Fótbolti

Hareide þarf að leggjast undir hnífinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Åge Hareide þarf að fara í aðgerð á hné.
Åge Hareide þarf að fara í aðgerð á hné. vísir/Anton

Åge Hareide, fráfarandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, þarf að gangast undir aðgerð á hné. Þetta staðfesti hann í viðtali við norska miðilinn Nettavisen.

Hinn 71 árs gamli Norðmaður tilkynnti í gær að hann væri hættur í þjálfun og skömmu síðar staðfesti Åge að hann væri endanlega hættur í þjálfun. Ástæðan er sú að Åge er að glíma við hnémeiðsli og þarf að fara í aðgerð.

Í viðtalinu segir Åge að hann hafi farið í svipaða aðgerð á hinu hnénu en þá hafi hann verið rúmar sex vikur á spítala eftir að fá sýkingu í hnéð eftir aðgerðina.

Norðmaðurinn kveður íslenska landsliðið með söknuði og segir að hann hafi notið þess að þjálfa liðið. Hann hafi nú þegar fengið kveðjur frá bæði starfsliði og leikmönnum en aldurinn sé farinn að segja til sín og því sé kominn tími til að láta staðar numið.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, og Freyr Alexandersson, þjálfari Kortrijk í Belgíu, eru orðaðir við starfið.


Tengdar fréttir

Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ

Þeir Arnar Gunnlaugsson og Freyr Alexandersson eru taldir hvað líklegastir til að taka við karlalandsliði Íslands í fótbolta eftir brotthvarf Åge Hareide. Hvorugur hefur heyrt frá Knattspyrnusambandi Íslands.

Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni

Åge Hareide hætti í gær sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann stýrði liðinu í tuttugu leikjum og hér fyrir neðan má sjá hvernig árangur hans kemur út á meðal árangurs annarra landsliðsþjálfara á þessari öld.

Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór

Fyrrum landsliðsmaðurinn Lárus Orri Sigurðsson segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að Åge Hareide lyki störfum sem landsliðsþjálfari karla í fótbolta. Hann kallar eftir Arnari Gunnlaugssyni sem eftirmanni Hareide.

Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara

Þorvaldur Örlygsson kveðst fremur vilja íslenskan landsliðsþjálfara fremur en erlendan sem arftaka Åge Hareide. Fyrst og fremst verði þó valinn besti maðurinn í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×