Sport

Ásgeir Örn til Lemgo

Einn efnilegasti handknattleiksmaður landsins, Ásgeir Örn Hallgrímsson, mun skrifa undir tveggja ára samning við þýska stórliðið Lemgo í byrjun næsta árs. Hann klárar þessa leiktíð með Haukum en flytur síðan búferlum til Þýskalands næsta sumar. Ásgeir Örn hefur verið orðaður við fjölda erlendra liða síðustu mánuði en hefur tekið sér góðan tíma í að finna rétta félagið. "Ég fór utan til félagsins rétt fyrir jól og leist gríðarlega vel á allar aðstæður. Ég vildi taka minn tíma og skoða allt vel áður en ég tók ákvörðun um hvert ég færi. Ef eitthvert lið vill virkilega fá mann þá bíður það eftir manni. Umgjörðin hjá Lemgo er frábær og þetta er mjög metnaðarfullt félag sem stefnir hátt og ég er gríðarlega ánægður með val mitt," sagði Ásgeir Örn við Fréttablaðið í gær. Lemgo hefur verið eitt besta félag Þýskalands síðustu ár og innan raða félagsins er fjöldi reyndra landsliðsmanna. Þeir eru margir hverjir að komast á aldur og því er félagið smám saman að sækja unga leikmenn eins og Ásgeir og Loga Geirsson sem gekk til liðs við félagið fyrir tímabilið. "Þetta leggst gríðarlega vel í mig og það er gaman að hafa Loga þarna á svæðinu. Það munar mikið að hafa Íslending á staðnum og við Logi höfum alltaf náð ágætlega saman. Ég neita því ekki að það er ákveðinn léttir að vera búinn að fá botn í mín mál. Ég vildi velja rétt og ég tel mig hafa gert það," sagði Ásgeir Örn en hann er ákveðinn í því hvernig hann ætlar að kveðja Haukana. "Ég ætla að kveðja með Íslands- og deildarmeistaratitli. Svo fer ég sáttur til Þýskalands." [email protected]



Fleiri fréttir

Sjá meira


×