Átök í Ísrael og Palestínu
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 42 ›
Bóndinn og snákurinn Í síðustu viku aflýsti Taylor Swift þrennum tónleikum í Vínarborg vegna hryðjuverkahótana. Í kjölfarið voru þrír ungir menn með tengsl við íslamska ríkið (ISIS) handteknir. Án vafa eru töluvert fleiri sem aðhyllast hugmyndafræði ISIS búsettir á Vesturlöndum. Skoðun 12.8.2024 06:33
Gerðu loftárás á skóla í nótt Ísraelsher gerði loftárás á skóla á Gazasvæðinu í nótt. Herinn segist í árásinni hafa hæft hryðjuverkamenn á vegum Hamas á stjórnstöð samtakanna sem hafi verið í skólanum. Erlent 10.8.2024 07:54
Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Benjamín Netanahjú, forsætisráðherra Ísrael, staðfesti í gær að fulltrúar í samninganefnd á vegum ísraelska ríkisins myndu mæta til samningaviðræðna á ný þann 15. ágúst. Það gerði hann eftir sameiginlegt ákall Bandaríkjamanna, Egyptalands og Katar þar sem kallað var eftir því að Ísrael og Hamas kæmu aftur að samningaborðinu til að ljúka viðræðum. Hamas hefur ekki svarað kallinu. Erlent 9.8.2024 07:50
Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Mótmælendur sem kyrjuðu slagorð um stríðsátökin á Gasa trufluðu endurtekið kosningafund Kamölu Harris, forsetaefnis Demókrataflokksins, í Michigan í Bandaríkjunum í gær. Harris hvatti fólkið til þess að segja það hreint út ef það vildi fá Donald Trump sem forseta. Erlent 8.8.2024 15:35
Erum við að gleyma okkur? Þær gríðarlega alvarlegu og ofbeldisfullu hernaðaraðgerðir sem Ísrael hefur beitt gegn Palestínumönnum geta ekki hafa farið fram hjá neinum undanfarna mánuði. Tugir þúsunda manneskja hafa verið drepin, hundruð þúsundir einstaklinga slösuð og milljónir eru á flótta. Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að það muni taka yfir 15 ár að hreinsa Gaza eftir linnulausar sprengjuárásir Ísraels. Skoðun 8.8.2024 10:30
Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Evrópusambandið og stjórnvöld í Bretlandi og Frakklandi hafa fordæmt ummæli Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, sem sagði í ræðu í vikunni að það kynni að vera réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa. Erlent 8.8.2024 07:33
Mannúð Fyrir fáeinum dögum réðist Ísraelsher á barnaskóla á Gaza og myrti á á fjórða tug kvenna og barna. Skoðun 7.8.2024 12:01
Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Hamas samtökin í Palestínu hafa útnefnt Yahya Sinwar sem nýjan pólitískan leiðtoga sinn eftir að Ismail Haniyeh var ráðinn af dögum í Tehran í síðustu viku. Erlent 7.8.2024 07:02
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6.8.2024 07:23
Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Níu starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) kunna að hafa tekið þátt eða átt aðild að árásum Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 6.8.2024 06:51
Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Bandarísk og fleiri vestræn stjórnvöld hafa gefið út viðvaranir til ríkisborgara sinna um að koma sér hið snarasta frá Líbanon af ótta við að stríðsátök fyrir botni Miðjarðarhafs dreifist út. Spenna á milli Ísraels annars vegar og Íran og Líbanon hins vegar stigmagnast. Erlent 4.8.2024 07:45
Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmælagöngu klukkan 14 á morgun, þar sem gengið verður með barnavagna frá Hallgrímskirkju að Austurvelli. Í kerrunum verða myndir af börnum sem hafa verið drepin á Gasa, og spiluð verða hljóð frá sprengjuregni á Gasa. Innlent 2.8.2024 22:40
Ekki frekari þjáningar takk! Börn eru ekki ábyrg fyrir þeim átökum og ófriði sem nú skekja löndin fyrir botni Miðjarðarhafs. Samt þjást þau vegna ástandsins og djúp sár hafa myndast á sálir barnanna – sem dýpka enn. Ekki þarf að tíunda um öll þau ungu saklausu líf sem hafa týnst í þessu brjálæði öllu. Skoðun 2.8.2024 14:00
Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Sprengjan sem varð Ismail Haniyeh að bana var smyglað inn á gestaíbúð þar sem hann dvaldi fyrir um það bil tveimur mánuðum síðan. Hún var sett af stað úr fjarlægð þegar staðfesting fékkst á því að Haniyeh væri í íbúðinni. Erlent 2.8.2024 08:08
Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, flutti ávarp í gær þar sem hann sagði að skærur samtakanna og Ísrael væru í „nýjum fasa“. Óvinurinn mætti nú eiga von á „óumflýjanlegum viðbrögðum“ þar sem hann hefði farið yfir „rauðar línur“. Erlent 2.8.2024 06:59
Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Fyrrverandi yfirmaður öryggismála Ólympíusveitar Ísrael hjá öryggisstofnuninni Shin Bet, segir að auka ætti öryggi keppenda landsins á Ólympíuleikunum í París í kjölfar árásar Hezbollah á þorp í Gólan-hæðum um helgina og aukinnar spennu á svæðinu. Erlent 1.8.2024 12:22
Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Útför Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas fór fram í Íran í dag. Hann féll í loftárás í höfuðborginni Tehran sem óttast er að geti leitt til stigmögnunar átaka í heimshlutanum. Erlent 1.8.2024 11:51
Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Mohammed Deif, yfirmaður hernaðararms Hamas féll í árás Ísraela fyrir tæplega þremur vikum. Þetta staðhæfir Ísraelsher í dag og segir Deif hafa farist í loftárás á húsnæði í útjaðri borgarinnar Khan Younis í suðurhluta Gaza þann 13. júlí. Erlent 1.8.2024 09:20
Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. Erlent 31.7.2024 21:00
„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. Erlent 31.7.2024 18:57
Við viljum geta skálað fyrir Rapyd-lausum Vínbúðum! Núna þegar ein annasamasta helgi ársins hjá Vínbúðunum er í uppsiglingu þá langar okkur að minna fólk á að Vínbúðirnar nota ennþá þjónustu ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Rapyd þegar borgað er með greiðslukortum. Eini greiðslumöguleikinn annar er reiðufé. Skoðun 31.7.2024 11:01
Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. Erlent 31.7.2024 10:21
Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. Erlent 31.7.2024 06:46
Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47
Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi hafa gefið út ferðaviðvörun til ríkisborgara sinna og hvatt þá til að ferðast ekki til Líbanon og íhuga að yfirgefa landið ef þeir eru þar. Erlent 30.7.2024 07:16
Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Miklar áhyggjur eru uppi af því að stjórnvöld í Ísrael ákveði að ráðast í umfangsmiklar hefndaraðgerðir gegn skotmörkum í Líbanon, sem gæti leitt til allsherjar stríðs á svæðinu. Erlent 29.7.2024 06:56
Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Ísraelski flugherinn segist hafa hæft skotmörk tengd Hezbollah-samtökunum í Líbanon eftir að tólf börn og ungmenni létust í eldflaugaárás á hernumdu svæði Ísraels í Gólanhæðum. Erlent 28.7.2024 10:35
Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Ellefu ungmenni létust og nítján særðust í eldflaugaárás sem gerð var á fótboltavöll á Gólanhæðum í dag. Ísraelsher kennir líbönsku samtökunum Hizbollah um en þau neita sök. Erlent 27.7.2024 21:37
Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla Minnst þrjátíu voru drepnir og hundrað særðust í loftárásum Ísraelshers á skóla á Gasasvæðinu. Fleiri en fjögur þúsund héldu til í skólanum fyrir árásina, meirihlutinn konur og börn. Erlent 27.7.2024 20:26
Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað frá kæru Byko á hendur íslenskum karlmanni fyrir eignaspjöll. Karlmaðurinn setti límmiða á vörur frá Byko þar sem hvatt var til sniðgöngu á vörum frá Ísrael. Innlent 26.7.2024 15:29