflokknum en 12 kylfingar eru á þeim lista. Alls eru 123 karlar skráðir til leiks og 27 konur. Golf 24. júlí 2012 10:30
Adam Scott segist ekki hafa farið á taugum Ástralski kylfingurinn Adam Scott segir að hann hafi ekki farið á taugum á síðustu holunum á lokakeppnisdegi opna breska meistaramótsins. Scott lék síðustu fjórar holurnar á fjórum höggum yfir pari og Ernie Els frá Suður-Afríku tryggði sér sigurinn á stórmótinu. Golf 23. júlí 2012 13:00
Gísli og Henning tryggðu sér sigur í rigningunni Gísli Sveinbergsson og Henning Darri Þórðarson, báðir úr GK, fögnuðu sigri í unglingaflokkum drengja á Íslandsmótinu í höggleik sem lauk á Kiðjabergsvelli í kvöld. Gísli sigraði í flokki drengja 15-16 ára en Henning í flokki 14 ára og yngri. Golf 22. júlí 2012 22:30
Ernie Els sigraði á Opna breska Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els sigraði á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk á Royal Lytham & St. Annes vellinum í dag. Golf 22. júlí 2012 17:34
Guðrún Brá og Ragnar Már Íslandsmeistarar unglinga í höggleik Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, Ragnhildur Kristinsdóttir GR, Saga Traustadóttir GR og Ragnar Már Garðarsson GKG urðu í dag Íslandsmeistarar í flokkum sínum á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Kiðjabergsvelli um helgina. Golf 22. júlí 2012 17:26
Tevez var kylfusveinn fyrir Andres Romero á opna breska Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, nýtur þess að vera í fríi frá knattspyrnu og tók uppá því að vera kylfusveinn fyrir landa sinn Andres Romero á Opna breska meistaramótinu í golfi um helgina. Golf 22. júlí 2012 14:30
Ólafía Þórunn og Signý meðal efstu í Silkeborg Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og Signý Arnórsdóttir GK komust báðar í gegnum niðurskurðinn á Dilac-mótinu en keppt er í Silkeborg í Danmörku. Berglind Björnsdóttir GR náði ekki í gegnum niðurskurðinn. Golf 22. júlí 2012 09:03
Guðrún Brá og Ragnar Már leiða fyrir lokadaginn á Íslandsmóti unglinga Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK og Ragnar Már Garðarsson úr GKG hafa forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmóti unglinga í höggleik en leikið er á Kiðjabergsvelli. Keppendur voru ræstir út snemma í morgun vegna slæmrar veðurspár og náðu flestir keppendur að ljúka leik við sómasamleg veðurskilyrði. Golf 21. júlí 2012 22:15
Góð forysta Adam Scott fyrir lokahringinn Ástralinn Adam Scott hefur fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á opna breska meistaramótinu í golfi. Golf 21. júlí 2012 19:26
Ragnhildur og Nökkvi Íslandsmeistarar Ragnhildur Sigurðardóttir GR og Nökkvi Gunnarsson NK tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitil í meistaraflokkum karla og kvenna á Icelandair 35 ára og eldri sem fram fór í Vestmannaeyjum um helgina. Golf 21. júlí 2012 15:17
Snedeker efstur þegar keppni er hálfnuð | Tiger í góðum málum Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker er efstur þegar keppni er hálfnuð á opna breska meistaramótinu í golfi. Hann er á 10 höggum undir pari vallar. Ástralinn Adam Scott er annar, einu höggi á eftir, og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er þriðji á 6 höggum undir pari. Golf 20. júlí 2012 20:32
Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn Phil Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á opna breska meistaramótinu í golfi að loknum öðrum keppnisdegi af alls fjórum. Mickelson, sem hefur sigrað á fjórum stórmótum, lék á 78 höggum og alls var hann á 11 höggum yfir pari eftir 36 höggum. Golf 20. júlí 2012 20:00
Guðrún Brá bætti vallarmetið á Kiðjabergsvelli Í dag var leikin fyrsti hringurinn af þremur á Íslandsmóti unglinga en leikið er á Kiðjabergsvelli við frábærar aðstæður. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Hallgrímur Júlíusson úr GV er efstur í 17-18 ára flokki pilta en hann lék á einu höggi yfir pari eða 72 höggum. Golf 20. júlí 2012 19:30
Scott leiðir að loknum fyrsta hring | Tiger í ágætum málum Ástralski kylfingurinn Adam Scott hefur eins höggs forskot að loknum fyrsta hring á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hófst á Royal Lytham & St Annes golfvellinum í Englandi í dag. Golf 19. júlí 2012 21:00
Stór keppnishelgi í íslenska golfinu | 400 kylfingar taka þátt Þrjú stór mót fara fram á vegum Golfsambands Íslands um helgina og er samanlagður fjöldi keppenda um 400. Íslandsmót unglinga í höggleik fer fram á Kiðjabergsvelli og eru þar 150 kylfingar sem taka þátt í mótinu. Leiknir verða þrír hringir og hefst mótið á morgun og lýkur á sunnudag. Leikið verður á Áskorendamótaröðinni á Svarfhólsvelli á Selfossi og eru þar um 100 kylfingar skráðir til leiks. Golf 19. júlí 2012 13:30
Adam Scott á besta skori dagsins | Tiger líklegur til afreka Adam Scott frá Ástralíu er á besta skori dagsins á opna breska meistaramótinu í golfi sem hófst í morgun á Royal Lytham & St. Annes. Scott lék á 6 höggum undir pari vallar eða 64 höggum. Paul Lawrie frá Skotland er á 5 höggum undir pari eða 65 höggum. Tiger Woods hefur leikið 14 holur þegar þetta er skrifað og er hann á 4 höggum undir pari og Zach Johnson er á -6 en hann hefur leikið 6 holur. Golf 19. júlí 2012 12:45
Clarke á titil að verja en Tiger þykir líklegastur Opna breska meistaramótið í golfi hefst í dag og að þessu sinni fer þetta stórmót fram á Royal Lytham & Annes vellinum á Englandi. Samkvæmt venju fer mótið fram á strandvelli eða "linksvelli" og er þetta í 141. skipti sem mótið fer fram. Golf 19. júlí 2012 08:00
Phil Mickelson á enn eftir að landa sigri á opna breska Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur á undanförnum tveimur áratugum verið í fremstu röð í heiminum en hann á enn eftir að ná þeim áfanga að landa sigri á opna breska meistaramótinu. Mickelson hefur sigrað þrívegis á Mastersmótinu, einu sinni á PGA meistaramótinu auk 40 sigra á PGA mótaröðinni. Golf 18. júlí 2012 10:00