Alonzo Mourning lagði skóna á hilluna Miðherjinn Alonozo Mourning hjá Miami Heat í NBA deildinni hefur nú endanlega tilkynnt að hann sé hættur sem atvinnumaður, 38 ára að aldri. Körfubolti 23. janúar 2009 15:50
Iavaroni rekinn frá Memphis Marc Iavaroni hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA deildinni. Körfubolti 23. janúar 2009 13:33
Stjörnuleikur NBA: Howard setti met Dwight Howard varð fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA til að fá þrjár milljónir atkvæða frá stuðningsmönnum í byrjunarlið Stjörnuleiksins sem fram fer þann 15. febrúar í Phoenix. Körfubolti 23. janúar 2009 13:20
Boston stöðvaði sigurgöngu Orlando Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt þar sem hæst bar viðureign Orlando og Boston, tveggja af toppliðum deildarinnar. Körfubolti 23. janúar 2009 13:17
Phil Jackson þjálfar stjörnulið Vesturdeildar Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, mun þjálfa úrvalslið Vesturdeildarinnar í stjörnuleiknum árlega í NBA sem fram fer í Phoenix þann 15. næsta mánaðar. Körfubolti 22. janúar 2009 15:33
Bynum og Bryant fóru á kostum gegn Clippers Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LA Lakers vann 108-97 sigur á grönnum sínum í LA Clippers þar sem Andrew Bynum spilaði besta leik sinn á ferlinum til þessa. Körfubolti 22. janúar 2009 09:39
Fjórir leikir í NBA í nótt Fjórir leikir fóru fram í NBA í nótt og unnust þrír þeirra á heimavelli. Atlanta skellti Chicago 105-102 á útivelli og vann því alla leiki liðanna í vetur. Körfubolti 21. janúar 2009 09:39
Obama er liðtækur í körfubolta (myndband) Barack Obama tekur í dag við embætti forseta Bandaríkjanna og hefur NBA deildin boðist til að innrétta körfuboltavöll í fullri stærð inni í Hvíta húsinu af því tilefni. Körfubolti 20. janúar 2009 10:49
Lakers burstaði Cleveland Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt þar sem hæst bar stórsigur LA Lakers á Cleveland Cavaliers 105-88 í Los Angeles. Körfubolti 20. janúar 2009 09:19
LeBron James er bestur í ár LeBron er verðmætasti leikmaður ársins í NBA deildinni það sem af er leiktíðinni. Þetta sagði núverandi handhafi titilsins, Kobe Bryant, í samtali við LA Times um helgina. Körfubolti 19. janúar 2009 16:30
Sloan framlengir við Jazz Þjálfarinn Jerry Sloan hefur framlengt samning sinn við Utah Jazz út næstu leiktíð, sem þýðir væntanlega að hann muni stýra liðinu samfleytt í 22 ár. Körfubolti 19. janúar 2009 12:15
Fernandez í troðkeppnina Spænska bakverðinum Rudy Fernandez hjá Portland Trailblazers hefur verið boðið að taka þátt í troðkeppninni um stjörnuhelgina í NBA sem fram fer í febrúar. Körfubolti 19. janúar 2009 10:44
Nash gaf 18 stoðsendingar í sigri Suns Tveir leikir voru í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Phoenix lagði Toronto 117-113 í fjörlegum leik í Kanada og Miami skellti Oklahoma á útivelli 104-94. Körfubolti 19. janúar 2009 09:47
NBA í nótt: Cleveland enn ósigrað heima Cleveland vann í nótt enn einn heimasigurinn í NBA-deildinni í körfubolta - í þetta sinn gegn New Orleans Hornets, 92-78. Körfubolti 17. janúar 2009 11:45
Sá flugslysið út um stofugluggann Vince Carter, leikmaður New Jersey Nets í NBA deildinni, trúði ekki eigin augum þegar hann leit út um gluggann hjá sér í gærkvöldi og varð vitni að því þegar Airbus þota US Airways nauðlenti á Hudson-fljótinu í New York. Körfubolti 16. janúar 2009 19:22
Brand gæti snúið aftur með Sixers í nótt Ekki er loku fyrir það skotið að framherjinn Elton Brand spili í nótt sinn fyrsta leik með Philadelphia 76ers síðan 17. desember þegar liðið tekur á móti San Antonio Spurs í NBA deildinni. Körfubolti 16. janúar 2009 18:13
NBA í nótt: Chicago vann Cleveland í framlengingu Cleveland tapaði aðeins sínum sjöunda leik í NBA-deildinni í nótt er liðið tapaði fyrir Chicago í framlengdum leik, 102-93. Körfubolti 16. janúar 2009 08:48
Leikmenn Houston komnir með nóg af meiðslasögu McGrady Þær fréttir berast nú úr herbúðum Houston Rockets í NBA deildinni að Yao Ming og aðrir leikmenn í liðinu séu búnir að fá nóg af óslitinni meiðslasögu Tracy McGrady og vilji hann jafnvel burt frá félaginu. Körfubolti 15. janúar 2009 17:56
NBA í nótt: Sacramento vann í þríframlengdum leik Sacramento vann sigur á Golden State, 135-133, í þríframlengdum leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Þá tapaði LA Lakers fyrir San Antonio. Körfubolti 15. janúar 2009 09:43
NBA í nótt: Orlando setti niður 23 þrista Orlando Magic er eitt allra heitasta liðið í NBA-deildinni og leikmenn sýndu í nótt hversu þeir eru megnugir er þeir skoruðu 139 stig gegn Sacramento. Körfubolti 14. janúar 2009 09:17
NBA í nótt: Boston og New Jersey unnu í framlengingu Bæði Boston og New Jersey unnu sína leiki í framlengingu en alls fóru sex leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 13. janúar 2009 09:28
NBA í nótt: Orlando sjóðheitt Orlando vann San Antonio, 105-98, í NBA-deildinni í nótt. Dwight Howard skoraði 24 stig og Jameer Nelson 22, þar af átta á síðustu tveimur mínútum leiksins. Körfubolti 12. janúar 2009 09:27
Allen tryggði Boston langþráðan sigur með átta þristum Ray Allen var sjóðandi heitur þegar Boston vann nauman 94-88 sigur á Toronto í fyrsta leik kvöldsins í NBA deildinni. Allen hitti úr 8 af 10 þristum í leiknum og skoraði 36 stig. Körfubolti 11. janúar 2009 22:37
Roy sneri aftur hjá Portland Brandon Roy spilaði með liði sínu Portland á ný í nótt og skoraði 19 stig í sigri liðsins á Golden State. Roy hafði misst úr fjóra leiki vegna meiðsla á læri og tapaði Portland tveimur þeirra. Körfubolti 11. janúar 2009 11:46
Barkley var ekki fullur við stýrið Sjónvarpsmaðurinn og fyrrum körfuboltastjarnan Charles Barkley hefur verið settur í tímabundið leyfi hjá TNT sjónvarpsstöðinni þrátt fyrir að hafa sloppið við ölvunarakstursákæru á dögunum. Körfubolti 10. janúar 2009 17:38
Memphis samdi við Miles á ný Forráðamenn Memphis Grizzlies létu sér fátt finnast um hótanir Portland og gerðu aftur 10 daga samning við framherjann Darius Miles í dag. Körfubolti 10. janúar 2009 17:27
LeBron James sá um Boston LeBron James fór á kostum í nótt þegar lið hans Cleveland festi sig í sessi sem topplið Austurdeildarinnar með því að leggja Boston á sannfærandi hátt 98-83 á heimavelli. Körfubolti 10. janúar 2009 12:55
Verður Boston nítjánda fórnarlamb Cleveland í röð? Sannkallaður risaleikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt þegar Cleveland tekur á móti meisturum Boston. Cleveland hefur unnið átján leiki í röð á heimavelli sínum Quicken Loans Arena. Körfubolti 9. janúar 2009 16:40
Portland hefur í hótunum vegna Miles Framherjinn Darius Miles hefur ekki gert neinar rósir í NBA deildinni síðustu ár vegna þrálátra meiðsla og vandræða utan vallar. Hann er þó umtalaðasti maðurinn í deildinni í dag. Körfubolti 9. janúar 2009 10:49
San Antonio færði Clippers níunda tapið í röð Tveir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio vann 106-84 sigur á LA Clippers þar sem liðið stakk af í síðari hálfleik eftir að sá fyrri hafði verið jafn. Körfubolti 9. janúar 2009 09:35