Stj.mál
95 96 97 98 99 100 101 102 103 … 187 ›
Þorskkvóti verði minnkaður Hafrannsóknarstofnunin leggur til að þorskkvótinn verði minnkaður um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári og að aflamark verði 198 þúsund tonn miðað við 205 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Þetta kom fram á blaðamannafundi Hafrannsóknarstofnunar í dag þegar ný skýrsla um nytjastofna sjávar var kynnt. Innlent 13.10.2005 19:19
Segir ekkert að stjórnarskrá ESB Það er ekkert að evrópsku stjórnarskránni að mati eins reyndasta utanríkismálasérfræðings Þýskalands. Volker Rühe telur helst að stytta þyrfti stjórnarskrána en að andstaðan sé ekki efnisleg. Erlent 13.10.2005 19:19
Verður við hátíðahöld í Noregi Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, verða viðstödd hátíðarhöld í Noregi á morgun þar sem þess verður minnst að öld er liðin frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar og endurreisnar konungdæmis í Noregi. Hátíðarsamkoma verður í þinghúsinu í Ósló vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:19
Leyft að veiða meiri ýsu og ufsa Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að veiðar úr þorskstofninum verði minnkaðar um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri LÍÚ er sama sinnis og fagnar auknum veiðiheimildum á ýsu og ufsa. Innlent 13.10.2005 19:19
Höfuðborgarsvæðið verði ein heild Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, telur að sameina eigi sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu. Það sé að mati flokksins brýnasta verkefnið í skipulagsmálum svæðisins. Hann lýsir þessu í tengslum við hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um byggð í eyjunum við Reykjavík. Hann segir þær virka djarfar og spennandi í fyrstu en standist ekki við nánari skoðun. Innlent 13.10.2005 19:19
Eyjabyggð sprengir gatnakerfið Í sex ára gamalli skýrslu borgarverkfræðings og Borgarskipulags Reykjavíkur er talið óraunhæft að stofna til 20 þúsund manna byggðar á uppfyllingum úti af Örfirisey og á öðrum uppfyllingum í grennd við miðborgina. Í umferðarspá sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen vann fyrir borgaryfirvöld koma fram efasemdir um umferðarálag. Innlent 13.10.2005 19:19
Segir sameiningu raunhæfa Sameina á sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu, það er bæði raunhæft og skynsamlegt að mati Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa. Hann ætlar að flytja tillögu þess efnis í borgarstjórn í haust. Innlent 13.10.2005 19:19
Vill opnari umræðu um þorskstofn Árni Matthiessen sjávarútvegsráðherra kallaði eftir opinskárri umræðu um ástand þorskstofnsins í sjómannadagsræðu sinni að þessu sinni. Innlent 13.10.2005 19:19
Lögum um ríkiserfðir breytt Anders Fogn Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hyggst leggja fram frumvarp til að breyta lögum um ríkiserfðir þannig að konur hafi jafnan rétt til ríksierfða og karlar. Eins og kunnugt er eiga María Elísabet og Frirðik krónprins von á sínu fyrsta barni á árinu og vilja dönsk stjórnvöld tryggja að það erfi krúnuna, en samkvæmt núgildandi lögum getur kona aðeins erft hana ef hún á engan bróður. Erlent 13.10.2005 19:19
Biðst afsökunar vegna Gunnars Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, biður kjósendur flokksins afsökunar á því að Gunnar Örn Örlygsson hafi hætt þingmennsku fyrir flokkinn. Innlent 13.10.2005 19:18
Verkaskipting óljós í dýravernd Dýraverndunarmálum hefur sáralítið verið sinnt á Íslandi í áratugi vegna slæmrar stjórnsýslu og óljósrar verkaskiptingar. Unnið hefur verið að úrbótum síðustu árin. Innlent 13.10.2005 19:19
Vilja koma að endurskoðun Kvennahreyfingin vill hafa áhrif á endurskoðun stjórnarskrárinnar og setur það á oddinn að tryggð verði jöfn þátttaka karla og kvenna í stjórnun landsins en fyrr sé ekki hægt að tala um raunverulegt jafnrétti. Fulltrúar kvennahreyfingarinnar hittust á vinnufundi á Hallveigarstöðum í gær þar sem rætt var hvernig stjórnarskráin gæti tryggt öryggi kvenna. Innlent 13.10.2005 19:19
Mótmæla við Kárahnjúka í sumar Óstýrilátir umhverfisverndarsinnar ætla að slá upp alþjóðlegum tjaldbúðum við Kárahnjúka í sumar. Þeir hafa fengið breskan atvinnumótmælanda til landsins til að kenna réttu mótmælaaðferðirnar. Innlent 13.10.2005 19:19
Sakar frjálslynda um ósannindi Gunnar Örn Örlygsson segir formann og varaformann Frjálslynda flokksins fara með ósannindi í lýsingum af aðdraganda þess að hann sagði sig úr flokknum og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Guðjón A. Kristjánsson, formaður frjálslyndra, hefur beðið kjósendur flokksins afsökunar á brotthvarfi Gunnars Arnar. Innlent 13.10.2005 19:19
Ráðherra með rangt mál "Það er fjarri lagi að ráðherra fari þarna með rétt mál og nægir að benda á þorskveiðar í Barentshafinu því til sönnunar," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Innlent 13.10.2005 19:19
Ekki árás á Kína Kröfur Bandaríkjastjórnar um aukið frelsi í Kína eru ekki settar fram til að ógna jafnvægi í landinu eða grafa undan því með nokkrum hætti, sagði Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í gær. Erlent 13.10.2005 19:18
Hafna frestun kosninganna Hamas-samtökin hafa hafnað þeirri ákvörðun forseta Palestínu að fresta þingkosningum sem átti að halda um miðjan næsta mánuð. Hættuleg valdabarátta er fram undan. Erlent 13.10.2005 19:18
Abbas frestar kosningunum Mikil spenna ríkir nú í herbúðum Palestínumanna eftir að Mahmoud Abbas forseti ákvað að fresta þingkosningum sem halda átti um miðjan næsta mánuð. Í yfirlýsingu um frestun kosninganna sagði Abbas að hún væri til þess að gefa tíma til að leysa deilur um breytingar á kosningalögunum. Erlent 13.10.2005 19:18
Ný Marshall-áætlun fyrir Afríku Fjármálaráðherra Bretlands kynnti í dag hugmyndir sínar um nýja Marshall-áætlun til þess að reisa Afríku úr öskustónni. Skiptar skoðanir eru um hugmyndir Breta. Erlent 13.10.2005 19:18
Rumsfeld snuprar Kínverja Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, snupraði Kínverja á ráðstefnu um öryggismál í Singapúr í dag. Hann sagði Kínverja vera ógn við öryggi í Asíu vegna þess hve miklu fjármagni þeir eyði í hervarnir landsins og að koma sér upp þróuðum vopnum. Erlent 13.10.2005 19:18
Vilja enn kjósa um stjórnarskrá Meirihluti Dana vill fá að kjósa um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins þrátt fyrir að hvort tveggja franskir og hollenskir kjósendur hafi hafnað honum. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem Politiken birti. Innlent 13.10.2005 19:18
Verða að tryggja stöðugleika Stjórnvöld verða að gera meira til að tryggja stöðugleika en þau hafa gert til þessa, segir framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og tveir stjórnarandstöðuþingmenn. Innlent 13.10.2005 19:18
Chirac til fundar við Schröder Jacques Chirac, forseti Frakklands, fór til fundar við Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, í Berlín í dag. Fundurinn var ákveðinn með skömmum fyrirvara en leiða má líkur að því að aðalumræðuefnið verði ástandið innan Evrópusambandsins og staða þess eftir að bæði Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandins í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum. Erlent 13.10.2005 19:18
Konur ræða stjórnarskrárbreytingar Í tilefni yfirstandandi endurskoðunar stjórnarskrárinnar komu konur saman á Hallveigarstöðum í dag. Tilefni fundarins var að ræða mikilvægi þess að sjónarmið kvenna heyrist í starfi stjórnarskrárnefndar og að tillögur hennar endurspegli þarfir kvenna sem borgara í íslensku samfélagi. Innlent 17.10.2005 23:41
Deila hart á Abbas Forystumenn Hamas eru reiðir Mahmoud Abbas fyrir að hafa einhliða frestað palestínsku þingkosningunum. Óvíst er hvenær þær verða haldnar. Abbas segir meiri tíma þurfa til að undirbúa breytingar á kosningalögum.</font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:18
Ráðherrann mun segja af sér Forsætisráðherra Lúxemborgar, sem nú fer með forsæti í Evrópusambandinu, ætlar að segja af sér ef stjórnarskrá sambandsins verður felld í þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi. Jean-Claude Juncker varaði í dag við því að ef ekki næðist samstaða um langtíma fjárlög Evrópusambandsins í þessum mánuði þá yrði erfitt pólitískt ástand að hreinu neyðarástandi. Innlent 13.10.2005 19:18
Alfreð kallar Perluna hringekju Ungir sjálfstæðismenn færðu Alfreð Þorsteinssyni, formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, Monopoly spilið að gjöf í morgun. Þeir segjast hafa gert það til að mótmæla taumlausri eyðslu hans á kostnað borgarbúa. Alfreð endursendi hins vegar spilið skömmu síðar og hvatti gefendurna til að spila það við Davíð Oddsson í „hringekjunni í Öskjuhlíð“. Innlent 17.10.2005 23:41
Eldflaugum skotið í Sýrlandi Sýrlendingar skutu á loft þremur Sködd-eldflaugum í síðustu viku að sögn ísraelsku herstjórnarinnar. Ein flaugin brotlenti í Tyrklandi. Erlent 13.10.2005 19:18
HIV sífellt stærra vandamál Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir alnæmisfaraldurinn sífellt verða stærra vandamál í öllum heimsálfum. Hann segir nauðsynlegt ef sjúkdómurinn á ekki að ná yfirhöndinni að þjóðir heimsins taki sig saman og berjist af hörku með auknum rannsóknum, forvarnarstarfi og aukinni aðstoð. Erlent 13.10.2005 19:18
Höggvum á flugvallarhnútinn Alfreð Þorsteinsson telur að ekki verði vikist undan því að ákvarða sem fyrst framtíð Reykjavíkurflugvallar. Alfreð kveðst óttast að Sjálfstæðismenn einkavæði Orkuveitu Reykjavíkur komist þeir til valda eftir næstu borgarstjórnarkosningar. Innlent 13.10.2005 19:18